Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 58
30 27. maí 2010 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Poppheimurinn er alltaf að verða hvikulli. Ef ný hljómsveit nær að vekja athygli á sér á einni af aðal tónlistarhátíðunum eða á víðlesnum tónlistarvef eru músikpælarar úti um allan heim strax búnir að frétta af því og ef viðkomandi stendur undir væntingum fylgja fjölmiðlarnir í kjölfarið. Þessi pistill er dæmi um það. Hljómsveitin Sleigh Bells frá Brooklyn er skipuð þeim Derek Miller og Alexis Krauss. Þau hittust árið 2008 og byrjuðu að vinna saman að tónlist. Derek semur lög, spilar á gítar og tekur upp, en Alexis syngur. Þau vöktu mikla athygli á CMJ-tónlist- arhátíðinni í New York í októ- ber 2009 og í kjölfarið tók tón- listarkonan M.I.A. þau upp á sína arma og sendi myndbönd með þeim að spila á tónleikum úti um allar trissur. Þannig heyrði ég fyrst í þeim. Nú, örfáum mánuðum seinna, er svo fyrsta plata sveitarinnar, Treats, að koma út og tónlistarmiðlar keppast um að lofa hana. Pitchforkmedia gefur henni t.d. 8.7/10 og meðaleinkunn hennar á Metacritic er 89/100. Sleigh Bells er líka bókuð á flottustu tónlistarhátíðirnar, er t.d. að spila á Primavera Sound í Barcelona í kvöld. Og standa Derek og Alexis undir lofinu? Já, já. Treats er fín plata. Tónlistin er fersk og skemmtilegt blanda. Pitchfork talar um „gítarriff úr pönki og metal, millihraða takta úr hip-hoppi og elektró og ofur- grípandi syngdu-með viðlög“. Það er ágæt lýsing. Fínt að byrja á því að tékka á lögum eins og Crown on the Ground og Tell Em. Það er erfitt að geta sér til um það hvort það verði enn talað um Sleigh Bells eftir eitt eða tvö ár. Það veit samt á gott að M.I.A. fékk Derek Miller til að vinna með sér á nýju plötunni sem er væntanleg í næsta mánuði. Það heitasta þessa vikuna … SJÓÐANDI HEIT Sleigh Bells eru þau Derek Miller og Alexis Krauss. > Í SPILARANUM Band of Horses - Infinite Arms Í svörtum fötum - Tímabil Paul Weller - Wake up the Nation We Are Scientists - Barbara Dr. Dog - Shame, Shame BAND OF HORSES DR. DOG > Plata vikunnar Quadruplos - Quadruplos ★★★★ „Flottur hljómur, dýnamík og tryll- ingur einkenna þessa fyrstu plötu Quadruplos.“ TJ ■ Livin’ la Vida Loca skaust á toppinn í Bandaríkjunum hinn 8. maí árið 1999. ■ Lagið hélt toppsætinu í fimm vikur þar til Jennifer Lopez velti Ricky af stallinum. ■ Þetta lag er talið hafa rutt brautina fyrir latínó-poppara á borð við Lopez, Enrique Iglesias og Shakiru. ■ Ricky Martin varð í kjölfarið stórstjarna í poppinu og hefur selt yfir 60 milljón plötur um allan heim. ■ Einkalíf Ricky Martin hefur lengi verið til umfjöllunar í fjölmiðl- um. Hann þvertók um árabil fyrir að vera samkynhneigður og sagði að sögur þess efnis væru sprottnar frá óvinum sínum. ■ Í lok mars á þessu ári tilkynnti Martin á heimasíðu sinni að hann væri samkynhneigður. „Ég er heppinn samkynhneigður maður. Ég nýt blessunar.“ TÍMAVÉLIN RICKY MARTIN Á TOPPINN ÁRIÐ 1999 Ricky kemur sér á kortið Breska rokksveitin The Rolling Stones á vinsælustu plötuna í Bret- landi í fyrsta skipti í 16 ár. Um er að ræða endurútgáfu á hinni vin- sælu plötu Exile On Main Street. Platan kom fyrst út árið 1972 en er nú endurútgefin með áður óút- gefnum lögum. Það var árið 1994 sem Stones komst síðast á topp- inn í Bretlandi, þá með Voodoo Lounge. Exile On Main Street er endur- útgefin vegna útgáfu á heimildar- mynd um gerð plötunnar. „Þessar vinsældir sanna að tónlist Stones er jafn öflug í dag og þegar hún var samin,“ segir David Joseph, stjórnarformaður Universal í Bret- landi, útgáfufyrirtækis The Roll- ing Stones. Stones á toppnum THE ROLLING STONES Gömlu mennirnir eru enn vinsælir. Frá vinstri eru Mick Jagger, Ron Wood, Keith Richards og Charlie Watts. Brimbrettakappinn hug- ljúfi, Jack Johnson, syng- ur inn sumarið með sinni sjöttu plötu, To The Sea, sem kemur út á þriðjudag- inn. Jack Johnson segir að titill plöt- unnar vísi til þess þegar faðir leið- ir son sinn í átt til sjávarins þar sem sjórinn tákni undirmeðvit- undina. „Platan snýst um að fara undir yfirborðið og læra að þekkja sjálfan sig,“ segir hann. „Ég á þrjú börn, þannig að platan snýst dálít- ið um fjölskyldumál. Bæði um mig sem son föður míns og með hvaða augum ég horfi á börnin mín. Ég er 34 ára og er á ákveðnum tíma- mótum í lífinu þar sem mér líður stundum eins og barni en stundum eins og föður. Platan snýst um alla þessa hluti.“ Johnson fæddist á Hawaii árið 1975. Faðir hans var mikill brim- brettakappi og ungur að árum fylgdi sonurinn í fótspor hans. Johnson vakti fljótt athygli fyrir hæfileika sína og gerðist atvinnu- maður í faginu. Sá ferill stóð stutt yfir því þegar hann var sautján ára lenti hann í slæmu brimbretta- slysi. Hann vatt kvæði sínu í kross, útskrifaðist með kvikmyndagráðu frá Kaliforníuháskóla og sneri í auknum mæli að tónlistinni í frí- stundum sínum, þar sem Bob Dylan, Ben Harper og Jimi Hendr- ix voru á meðal áhrifavalda. Það var einmitt upptökustjóri Bens Harper, J.P. Plunier, sem fékk prufuupptökur frá Johnson í hend- urnar og ákvað að taka upp fyrstu plötuna hans, Brushfire Fairyta- les. Síðan þá hefur aðdáendahópur Jack Johnson stækkað með hverri plötunni og hafa þær nú selst í hátt í tuttugu milljónum eintaka, þrátt fyrir að gagnrýnendur hafi ekki allir verið sammála um ágæti hans. Vinsældirnar koma samt ekki á óvart því tónlistin er sér- lega sumarleg og léttleikandi og textarnir eru flestir uppfullir af bjartsýni, ást og gleði. Johnson er mikill umhverfisvernd- arsinni og til að mynda var nýja platan tekin upp í tveimur hljóð- verum hans í Hawaii og í Los Ang- eles sem eru bæði knúin áfram af sólarorku. Síðastliðinn mánudag ákvað hann svo að kynna plöt- una með því að halda tónleika við strönd borgarinnar Santa Monica í Los Angeles þar sem gestir voru hvattir til að hreinsa ströndina í leiðinni. Johnson hefur í nógu að snúast í sumar við að fylgja nýju plötunni eftir. Tónleikaferð um heiminn hefst um miðjan júní og á meðal viðkomustaða verða Hróarskeldu- hátíðin og Glastonbury á Englandi. freyr@frettabladid.is Jack fer á bólakaf JACK JOHNSON Brimbrettatöffarinn söngelski er að gefa út sína sjöttu plötu, To The Sea. NORDICPHOTOS/GETTY Plöturnar: To The Sea (2010) Sleep Through The Static (2008) Sing-A-Longs and Lullabies For The Film Curious George (2006) In Between Dreams (2005) On And On (2003) Brushfire Fairytales (2001) Vinsæl lög: Flake (Brushfire Fairytales) Sitting, Waiting Wishing (In Bet- ween Dreams) Upside Down (Curious George) Angel (Sleep Through The Static) You And Your Heart (To The Sea) Heimildarmyndir: Thicker Than Water (2000) The September Sessions (2002) FRÁ JACK JOHNSON: ÆVINTÝRI ÚR SKÓGINUM Skemmtileg saga um snjalla mús og hræðilega ófreskju. Litrík bók í bundnu máli sem farið hefur sigurför um heiminn. Þórarinn Eldjárn þýddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.