Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 64

Fréttablaðið - 25.03.2010, Page 64
48 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Guðjón L. Sigurðsson, formaður dómaranefndar HSÍ, skilur ekkert í því af hverju Fram kærði dómgæsluna í Evrópuleik félagsins gegn Tatran Presov sem tapaðist 38-17. Framarar vildu meina að dómgæslan hefði verið skelfileg og sökuðu dómara um mútuþægni. Þeirri kæru var vísað frá. „Ég og Kjartan Steinbach [fyrr- verandi formaður dómaranefnd- ar IHF., innsk. blm.] fórum í gegn- um þennan leik hvor í sínu lagi og svo ræddum við saman. Okkar sameiginlega niðurstaða var sú að dómgæslan var 40-60, Fram í hag,“ segir Guðjón L. við Frétta- blaðið. Framarar fóru mikinn í kjölfar þessa taps og fannst gróflega brot- ið á sér. Á heimasíðu Fram birt- ist ansi grimmur pistill sem síðar var fjarlægður. Þar stóð meðal annars: „Í kvöld klukkan sex að staðar- tíma í Slóvakíu urðum við Fram- strákar vitni að einhverjum þeim versta viðbjóði sem handbolta- sagan geymir, og vonandi á dvd- myndband eftir að sýna fleirum þarna úti hvað gerðist! Ef ykkur finnst ég harðorður þá er bara eitt að gera – fá dvd-disk frá sló- vakíska sjónvarpinu og horfa á þennan hrylling í 60 mínútur,“ segir meðal annars í greininni og síðan voru dómararnir sakaðir um mútuþægni í pistlinum. „Enginn maður dæmir svona nema hafa fengið miklar fúlgur fjár fyrir og gott fólk, ekki einu sinni reyna að fordæma mig fyrir þessu sterku orð.“ Viggó Sigurðsson, þáverandi þjálfari liðsins, lét einnig til sín taka í þessu máli og sagði við þýskan fjölmiðil, ZDF, að hann hefði séð dómarana, sem voru frá Slóveníu, sitja að sumbli með fulltrúa Tatran Presov og ung- verskum fulltrúa Evrópska hand- knattleikssambandsins á hótelbar kvöldið fyrir leik. „Það var mikið magn af víni sem flæddi þar,“ lýsti Viggó. „Og síðar komu tvær laglegar ungar konur og settust hjá þeim. Þær fóru síðan á sama tíma og dómararnir.“ Fréttamaður ZDF spurði þá Viggó hvort þetta hefðu verið vændiskonur. „Þannig leit þetta út,“ svaraði hann. Framarar fengu meðal annars að líta þrjú rauð spjöld í þessum fræga leik en Guðjón L. segir það allt eiga sínar eðlilegu skýringar. „Framararnir misstu algjörlega hausinn. Það er alveg augljóst á þessum myndum. Þeir áttu ákaf- lega dapran dag og áttu í rauninni ekki annað skilið en þessi úrslit. Svo var ákveðin framkoma og framferði í leiknum sem kostaði þá þessar ákvarðanir sem voru fyllilega réttmætar. Menn hög- uðu sér ákaflega barnalega og sérstaklega undir lok leiksins,“ segir Guðjón L. en af hverju held- ur hann að Fram hafi kært fyrst ekki var hægt að setja út á dóm- gæsluna? „Ég veit það ekki. Ég átta mig engan veginn á því. Það hefði verið skynsamlegt fyrir þá að vera ekkert að minnast á þennan leik og bara gleyma honum sem fyrst. Evrópusambandið hefur rannsak- að þetta mál og telur ekkert hæft í ásökunum Framara. Ég er sam- mála því mati.“ henry@frettabladid.is Framarar misstu hausinn og áttu ekki annað skilið Formaður dómaranefndar HSÍ skilur ekki af hverju Fram kærði dómgæsluna í Evrópuleik liðsins gegn Tatran Presov. Hann segir dómgæsluna í leiknum frekar hafa verið Fram í hag og að leikmenn liðsins hafi hagað sér barnalega. GRÓFAR ÁSAKANIR Viggó Sigurðsson, þáverandi þjálfari Fram, var með alvarlegar ásakanir í garð dómaranna eftir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kristján Guðmundsson tók við þjálfun Færeyjameistara HB eftir síðasta tímabil og líkar vel. „Aðbúnaðurinn er fínn og ég hef það gott. Það er allt gert fyrir mann hérna. Ég er á flottum og skemmtilegum stað,“ segir Kristján en fjölskylda hans býr þó ekki með honum sem stendur. „Stelpurnar mínar koma hérna á föstudaginn og verða yfir páskana. Svo koma þær aftur í sumar og framhaldið verður svo rætt á fjölskyldufundi. Ég vildi ekki taka þær úr skólan- um þessa önn.“ HB vann titilinn meistarar meistaranna á dögunum en þó hefur undirbúningstímabilið ekki gengið snurðulaust fyrir sig. „Við höfum ekki náð að spila eins marga leiki og við ætluðum. Það kom svakalegur vetur og margra sentimetra lag af snjó yfir öllu í hálfan mánuð. Við höfum hvorki knattspyrnuhöll né upphitað gervigras svo við gátum ekk- ert æft fótbolta. Það var aðeins hlaupið í snjónum meðan hann var eins og púður en svo voru það styrktaræfingar innanhúss,“ segir Kristján. Fyrsti deildarleikur HB er eftir viku en tímabilið hefst með bikarleik gegn erkifjendunum í B36 á laugardag. „Eins og sást á færeyska landsliðinu í Kórnum á sunnudag þá vantar leikæfing- una. Mér finnst óþægilegt að vera að fara í mótið og vita að liðið er ekki alveg tilbúið. Það gæti vel verið svipuð staða með hitt liðið.“ Kristján segir hóp sinn nokkuð góðan. Hann fékk Simun Samuelsen frá Keflavík og einnig Þórð Steinar Hreiðarsson frá Þrótti. Þórður finnur sig vel í Fær- eyjum. „Ég held að hann rokki feitt hérna. Ég held að hann sé í gírnum og líki þetta mjög vel. Hann þrammar fram og til baka um Þórshöfn með skeggið sitt,“ segir Kristján, sem stefnir á að vinna alla titla með liðinu og standa sig vel í Evrópukeppninni. KRISTJÁN GUÐMUNDSSON: TÍMABILIÐ HEFST HJÁ HB MEÐ BIKARLEIK GEGN B36 Á LAUGARDAG Ég er á skemmtilegum stað og hef það gott FÓTBOLTI Argentínumaðurinn Lionel Messi er búinn að moka David Beckham úr efsta sætinu yfir þá knattspyrnumenn sem hafa hæstar tekjur. Messi fær tæplega 30 milljónir punda í tekjur á ári en í þeirri tölu eru laun, bónus og aðrar tekj- ur utan vallar. Beckham og Ron- aldo koma rétt á eftir en þessir þrír eru í algjörum sérflokki á tekjulistanum. Það var bónus upp á 3,6 millj- ónir punda sem lyfti Messi yfir Beckham á listanum þetta árið. Messi er í fjórða sæti yfir tekjuhæstu íþróttamenn heims. Hann er þar á eftir Tiger Woods, Phil Mickelson og LeBron James. - hbg Tekjulistinn í fótboltanum: Messi græðir meira en Becks Á TOPPNUM Stór Meistaradeildarbónus skaut Messi á toppinn. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES RÍKASTIR Í BOLTANUM Leikmenn – tekjur í millj. punda Lionel Messi 29,6 David Beckham 27,3 Cristiano Ronaldo 27 Kaká 16,9 Thierry Henry 16,1 Ronaldinho 15,5 Carlos Tevez 13,8 Zlatan Ibrahimovic 13 Frank Lampard 12,8 Samuel Eto´o 12,4 Þjálfarar – tekjur í millj. punda José Mourinho 11,7 Roberto Mancini 10,8 Luiz Felipe Scolari 8,5 Jürgen Klinsmann 8,1 Fabio Capello 7,5 Guus Hiddink 7,1 Sir Alex Ferguson 6,5 Pep Guardiola 5,8 Arsene Wenger 5,7 Louis Van Gaal 5,4 > Danir koma í júní Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, staðfesti í gær að íslenska landsliðið í handknattleik mætir Dönum í tveimur vináttulandsleikjum hér á landi í júní. Danir eru að undirbúa sig fyrir umspilsleiki til að komast á HM en Ísland er þegar komið þar inn, þökk sé frábærum árangri á EM í Austurríki. Leikirnir í sumar eru aftur á móti eina tækifæri Íslands til þess að spila einhverja leiki áður en liðið fer að berjast fyrir þátt- tökurétti á næsta EM. Þeir leikir verða í október. FÓTBOLTI Franski vængmaðurinn hjá FC Bayern, Franck Ribery, segir að ekki komi til greina að fara frá félaginu yfir til Englands. Ribery segist eingöngu vilja fara til Barcelona eða Real Madr- id ef hann á annað borð fer frá Bayern. „Ég er ekki búinn að taka ákvörðun um framtíðina. Ég veit ekki enn hvað er best fyrir mig að gera. Ef ég aftur á móti fer frá Bayern þá fer ég til Spánar,“ sagði Ribery. - hbg Ribery óviss um framtíðina: Fer ekki til Englands HANDBOLTI Heil umferð fer fram í N1-deild karla í kvöld þar sem hæst ber slag Íslandsmeistara Hauka og Vals. Haukar eru á toppnum en Valur fyrir utan úrslitakeppn- ina sem stendur og þarf sárlega á sigri að halda. Valsliðið hefur reyndar jafn- mörg stig og liðið í fjórða sæti, FH, og er aðeins stigi á eftir liðinu í þriðja sæti, HK. FH á einnig erf- itt verkefni fyrir höndum er Grótta kemur í heimsókn en Seltirningar gerðu sér lítið fyrir og lögðu FH- inga er þeir komu síðast í Krikann. Gróttumenn eru í hörðum botnslag og þurfa því á stigunum að halda rétt eins og FH. Akureyri missteig sig gegn Gróttu í síðustu umferð og fær Fram í heimsókn í kvöld en Fram hafði verið á mikilli siglingu þar til liðið lá fyrir Haukum í síðustu umferð. Fram er á botninum og þarf mjög á sigri að halda en Akur- eyri er í öðru sæti deildarinnar. Að lokum mætast Stjarnan og HK í Mýrinni. Stjarnan vann óvæntan sigur á FH í síðasta leik og reif sig þar með upp úr botnsætinu. - hbg Fjórir leikir í N1-deild karla: Stórleikur að Ásvöllum DARRAÐARDANS Þau verða eflaust mörg skrautleg tilþrifin á Ásvöllum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.