Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 38
Um 12 % Íslendinga sem fæddir eru
1940-1950 hefur komið á Sjúkrahús-
ið Vog. Þetta eru hin svokölluðu lýð-
veldisbörn og af þessari kynslóð má
með sanni segja að karlarnir hafi
verið heldur duglegri við drykkju en
konurnar.
Um 14% af körlunum sem á lífi
eru, og eru fæddir á lýðveldisárunum
1940-1950, hefur nú þegar komið á
sjúkrahúsið Vog. Hlutfallið er heldur
lægra hjá konunum eða um 6%. Hér
eru ekki taldir þeir Íslendingar sem
hafa látist, sumir jafnvel úr áfeng-
issýki. Það er því von að sérfræðing-
ar áfengis- og vímuefnasjúkdómum
á Íslandi spyrji sig hverju við meg-
um við við búast þegar kannabis- og
amfetamínkynslóðirnar fullorðnist
og komist á aldur.
Lýðveldisbörnin drukku meira
Það er staðreynd að Íslendingar sem
fæddir eru 1940-1950 drukku miklu
meira áfengi en foreldrar þeirra,
einkum karlmennirnir. Þeir höfðu
engin tækifæri til að nota ólögleg
vímuefni því þau voru ekki komin til
landsins.
Áfengið varð því þeirra eina vímu-
efni. Þeir urðu röskir skemmtana-
drykkjumenn og sóttu öldurhúsin
stíft um helgar og orð fór af þeirra
10 maí 2010
AF HVERJU
KAUPIR ÞÚ
ÁLFINN?
Ég kaupi
klósettpap-
pír, rækjur
og lakkrís
frá krökkum
sem eru að
safna fyrir
keppnisfer-
ðalögum.
Ég kaupi
áramótabombuna hjá hjálpars-
veitunum. Og ég kaupi álfinn
frá SÁÁ. Þetta eru ekki miklir
peningar. En þetta skiptir máli.
Andri Ólafsson
fréttamaður
Ég kaupi
álfinn til að
styðja við
nauðsynlegt
starf til
styrktar
unga fólkinu
okkar. Ég
þekki það af
eigin reynslu
hversu mik-
ilvægt það er
að komast í meðferð við þessum
lævísa sjúkdóm. Kauptu álf, og
jafnvel tvo, ég geri það.
Linda Pétursdóttir
framkvæmdarstjóri
Við sem þekkjum hörmulegar
afleiðingar vímuefnaneyslu fyrir
ungt fólk og fjölskyldur þess,
erum afar þakklát fyrir ómet-
anlega umönnun og aðhlynn-
ingu SÁÁ. Þess vegna kaupum
við álfinn til að styrkja þetta
þjóðþrifastarf.
Njörður P. Njarðvík,
prófessor emeritus
Ég kaupi
álfinn vegna
þess að
málefnið er
þess virði að
styðja það
í verki. Því
miður lendir
samdrátt-
urinn í skatt-
pyngjuríkis-
sjóðs á SÁÁ
einsog öðrum og þótt ég hefði
kosið að samtök á borð við SÁÁ
þyrftu ekki að reiða sig á söfn-
unarfé þá er sú raunin kannski
fremur nú en endranær. Ég hef
grun um að ýmis fyrirtæki sem
stutt hafa við bakið á SÁÁ séu
ekki aflögufær, jafnvel horfin út
úr tilverunni. Eftir stöndum við
hvert og eitt sem varla viljum
skilja SÁÁ eftir á berangri. Þess
vegna mun ég kaupa álfinn og
hvet aðra til að gera slíkt hið
sama.
Ögmundur Jónasson
alþingismaður
Ég vil ekki
að SÁÁ verði
eins og álfur
út úr hól.
Til að forða
því þarf
starfsemin
fjárstuðning.
Ég vil skjól
fyrir álfa og
menn. SÁÁ
er mörgu
fólki lífsnauðsynlegt skjól.
Kristján Þór Júlíusson
þingmaður
U-HÓPURINN
U-hópurinn er opinn meðferð-
ar- og stuðningshópur á mánudög-
um og miðvikudögum milli 18:00
og 19:00 í Von, Efstaleyti, og er fyrir
unglinga sem hafa lent í vandræð-
um vegna neyslu vímuefna. Ekki er
nauðsynlegt að hafa verið á Vogi til
að taka þátt í hópnum en gott er að
tala við ráðgjafa í göngudeild áður.
Síðasta mánudag í mánuði borðar
hópurinn saman eftir hópvinnu.
VIÐTALSÞJÓNUSTA
Ráðgjafi á vakt sinnir viðtölum við
fíkla og aðstandendur þeirra á virk-
um dögum. Ekki er nauðsynlegt að
hringja á undan sér og panta viðtal.
Best er að koma á bilinu 13:00 til
16:00. Síminn er 530 7600 en viðtöl-
in fara fram í Von, Efstaleyti 7.
LOKUN FRESTAÐ
Nú nýlega ákvað Akureyrarbær að
leggja göngudeild SÁÁ
til 50% af kostnaði og
því ákvað framkvæmd-
arstjórn SÁÁ að fresta
lokun sem átti að koma
til framkvæmda 1. júní.
Kostnaður við göngudeildar-
starfið er áætlaður rúmlega 100
milljónir króna og fyrir norðan verð-
ur sérstakt átak í álfasölunni til að
tryggja rekstur göngudeildarinnar.
10
14
18
HLUTFALL LIFANDI EINSTAKLINGA SEM HÖFÐU
KOMIÐ ÚR HVERJUM ÁRGANGI Á VOG Í LOK ÁRS 2009
KARLAR KONUR
0%
2%
4%
6%
8%
%
12%
%
16%
%
1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947 1948 1949 1950 1951 1952 1953 1954 1955
fylliríum á hinum Norðurlöndun-
um og á sólarströndum. Þessi kyn-
slóð jók áfengisneyslu landsmanna
um heilan lítir af hreinum vínanda
á mann fyrir tvítugt. Þegar hún svo
komst á þing og til valda braut hún
niður bindindisstefnuna og létti á
hömlum á dreifingu, sölu og neyslu
áfengis.
Æskublómin er nú farin
Margt af þessum lýðveldisbörnum
leituðu sér áfengismeðferðar um
30 ára aldurinn og sækja nú síðustu
árin með vaxandi þunga á sjúkra-
húsið Vog vegna dagdrykkju. Aðal
æskublómin er nú af þessu fólki farin
og áfengi miklu hættulegra en áður.
Það er því í mikilli hættu að hljóta
af drykkjunni tauga- og heilaskaða
og fylgikvilla í lifur og bris. Drykkja
þeirra, sem áður olli slysum og auk-
inni þörf fyrir löggæslu, veldur nú
vaxandi kostnaði fyrir heilbrigð-
isstofnanir. Það er því forvitnilegt
að skoða gagnagrunnin á Vogi sjá
hversu margt af þessu fólki hefur
þurft að leita sér áfengis- og vímu-
efnameðferðar á Sjúkrahúsið Vog.
Um leið sést líka hversu áfengið eitt
og sér kemur mörgum í meðferð.
DRYKKJA
ÞEIRRA, SEM
ÁÐUR OLLI
SLYSUM OG
AUKINNI ÞÖRF
FYRIR LÖGGÆSLU,
VELDUR NÚ VAXANDI
KOSTNAÐI FYRIR
HEILBRIGÐIS-
STOFNANIR
Hin svokölluðu LÝÐVELDISBÖRN, sem fædd eru á árunum 1940-1950, drukku mun meira en foreldrar sínir.
Samkvæmt tölum frá sjúkrahúsinu Vogi hafa meira en einn af hverjum tíu af þessari kynslóð komið í meðferð.
Lýðveldisbörnin á Vogi
LÝÐVELDISBÖRNIN Þessi kynslóð
jók áfengisneyslu landsmanna um
heilan lítir af hreinum vínanda á mann
fyrir tvítugt. Þegar hún svo komst
á þing og til valda braut hún niður
bindindisstefnuna og létti á hömlum á
dreifingu, sölu og neyslu áfengis.
HÁTT HLUTFALL ENDAR Á VOGI Um 14% af körlunum sem á lífi
eru, og eru fæddir á lýðveldisárunum 1940-1950, hefur nú þegar komið á
sjúkrahúsið Vog. Hlutfallið er heldur lægra hjá konunum eða um 6%.