Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 46
27. MAÍ 2010 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ●tjöld og útilega
Geir Gígja, sem fer í þó nokkrar
útilegurnar yfir sumartímann,
segir að félagsskapurinn í
útilegum sé stór hluti skemmt-
unarinnar.
„Við höfum stundað það að fara í
útilegur í líklega tíu ár,“ segir Geir
Gígja útileguáhugamaður sem
rekur vefinn www.tjalda.is ásamt
Jónínu Einarsdóttur, eiginkonu
sinni. „Við eigum þrjú börn á aldr-
inum þriggja til tólf ára sem geta
ekki beðið eftir sumrinu til þess að
komast í fyrstu útilegurnar.“
Geir segir að fjölskyldan hafi
að vísu ekki farið enn í fyrstu úti-
legu sumarsins. „Við komumst
ekki um síðustu helgi en lágum
heima og kvöldumst í staðinn,“
segir Geir brosandi. „Við vænt-
um þess að fara jafnvel um næstu
helgi. Við erum að spá í að fara
eitthvað tiltölulega stutt þar sem
við getum mögulega laumast í
sjónvarp til að fylgjast með kosn-
ingunum. Fossatún gæti orðið
fyrir valinu.“
Aðspurður segir Geir að fjöl-
skyldan hafi farið í útilegur allar
helgar í fyrrasumar nema eina.
„Þetta er bara svo gaman. Gott
veður, úti í náttúrunni í góðum
félagsskap, jafnvel þótt við séum
að fara bara í stuttan tíma með
tilheyrandi veseni við að taka sig
til þá er þetta samt sem áður svo
mikil afslöppun,“ segir Geir sem
hefur notað fellihýsi, tjaldvagn og
tjald í útilegunum.
Fyrir styttri útilegur fer fjöl-
skyldan á Suðurland, Vesturland
og Norðvesturland. „Síðan er
voðalega gaman að fara í lengri
ferðalög og fara þá Vestfirðina,
lengra inn á Norðurlandið eða
bara hringinn,“ segir Geir og
rifjar upp eina eftirminnilegustu
ferð fyrrasumars: „Það var rosa-
lega gaman um verslunarmanna-
helgina. Við fórum á Hellishóla
og keyrðum aðeins upp á hálend-
ið í frábæru veðri. Það er sú ferð
sem stendur upp úr eftir sumar-
ið í fyrra.“
Geir segir fjölskylduna reyna
að velja tjaldsvæði sem þau hafa
ekki prófað áður en markmið-
ið sé að fara á öll 180 tjaldsvæð-
in á vefnum tjalda.is. „Við erum
ábyggilega komin upp í einhver
sextíu til sjötíu tjaldsvæði á þess-
um tíu árum.“ - mmf
Útilegur mikil afslöppun
Geir Gígja telur sig hafa prófað um sextíu til sjötíu tjaldsvæði á tíu árum en hér er hann í Þakgili ásamt Lenu Rut, dóttur sinni. MYND/ÚR EINKASAFNI
Góður svefnpoki er nauðsynlegur
í útileguna. Hérna eru nokkur ráð
til að velja rétta pokann.
Margar gerðir eru til af svefn-
pokum en fyrir þá sem hreyfa
sig mikið í svefni geta nokkr-
ir aukasentimetrar við axlirnar
gert gæfumuninn. Þeir sem þurfa
minna pláss geta þá valið sér
þrengri poka.
Þegar hitastig pokans er valið þá
er sniðugt að velja poka sem hefur
fimm til tíu gráða meira kuldaþol
heldur en búist er við
að lenda í.
Við val á efni
pokans er dún-
poki sniðugur
ef þyngd og
pláss skipta
miklu máli
en ga l l -
inn er hins
vegar sá
að blautur
dún-svefn-
poki verð-
ur mjög kald-
ur. Svefnpoki
úr gerviefni
er því sniðug-
ur við þær að-
stæður.
Heimild:
www.alparnir.
is.
Nokkur ráð við
val á svefnpoka
Margar mismun-
andi gerðir eru til af
svefnpokum.