Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 70

Fréttablaðið - 25.03.2010, Side 70
54 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR Björk Guðmundsdóttir syngur dúett í einu lagi á væntanlegri plötu Ólafar Arnalds. Lagið verður eitt þriggja sem er sungið á ensku á plötunni, hin eru á íslensku. Líkt og á fyrstu plötu Ólafar, Við og við sem kom út 2007, vann Kjart- an Sveinsson (í Sigur Rós) plöt- una með henni. Platan er tilbú- in og heitir Innundir skinni, en ekki er frágengið hvenær hún kemur út. Það gæti verið í vor eða í október. Útgefandinn, hið gamal- gróna fyrirtæki Sykurmolanna og Bjarkar, One Little Indian, gefur plötuna út. OLI gaf Við og við út í Bandaríkjunum í janúar. Þetta er fyrsti dúett Bjarkar á plötu með íslenskum listamanni síðan hún söng „Ó borg mín borg“ með KK í myndinni Sódóma Reykjavík. Hún og Ólöf eru góðir kunningjar. Í seinni tíð hefur Björk meðal annars sungið dúetta með Anthony Hegarty og Thom Yorke. Björk hefur verið að kíkja á efni á nýja plötu í hljóðverum vestanhafs, en þó er ólíklegt að ný plata með henni líti dagsins ljós á þessu ári. Ólöf er nú á fullu við að kynna sig og tónlist sína. Hún spilaði á dögunum á SXSW-hátíðinni í Austin og fékk mikla athygli. Við- tal við Ólöfu má nú sjá á forsíðu NPR (National Public Radio) útvarpsstöðv- arinnar í Bandaríkj- unum. Þar er Ísland kynnt, eins og venjan er þegar íslenskir popparar fara í viðtöl erlendis. Mest púður fer þó vitaskuld í að lýsa söng Ólafar. Hann er sagður framandi og dill- andi og tónlistin er sögð tímalaus og áhrifamikil. Ólöf kemur næst fram á Íslandi á Aldrei fór ég suður á Ísafirði um páskana. - drg 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 SJÓNVARPSÞÁTTURINN LÁRÉTT 2. sælgæti, 6. fíngerð líkams- hár, 8. fornafn, 9. bókstafur, 11. leita að, 12. orðtak, 14. urga, 16. pípa, 17. til viðbótar, 18. niður, 20. tveir eins, 21. nabbi. LÓÐRÉTT 1. munnvatn, 3. umhverfis, 4. gróðrahyggja, 5. af, 7. ólaglegur, 10. framkoma, 13. gerast, 15. sál, 16. egna, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. buff, 6. ló, 8. mér, 9. eff, 11. gá, 12. frasi, 14. ískra, 16. æð, 17. enn, 18. suð, 20. dd, 21. arða. LÓÐRÉTT: 1. slef, 3. um, 4. fégirnd, 5. frá, 7. ófríður, 10. fas, 13. ske, 15. anda, 16. æsa, 19. ðð. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8. 1 Batteríið. 2 Mínus. 3 Hamar og KR. Sundlaugin á Hofsósi sem athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir gáfu íbúum staðarins 2007 verður vígð á laugardaginn. Afrekskonan Ragn- heiður Ragnarsdóttir tekur fyrsta sundsprettinn ásamt grunnskólabörnum en mikil spenna ríkir meðal íbúa Hofsóss fyrir því að geta loksins skellt sér í sund. Lilja Pálmadóttir kvaðst ánægð með að komið væri að þessum tímamótum en tæp þrjú ár eru liðin frá því að þær Steinunn og Lilja skrifuðu undir viljayfirlýsingu um verk- efnið á kvenréttindadaginn 19. júní. „Þetta er bara skemmtilegt og gaman að þetta skuli vera búið. Nú er bara að vona að fólk eigi eftir að njóta þess,“ segir Lilja. Það var forsetafrúin Dorrit Moussa- eiff sem tók fyrstu skóflustunguna að sundlauginni í apríl 2008 en verktaka- fyrirtækið Sveinbjörn Sigurðsson sá um að reisa sundlaugina sem er með útsýni yfir til Drangeyjar. Arkitekt- inn Sigríður Steinþórsdóttir teiknaði bygginguna en innifalið í gjöfinni var vegleg þjónustumiðstöð. Upphaflega stóð til að byggingu sundlaugarinnar yrði lokið fyrir jól á síðasta ári en vegna efnisskorts tafðist það aðeins. „Ég held að krakkarnir hérna séu mest spenntir fyrir þessu og þetta verður alveg hryllilega skemmtilegt,“ segir Lilja. - fgg Laug Lilju og Steinunnar vígð ÓLÖF OG BJÖRK Syngja saman í einu lagi á væntanlegri plötu Ólafar, Innundir skinni. Björk syngur á plötu Ólafar Arnalds KOMIÐ AÐ OPNUNARDEGINUM Afrekskonan Ragnheiður Ragnarsdóttir mun vígja sundlaugina ásamt grunnskólabörnum frá Hofsósi en það eru athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir sem gáfu íbúunum hana. „Ég horfi á Gossip Girl og Desperate Housewives, þessa týpísku stelpuþætti. Elva Dögg Árnadóttir hönnuður. Tíu ára samstarfi söngkonunnar Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur og umboðsmannsins Maríu Bjark- ar Sverrisdóttur lýkur í sumar. Norskur umboðsmaður tekur þá við keflinu en söngkonan hyggst fylgja eftir frábærri frammi- stöðu í Eurovision-keppninni fyrir ári. María Björk staðfesti þetta í samtali við Fréttablaðið í gær. „Samningurinn milli mín og Jóhönnu rennur út í sumar og þá er þetta búið. Norski umboðsmað- urinn mun smátt og smátt taka við henni,“ segir María Björk og tekur fram að þetta hafi allt gerst í mesta bróðerni, engum hurðum hafi verið skellt. „Ég er með næg járn í eldinum sem er ekki tíma- bært að segja frá og hef nóg á minni könnu.“ María, sem hefur um árabil rekið Söngskóla Maríu Bjarkar, segir þessi tíu ár hafa verið mikla rússíbanareið en hún uppgötvaði sönghæfileika Jóhönnu þegar söngkonan var aðeins níu ára gömul. „Maður byrjaði nátt- úrlega með barn sem síðan varð unglingur og nú er bara komið að leiðarlokum hjá okkur og við taka ný verkefni og nýir tímar,“ segir María. Hún viðurkennir að ævin- týrið í Moskvu hafi verið ákveðinn hápunktur þar sem Jóhanna söng sig inn í hug og hjörtu Evrópubúa með Is it True? og hafnaði í öðru sæti. Jóhanna Guðrún segir að sam- starfið hafi verið gott á meðan það var og María hafi staðið sig ákaf- lega vel. „Enda sjaldgæft að svona samstarf skuli vara svona lengi,“ segir Jóhanna. Nú hafi aftur á móti verið rétti tímapunkturinn að breyta til hjá þeim báðum og halda áfram, hvor á sinni braut. Jóhanna segir norska umboðs- manninn, Eyvind Brydoy, vera feikilega virtan í sínu fagi, hann sé með á sínum snærum hljómsveitir sem hafi verið að gera góða hluti í Evrópu. „Auðvitað horfir maður til útlanda þótt auðvitað geti brugð- ið til beggja vona í þeim bransa. En þá skiptir máli að vera með góð sambönd og tengslanetið í lagi þótt ég sé ekki að segja að María hafi ekki verið með það,“ segir Jóhanna sem hefur þegar verið bókuð til að koma fram á listahátíð í Finnlandi. freyrgigja@frettabladid.is JÓHANNA GUÐRÚN: HORFIR TIL ÚTLANDA MEÐ NORSKUM UMBOÐSMANNI Samstarfi Jóhönnu Guð- rúnar og Maríu að ljúka Á GÓÐRI STUNDU Jóhanna Guðrún og María Björk á góðri stundu í Moskvu þar sem stærsti sigur þeirra vannst. Tíu ára samstarfi þeirra lýkur í sumar og þá tekur norski reynsluboltinn Eyvind Brydoy við. FRÉTTABLAÐIÐ/ALMA Endanleg útgáfa af íslenska Euro- vision-laginu Je ne sais quoi verður frumflutt í Kastljósinu í kvöld. Heimildir Fréttablaðsins herma að lagið sé talsvert breytt frá því að Íslendingar heyrðu það fyrst í und- ankeppninni, en skömmu eftir að lagið vann lýstu höfund- arnir Hera Björk og Örlygur Smári því yfir að lagið yrði gert enn þá sigurstranglegra. Örlygur hefur legið undir feldi undan- farið og leyfir þjóð- inni að heyra herlegheitin í kvöld. Heimildarmyndin Íslensk alþýða hefur verið valin inn á hina virtu heimildarmyndahátíð Hot Docs í Toronto. Höfund- ur myndarinnar er Þórunn Hafstað en myndin fjallar um verkamannabú- staðina í vesturbæ Reykjavíkur. Mynd- in verður sýnd hinn 7. maí næstkom- andi. Anita Briem og kærastinn hennar, Dean Paraskevopoulos, sóttu glæsilega opnun skemmtistaðarins Drai’s Hollywood. Anita og Dean voru þar í fríðum flokki stjarna því meðal gesta voru American Idol- stjörnurnar Ryan Seacrest og Randy Jackson. Þess er nú beðið að nýjasta mynd Anitu, Dead of Night, komi í kvikmyndahús en þar leikur hún á móti Ofurmenn- inu Brandon Routh. - afb, hdm, fgg FRÉTTIR AF FÓLKI Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.