Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 6
6 27. maí 2010 FIMMTUDAGUR
Hefur þú rætt beint við ein-
hvern af frambjóðendunum
fyrir sveitarstjórnarkosningarn-
ar í þínu sveitarfélagi?
JÁ 30,6%
NEI 69,4%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Fylgdist þú með undankeppni
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva á þriðjudagskvöld?
Segðu þína skoðun á visir.is
SAMGÖNGUR Flugfélagið Ernir
ætlar að hefja áætlunarflug milli
Reykjavíkur og Vestmannaeyja
í byrjun ágúst. Félagið ætlar að
kaupa nítján sæta skrúfuþotu til að
anna flugleiðinni en slík vél kost-
ar rúmlega milljón dali, jafnvirði
130 milljóna króna. Er hún vænt-
anleg til landsins í júlí, „ef guð og
góðir menn lofa“ eins og Hörður
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
félagsins, orðar það.
Ríkið lætur af stuðningi sínum
við flug milli Vestmannaeyja og
Reykjavíkur í lok júlí, en þá flyst
áfangastaður Herjólfs á fastaland-
inu frá Þorlákshöfn til Landeyja-
hafnar. Flugfélag Íslands hefur
notið ríkisstyrksins undanfarin ár
en hann nam 124 milljónum króna
á síðasta ári.
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir
ekki grundvöll fyrir áframhald-
andi flugi félagsins eftir að styrk-
urinn verður aflagður. „Þrátt fyrir
ágætan árangur við að fjölga far-
þegum er kostnaðurinn enn of mik-
ill og farþegafjöldinn ekki nægur
til að þetta standi undir sér,“ segir
hann. Farþegum hafi fjölgað mjög;
úr innan við tuttugu þúsund árið
2006 í 34 þúsund í fyrra.
Árni segir miklum fjármunum
hafa verið varið til markaðsstarfs,
bæði af hálfu Flugfélagsins og
Vestmannaeyjabæjar. Synd sé að
ekki sé hægt að fylgja því starfi
eftir.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, fagnar áhuga
Ernismanna enda skipti öflugar
flugsamgöngur Eyjasamfélagið
miklu máli. Hann er ósáttur við
ákvörðun ríkisins um að slá ríkis-
styrkinn af með öllu en telur eðli-
legt að hann hefði minnkað um tíu
til tuttugu prósent eins og almennt
sé um ríkisútgjöld í niðurskurðar-
aðgerðum stjórnvalda.
Hörður Guðmundsson hjá Erni
bendir á að Vestmannaeyjaflug
hafi ýmist verið styrkt eða ekki
í gegnum árin. „Nú á að reyna að
gera þetta á við-
skiptalegum
forsendum eins
og eðlilegt er,“
segir hann.
Ráðgert er að
fljúga þrisvar
til fjórum sinn-
um á dag milli
lands og Eyja
yfir sumartím-
ann og tvisvar
til þrisvar yfir veturinn. Ferðum
verði fjölgað eða fækkað í sam-
ræmi við eftirspurn. Að sögn Harð-
ar er viðbúið að dýrasta farið kosti
um átta þúsund krónur en í boði
verði tilboðspakkar af ýmsu tagi.
Fargjöld Flugfélagsins hafa kostað
frá rúmum fimm og upp í tíu þús-
und krónur. bjorn@frettabladid.is
Ernir kaupir milljón
dala vél til Eyjaflugs
Flugfélagið Ernir hefur áætlunarflug milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja í ág-
úst. Þá hættir ríkið að styrkja flugleiðina og Flugfélag Íslands leggur af sitt flug.
HEIMAEY 124 milljóna króna ársframlag ríkisins til flugs milli lands og Eyja fellur
niður í lok júlí þegar Herjólfur byrjar að sigla til Landeyjahafnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P.
HÖRÐUR
GUÐMUNDSSON
ÁRNI
GUNNARSSON
ELLIÐI VIGNISSON
Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má
nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar.
Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti
eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að
bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á
öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir
sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis
Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is
Ég man
ekki up
pskrifti
na
en ég m
an í hv
erju
ég var
þegar é
g eldað
i
MBA
“In a world full of MBA
programmes this one is a real
gem. Clearly world-class.”
Dr. David Griswold, kennari við
Boston University og Háskólann í Reykavík
www.hr.is/mba
FJÁRFESTU Í SJÁLFUM ÞÉR!
ALÞJÓÐLEGT
NÁM MEÐ VINNU
DÓMSTÓLAR Þrír menn hafa verið
dæmdir til fangelsisrefsingar
fyrir brot gegn frjálsræði, lík-
amsárás og tilraun til fjárkúg-
unar. Einn þeirra var dæmdur í
fimmtán mánaða fangelsi, annar
í tuttugu mánuði og sá þriðji í
fimm mánaða fangelsi.
Tveir mannanna voru sakfelld-
ir fyrir alla ákæruliðina sem að
ofan greinir. Þriðji maðurinn var
sakfelldur fyrir allt nema líkams-
árás.
Mönnunum var gefið að sök
að hafa í mars 2009 svipt mann í
Reykjavík frelsi sínu. Þeir leiddu
hann nauðugan að bif-
reið og ýttu honum í
farangursrými hennar.
Einn mannanna ók síðan
í Öskjuhlíð á meðan hinir
kýldu hinn frelsissvipta
ítrekað í andlitið.
Í Öskuhlíð tóku þremenn-
ingarnir manninn úr bíln-
um og misþyrmdu honum
með höggum og spörkum. Einn
þeirra sló hann með steini og
annar klippti með garðklippum
í litla fingur annarrar handar
hans.
Enn fremur létu mennirnir
fórnarlambið hringja í syst-
ur sína. Þeir hótuðu henni
að beita bróðurinn frek-
ara ofbeldi ef hún borg-
aði þeim ekki hálfa
milljón. Þeir skildu
m a n n i n n s vo
lemstraðan eftir
við slysadeild
Landspítala.
- jss
Þrír menn dæmdir í fangelsi fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun:
Beittu garðklippum á fingur manns
GARÐKLIPPUR Þrír voru í gær dæmdir fyrir
að pynta mann með garðklippum.
DÓMSMÁL Þinghald yfir nímenn-
ingunum, sem ákærðir hafa verið
fyrir innrás á Alþingi í búsáhalda-
byltingunni í desember 2008, hefur
verið boðað 29. júní klukkan hálf
níu. Ragnar Aðalsteinsson, einn
verjenda nímenninganna, kveðst
aldrei fyrr hafa verið boðaður til
þinghalds klukkan 8.30, hvorki í
Héraðsdómi Reykjavíkur né Bæj-
arþingi Reykjavíkur þar áður.
„Þetta er ný reynsla,“ segir
hann. Í þinghaldinu mun verjend-
um gefast kostur á að leggja fram
skriflegar greinagerðir, að sögn
Ragnars sem telur jafnframt lík-
legt að hann muni svara bókunum
ákæruvaldsins varðandi gagna-
öflun.
Réttarhöldin yfir nímenningun-
um hafa verið með nokkuð óvenju-
legum hætti þar sem mikil aðsókn
hefur verið að þeim og fólki vísað
út sem ekki hefur fengið sæti í
dómsal. Þá hefur lögregla verið
kvödd til og Ragnar gert athuga-
semdir við að lögreglumenn væru
viðstaddir þinghaldið.
Aðstandendur nímenninganna
og stuðningsmenn hafa hins vegar
gert kröfu um að fá að vera við-
staddir þinghald í málinu. - jss
Nímenningarnir í Alþingismálinu boðaðir í Héraðsdóm Reykjavíkur:
Þinghald á óvenjulegum tíma
VIÐ DÓMSALINN Fjöldi fólks vildi komast inn í dómsalinn við síðasta þinghald yfir
nímenningunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
IÐNAÐUR Kynningarfundir um
Ísland í tengslum við markaðs-
átakið Inspired by Iceland verða
haldnir á helstu markaðssvæð-
um ferðaþjónustunnar í Evrópu
í þessari viku, að því er fram
kemur á vef Ferðamálastofu.
„Fundirnir verða fyrir erlenda
blaðamenn og ferðaþjónustuaðila
í Mílanó, Barcelona, Frankfurt,
París, Amsterdam, Kaupmanna-
höfn, Stokkhólmi og Ósló. Gert
er ráð fyrir fundum í Bandaríkj-
unum í framhaldinu,“ segir jafn-
framt á vefnum. - óká
Ísland kynnt í Evrópu:
Fjallað um eld-
gos og ferðamál
KJÖRKASSINN