Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 59
FIMMTUDAGUR 25. mars 2010 43
Leikarinn og hjartaknúsarinn
Brad Pitt er ekkert alltof
spenntur fyrir því að heim-
sækja Skotland eftir að hann
lenti í vandræðum þar áður
en hann varð frægur. Pitt var
á ferðalagi um Skotland
og kynntist þar konu
í borginni Glasgow
sem átti brjálaðan
fyrrverandi kærasta.
„Ég fór til Skotlands
og ferðaðist þar um
fyrir mörgum árum.
Ég fór út um allt og
sá heilan helling. Edin-
borg og Glasgow voru
eftirminnilegir stað-
ir og arkitektúrinn þarna er stór-
merkilegur,“ sagði Pitt. „Þegar ég
var í Glasgow kynntist ég stelpu.
Svo illa vildi til að hún var
fyrrverandi kærasta einhvers
rudda. Á endanum þurfti ég að
flýja borgina vegna þess að
ég fékk slæmt augnaráð
frá náunga á bar,“ sagði
hann. Leikarinn útilokar
þó ekki að taka upp kvik-
mynd í Skotlandi ef hlut-
verk sem hann tekur að
sér krefst þess.
Flúði frá Skotlandi
BRAD PITT Leikarinn á bæði
slæmar og góðar minningar frá
veru sinni í Skotlandi.
Básaskersbryggju | 900 Vestmannaeyjar | Sími 481 2800 | Fax 481 2991 | www.eimskip.is | www.herjolfur.is
• Fullorðnir 1.000
• 12–15 ára 500
• Ellilífeyrisþegar 500
• Öryrkjar 500
• Fólksbílar 5 m og styttri 1.500
• Fólksbílar lengri en 5 m 2.000
kl. kl. kl. kl.
Frá Vestmannaeyjum 7.30 10.30 17.00 20.00
Frá Landeyjahöfn 09.00 12.30 18.30 21.30
Mán., þri. og mið.
verða fjórar ferðir.
kl. kl. kl. kl. kl.
Frá Vestmannaeyjum 7.30 10.30 14.00 17.00 20.00
Frá Landeyjahöfn 09.00 12.30 15.30 18.30 21.30
Fim. og fös.
verða fimm ferðir.
kl. kl. kl. kl. kl.
Frá Vestmannaeyjum 9.00 12.00 15.00 18.00 21.00
Frá Landeyjahöfn 10.30 13.30 16.30 19.30 22.30
Lau. og sun.
verða fimm ferðir.
SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS 2010
Áætlun gildir 1. júlí til 31. ágúst.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að byrja að bóka
vegna siglinga til og frá Landeyjahöfn frá 20. apríl.
Afsláttarkjör og þjóðhátíðaráætlun auglýst fljótlega.
Frá og með 1. júlí siglir Herjólfur frá Landeyjahöfn.
Fargjöld án afsláttar verða eftirfarandi.
„Ég hef engan tíma í þessa þvælu,“
segir Steindi Jr.
Fréttablaðið greindi frá því á
þriðjudag að grínistinn Steindi væri
kominn í framboð fyrir Vinstri
græna í Mosfellsbæ. Hann hefur
nú dregið framboð sitt baka af per-
sónulegum ástæðum. „Það er nóg
að gera fyrir,“ segir Steindi, sem
var þó kominn með nokkur stefnu-
mál. „Mig langaði að fá þetta fót-
boltamark aftur í Mosfellsbæ. Svo
langaði mig svolítið að hafa Wes-
ley Snipes-viku sem myndi hefjast
á afmælisdegi hans 31. júlí. Þá yrðu
bæjarbúar skyldaðir til að horfa á
ræmur með honum. Loks ætlaði
ég að hafa Ritz-kexdag, útfærslan
á honum var enn þá í vinnslu – en
mér þykir kexið gott. Ég velti fyrir
mér hvort að framboð manns með
þessi stefnumál sé ekki hreinlega
skrumskæling á lýðræðinu. Svik
við kjósendur. Nei, ég segi svona.“
Í kjölfar frétta af framboði
Steinda veltu vefmiðlar fyrir sér
hvort Stöð 2 væri komin í kosn-
ingabaráttu, þar sem hann byrj-
ar með nýjan grínþátt á stöðinni í
apríl. Steindi var kallaður á fund til
Pálma Guðmundssonar sjónvarps-
stjóra, en þvertekur fyrir að Pálmi
hafi reynt að hafa áhrif á ákvörðun
sína. „Hann vildi bara vita hvað var
í gangi,“ segir Steindi. „Enda bæjar-
málin í Mosfellsbæ eitthvað sem
fólk hefur litlar áhyggjur af, á ekki
eftir að spjalla meira við Gunnar í
Krossinum og Jónínu Ben?“
Steindi Jr. verður í viðtali um allt
annað en pólitík í POPPi, fylgiriti
Fréttablaðsins, á morgun. - afb
Tekur grínið fram yfir pólitíkina
HÆTTUR VIÐ Steindi Jr. ætlaði í framboð.
Sirkus Ísland sýnir í Saln-
um í Kópavogi. Fyrsta sýn-
ing er á sunnudaginn og svo
á að sýna í dymbilvikunni
og um páskana, samtals
ellefu sýningar. Sýningin
er kölluð Sirkus Sóley.
„Í fyrra settum við upp sýninguna
Stórasti sirkus Íslands í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu. Við vorum með
fimm sýningar og það var alltaf
uppselt. Síðan þá höfum við verið
að leita að stað til að sýna á og
höfum verið að vinna hugmynda-
vinnu. Svo fór þetta allt í gang í
janúar þegar við gátum fest okkur
niður á leikhús,“ segir Kristín
Thor, einn meðlima sirkusins.
„Þetta eru allt ný atriði núna.
Að mörgu leyti er þetta hefðbund-
inn sirkus með öllu sem því fylg-
ir, en við sleppum ljóninu. Það
er fast úti í Hrísey í einangrun,“
segir Kristín og hlær. Hún er með
mastersgráðu í dansi og segist
nota þá reynslu í sirkusnum. Allir
meðlimir sirkussins eru íslensk-
ir nema Ástralinn Lee Nelson.
Hann og Kristín sýna loftfimleika
saman.
„Lee kom hingað fyrir fimm
árum, er kvæntur íslenskri konu
og er eiginlega orðinn hálfíslensk-
ur. Hann hefur mikið komið fram
sem trúðurinn Wally og troðið upp
úti á götu. Það má eiginlega segja
að hann hafi kennt mér allt sem
ég kann í sirkus,“ segir Kristín.
„Hann fékk leiða á því að hafa
ekki nóg að gera hérna svo hann
stofnaði sirkusinn árið 2007.“
Kristín segir að Salurinn sé fínn
staður fyrir sirkussýningar. „Fólk-
ið á efri svölunum getur séð beint
framan í mann þegar maður er
kominn upp í fimm metrana. Ég
læt mömmu sitja þar svo ég nái
augnsambandi við hana.“
Og miðaverðið er hagstætt, 1.200
kr. á manninn. „Við hugsum þetta
þannig að fimm manna fjölskylda
geti komið og líka keypt nammi
og gos án þess að fara á hausinn,“
segir Kristín. Miðasala er hafin á
midi.is. drgunni@frettabladid.is
KRISTÍN THOR OG LEE NELSON Eða
Hekla Katla Jökulsdóttir og Massimo.
Sirkus Sóley sýnir í Salnum frá og með
sunnudegi.
Ljónið er fast úti í
Hrísey í einangrun