Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 33
Að þessu sinni bjóðum við
upp á álfapar,“ segir Ómar
Valdimarsson, verkefna-
stjóri álfasölu SÁÁ, en yfir-
skrift álfasölunnar er: „Álf-
urinn – fyrir unga fólkið.“
Enda verður öllum hagn-
aði af sölunni verið til að
efla unglingadeildina á
Sjúkrahúsinu Vogi. Oft hefur verið
þörf en nú er nauðsyn.
„Við munum selja álfinn alla
helgina og hvetjum sölufólk, ein-
staklinga og félagasamtök, að hafa
samband við okkur í gegnum heima-
síðu SÁÁ, www.saa.is eða í síma
530-7600.
Álf-
urinn
tákn um
hið góða
„Það hefur komið í ljós að það skil-
ar ótrúlegum árangri að heita á Álf-
inn,“ segir Ómar Valdimarsson og
er ekki að grínast. „Álfur- inn
er tákn um að maður stendur
með lífinu frekar en dauðanum
og maður er til í að leggja sitt af
mörkum til að gefa ungu fólki kost
á að lifa mannsæmandi lífi.“ Það
eru nú þegar yfir 20 þúsund manns
í landinu sem hafa farið í gegnum
meðferð hjá SÁÁ og þeir geta allir
vitnað um þetta. Það sama gildir um
fjölskyldur þeirra því enginn alkó-
hólisti er einn, jafnvel þótt þeir telji
sjálfir að svo sé á meðan þeir eru í
neyslu.
„Mín eigin meðferð um árið
hafði þannig bein – og góð – áhrif
á að minnsta kosti tuttugu manns,“
segir Ómar í baráttuhug.
FH sigursælt og söluhæst
Hin ýmsu félagasamtök og íþrótta-
félög hafa verið dugleg við að nota
álfasölu SÁÁ til að styrkja starf unga
fólksins. Þannig hefur íþróttafélagið
05maí 2010
Áheit á álfaparið
ÓMAR VALDIMARSSON, verkefnastjóri álfasölu SÁÁ, er ekki í vafa um dulmagnaðan kraft álfanna sem SÁÁ selur á hverju ári. Hann
mælir með áheitum á álfinn og segir það skila árangri. Svo bendir hann á að FH-ingar hafi verið hvað duglegastir að selja álfinn síðustu ár og
árangurinn hefur ekki látið á sér standa hvað Íslandsmeistaratitla í knattspyrnu varðar. Og þau hjá FH ætla að selja fleiri álfa í ár en síðustu ár.
HILMAR KRISTENSSON
NÝFERMDIR
KRAKKAR
ERU AÐ
KOMA Í
MEÐFERÐ OG
SUM ANSI ILLA FARIN
AF LANGVARANDI
NEYSLU ÁFENGIS
FH verið söluhæst undanfarin ár.
Ómar er ekki undrandi á að árang-
urinn skili sér alla leið upp í meist-
araflokk þar sem FH-ingum hefur
gengið einna best, sér í lagi í meist-
araflokki karla í knattspyrnu.
„Og í ár leggjum við allt undir og
bjóðum upp á álfapar. Karlar geta
keypt sér álfkonu, konur álf – eða öf-
ugt. Þetta er ekki mikill peningur –
1500 krónur fyrir stykkið eða 3000
krónur fyrir parið.“
Allur peningurinn fer, sem fyrr
segir, í að efla unglingadeildina á
Vogi og veitir ekki af. Það er allt-
af að fjölga því unga fólki sem leit-
ar til SÁÁ – og það hræðilega er að
aldurinn er að færast neðar. Ný-
fermdir krakkar eru að koma í með-
ferð og sum ansi illa farin af lang-
varandi neyslu áfengis eða annarra
vímuefna. Kreppan kemur illa niður
á þessum krökkum og mikilvægt að
Vogur skeri ekki niður þjónustu við
unga fólkið.
HILMAR OG ÁLFARNIR Um helgina hefst álfasala SÁÁ en þetta er í 22.
sinn sem SÁÁ selur álfinn. Hér er Hilmar (í miðið) ásamt félögum sínum Ómari
Valdimarssyni (til vinstri) og Ágústi Jónatanssyni (til hægri).
VOGUR Allur peningurinn sem safnast fer í að
efla unglingadeildina á Vogi og veitir ekki af. Það
er alltaf að fjölga því unga fólki sem leitar til SÁÁ.
ÁLFAPARIÐ
„Karlar geta keypt
sér álfkonu, konur
álf – eða öfugt,“ segir
Ómar Valdimarsson
verkefnastjóri.
HRINGJA Í 907-1500
MYND: GUNNAR GUNNARSSON