Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 27. maí 2010 19 Þegar ég kveikti á sjónvarp-inu seint um kvöld í vetur leið, þetta var í janúar, heyrði ég viðtal við dómsmálaráðherr- ann. Tvö verkefni ráðuneytisins eru öðrum brýnni, sagði hann. Annað er að treysta sjálfstæði dómstólanna, svo að fólkið í land- inu geti borið traust til þeirra. Hitt er að berjast gegn spillingu. Hvar var ég staddur? Viltu gizka? Ég var í Moskvu. Dómsmálaráðherra Rússlands heitir Aleksandr Konovalov. Hann er rösklega fertugur að aldri og er doktor í lögum frá háskólanum í Sankti Pétursborg. Þar tók Vladimir Pútín forsætis- ráðherra lagapróf á sínum tíma og einnig Dimitri Medvedev for- seti. Lærimeistari allra þriggja hét Anatoly Sobchak, frjálslynd- ur lagaprófessor, síðar borgar- stjóri í Sankti Pétursborg. Hann leit svo á, að eina færa leiðin til að ljúka því ætlunarverki Péturs mikla keisara að leiða Rússland inn í nútímann væri að gera landið að fullburða réttarríki. Hann vildi byggja landið með lögum. Nemendur Sobchaks eru sama sinnis eins og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur hefur oft lýst í útvarpi, en hann er manna fróðastur hér heima um Rússland. Þegar Pútín velgir Vesturlöndum undir uggum með ýmsum grófum ummælum, er hann að reyna að róa kjósendur heima fyrir, segir Guðmundur. Pútín er eins og Svíar voru, þegar munnar stjórnmálamann- anna vissu í vestur, en byssu- kjaftarnir í austur. Arfleifð Gaidars Ég var sem sagt í Moskvu í jan- úar, borgin er falleg að frost- köldu vetrarlagi, og hlýddi þar á mál nokkurra helztu samstarfs- manna Medvedevs og Pútíns í efnahagsmálum. Fundurinn var haldinn í efnahagsstofnun, sem Jegor Gaidar, fyrsti forsætis- ráðherra Rússlands eftir hrun kommúnismans, stýrði til dauða- dags í desember 2009. Ég hitti hann í Moskvu fyrir átta árum, en nú er hann allur fyrir aldur fram. Hann var hægri hönd Jeltsíns forseta fyrstu þrjú árin eftir hrun, 1991-94. Honum var falið, og tókst, að leggja grunn- inn að gríðarlegum umskiptum, sem hafa skilað sér með rykkj- um og skrykkjum til fólksins í landinu við erfiðar aðstæður. Gaidar þurfti að gefast upp fyrir gömlum kommúnistum og þjóðernissinnum á þingi og fyrir spilltum og gráðugum sérhags- munaseggjum, sem tókst að sölsa undir sig umtalsverðan hluta af eignum ríkisins. Hann sagði þá af sér embætti, en hann hélt bar- áttunni áfram ótrauður innan þings og utan og náði umtals- verðum árangri. Kaupmáttur þjóðartekna á mann í Rússlandi er nú um tvisvar sinnum meiri en hann var, þegar Kommún- istaflokkurinn skildi við 1991. Meðalævi Rússa hefur lengzt um fjögur ár frá 2003 og er nú 69 ár, heilu ári lengri en 1991. Rússar eru að rétta úr kútnum. En spill- ingin er lífseig, og lífshættuleg. Hættuleg sambúð Fjármálaráðherrann í ríkis- stjórn Pútíns er fimmtugur hag- fræðingur og heitir Aleksey Kudrin. Hann flutti langa ræðu á fundinum um þörfina fyrir að reisa skorður við hollenzku veikinni til að tryggja, að olíu- auður Rússlands verði ekki til vandræða líkt og víða annars staðar í olíulöndum. Hann átti við, að sambúðin við svo mikla olíu í iðrum Rússlands hneigist til að hækka gengi rúblunnar upp fyrir eðlileg mörk og skaða með því móti aðra útflutnings- atvinnuvegi og innlendan iðnað og þjónustu. Hann lýsti einnig næmum skilningi á nauðsyn þess, að arðurinn af olíulindun- um skili sér til rétts eiganda, rússnesku þjóðarinnar, frekar en til rummunga. Þannig tala ráða- menn í Moskvu. Þetta var eins og vor um miðjan vetur. Heim til þín, Ísland Ísland vantar dómsmálaráð- herra, sem talar um nauðsyn þess að treysta sjálfstæði dóm- stólanna og beitir sér af alefli fyrir því og berst gegn spill- ingu. Ísland vantar einnig fjár- málaráðherra, sem viðurkennir nú, þótt seint sé, að útvegsmenn hefðu frá upphafi átt að greiða fyrir afnotin af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar frekar en þiggja kvótann án endurgjalds og veðsetja síðan sameignina upp í rjáfur eins og rakin fífl. Ríkisstjórn Íslands heldur áfram að mylja undir útvegs- menn, nú síðast með ókeypis úthlutun á nýjum makrílkvóta í stað þess að afla ríkissjóði tekna, sem hann sárvantar, með því að selja kvótann á uppboði. Ríkisstjórnin heldur uppteknum hætti, þótt Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hafi nú til umfjöllunar fráleita málsvörn fyrri ríkisstjórnar fyrir ítrekuð mannréttindabrot. Ætla verður, að Þjóðareign, nýstofnuð sam- tök um auðlindir í almannaþágu, fræði Mannréttindanefndina um skjalfest fjárframlög útvegs- manna til stjórnmálaflokkanna. Rússum hélzt ekki vel á einka- væðingu ríkisfyrirtækja á sínum tíma, rétt er það. En ríkisstjórn Jeltsíns forseta mátti þó eiga, að hún seldi útvegsmönnum aðgang að rússneskum fiskimiðum frek- ar en að úthluta honum ókeypis. Rússar í góðum gír Þorvaldur Gylfason Prófessor Í DAG Ríkisstjórnin heldur uppteknum hætti, þótt Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna hafi nú til umfjöllunar frá- leita málsvörn fyrri ríkisstjórnar fyrir ítrekuð mannréttindabrot. UMRÆÐAN Á VÍSI Daglegt líf í Reykjavík „Það má jafnvel segja að það stappi nærri kraftaverki að allt skuli ganga sinn vanagang í Reykjavík- urborg eftir efnahagshrunið. Við komumst varla í gegnum einn einasta dag án þess að vera minnt á þetta hrun með einhverjum hætti, en samt hefur núverandi borgarstjórnarmeirihluta tekist að halda uppi þjónustu við borgar- búa, án þess að hækka skatta og skila borgarsjóði þrátt fyrir þetta hallalausum á síðasta ári.“ Svanhildur Hólm Valsdóttir Vinstri græn framtíð „Við sem erum í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði sameinumst um félagslegar áherslur, kvenfrelsi og umhverfisvernd. Vinstri græn hafa ekki og munu ekki setja hagsmuni stórtækra verktaka eða hagsmuni hálaunafólks af því að greiða lága skatta, í forgang. Við Vinstri græn forgangsröðum ávallt í þágu barna, í þágu fatlaðra, í þágu efnaminna fólks og atvinnulausra og annarra sem eiga undir högg að sækja.“ Líf Magneudóttir Óvenjulega venjulegur „Framsetning Besta [flokksins] er á vissan hátt þversagnarkennd og póstmódernísk, en hið sama má segja um frammistöðu fimmflokks- ins á seinasta kjörtímabili í Reykja- vík. Í ljósi þess kemur gott gengi Besta í skoðanakönnunum ekki á óvart. Þrátt fyrir skringilegheitin og formleysið þá er Besti þrátt fyrir allt óvenjulega venjulegur, nákvæm- lega það sem íslensk stjórnmál þarfnast.“ Sölvi Blöndal Sjá nánar á visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.