Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 HÁIR HÆLAR virðast ekki aðeins vinsælir meðal kvenna. Í auk- ana færist að karlmenn nýti sér hælaskó og er talið að menn á borð við Karl Lagerfeld og Nicolas Sarkozy noti hæla til að sýnast stærri, auk þess sem hönnuðirnir Gareth Pugh og Marc Jacobs hafa viðurkennt að hafa notað kvenmannshælaskó. „Þessi kjóll er fyrsta sumarlega flíkin sem ég hef keypt fyrir sum- arið en ég er mikið fyrir hlýra- lausa kjóla á sumrin, þótt ég hafi aldrei fyrr keypt mér blómakjól. Á honum eru semalíusteinar sem gera hann fínan, en það er hægt að dressa hann niður með skyrtu utan yfir,“ segir Gríma um skvísulegan kjól úr Dúkkuhúsinu. Gríma er með skemmtilegri stelpum enda kosin vinsælust í bæði Ungfrú Ísland og Reykjavík. „Ég hef strákalegri húmor og er aðeins furðulegri en hinar stelp- urnar,“ segir strákastelpan Gríma sem fékk óvænt boð um keppni í Fegurðarkeppni Íslands eftir að vinkona hennar skráði hana inn. „Ég ákvað þá að slá til og prófa eitthvað nýtt, og fannst keppn- in allsherjar upplifun. Hún er alls ekki eins ströng og margir halda og ég þurfti ekki að skrifa upp á samning um að missa ein- hver aukakíló. Áherslan var helst á sjálfstraust og framkomu, sem kom sér vel því ég var frekar feim- in fyrir keppnina,“ segir Gríma sem er nýstúdína af málabraut Menntaskólans við Hamrahlíð. „Ég hef mikinn áhuga á erlend- um tungumálum og menningu, og ætla enda ekki að búa mikið lengur á Íslandi. Ég flyt til Kaupmanna- hafnar í næstu viku þar sem við þrjár vinkonur höfum leigt okkur íbúð og ætlum að finna vinnu í sumar. Ég er svo haldin mikilli ævintýraþrá og í sumarlok ætlum við að leggja land undir fót fyrir sumarlaunin,“ segir Gríma sem frá unga aldri hefur fylgst með feg- urðarsamkeppnum til gamans. „En ég bjóst aldrei við að standa á sviðinu sjálf, enda ekki fyrr með- tekið skilaboð um að vera nógu sæt til að keppa í slíkum sætleika,“ segir Gríma og skellir upp úr, enda slétt sama um álit annarra. „Fata- stíllinn fer eftir veðri og skapi. Ég spái lítið í hvað öðrum finnst en fer í það sem mér finnst flott hverju sinni.“ thordis@frettabladid.is Ofurkvenleg strákastelpa Fegurðardísin Gríma Þórðardóttir er tvítug, kát og ævintýragjörn Vesturbæjarmær sem um liðna helgi var kosin vinsælasta stúlkan meðal íðilfagurra og íturvaxinna stallsystra sinna í Fegurðarsamkeppni Íslands. Gríma Þórðardóttir í nýja sumarkjólnum með senjórítulega eyrnalokka sem hún gengur með bæði hvunndags og spari, enda heilluð af spænskri menningu og tísku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Listh STILLANLEG RÚM HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR Queen rúm með botni kr. 179.900 SAGA, ÞÓR OG VALHÖLL Heilsudýnur á frábæru verði. Queen rúm með botni frá kr. 99.900 Gleðilegt sumar! www.svefn.is 2x90 cm – Verð frá 349.900 Sérverslun með Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is NÝ SENDING FRÁ K&S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.