Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 32
04 maí 2010 AF HVERJU KAUPIR ÞÚ ÁLFINN? Það er ein- hver kátína og kanvísi yfir álfinum. Að minnsta kosti kemur hann mér í gott skap. Það er bæði gott að horfa á hann og þreifa á honum. Það er gott að hafa álfinn með í för. Einn þekki ég sem alltaf er með fimm álfa í för með sér. Samt trúir hann ekki á álfa. Ég kaupi alltaf álf, og stundum álfa, því álfurinn ber með sér birtu og von. Þeim peningum er vel varið, því starf SÁÁ er starf sem ber raunverulegan árangur. Líf ungmenna, sem ná að snúa blaðinu við, er mikils virði. Að vera uppbyggilegur maður í stað þess að hírast í myrkri fíknar, að lyfta grettistaki í stað þess að vera baggi á sjálfum sér og öðrum, það er árangur SÁÁ sem álfar eiga sinn þátt í að hrinda í framkvæmd. Fjölgaðu áflunum í lífi þínu! Sjáðu árangurinn, kraftaverkin sem gerast. Einar Már Guðmundsson rithöfundur Ég kaupi alltaf nokkra álfa. Við þurfum sameiginlegt átak til þess að hjálpa þeim unglingum sem hafa ánetjast vímuefnum og þurfa á okkar hjálp að halda. Þeir eiga líka að minna okkur á að enn þurfum við að standa saman í forvarnarstarfi fyrir unga fólkið okkar. Næstu kyn- slóð sem vonandi verður það vel upplýst og skynsöm að hún sleppi því algjörlega að neyta vímuefna í hvaða formi sem þau eru. Valgerður Matthíasdóttir, arkitekt og fjölmiðlakona SÁÁ tekst á við áfengis- og vímuefna- vandann, sinnir for- vörnum og byggir upp meðferð- arúrræði. Það er ekki annað hægt en að styðja við bakið á slíkum samtökum. Þess vegna kaupi ég alltaf álfinn, þetta er skemmti- legur og sniðugur hnoðri sem lætur gott af sér leiða - svo er hann líka fyrirtaks kattaleikfang! Þórhildur Ólafsdóttir fjölmiðlakona Til að standa með SÁÁ sem hefur staðið með nánast hverri einustu fjölskyldu í landinu á einhverjum tíma. Til að þakka þá samstöðu. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra lækna á lyfið methylfenydat, eða rital- ín, verður að endurskoða,“ segir Þór- arinn Tyrfingsson, yfirlæknir á sjúkra- húsinu Vogi, en tölulega upplýsingar frá sjúkrahúsinu og könnun á örvandi vímuefnaneyslu sjúklinga sem leita sér meðferðar á þessu ári sýna svo ekki verður um villst að ritalín er eitt eftirsóttasta vímuefnið á ólöglega vímuefnamarkaðinum. Í kjölfar hrunsins, og kreppunn- ar, hefur framboð af af amfetamíni, kókaíni og E-pillum dregist saman. Þetta sért glöggt á tölum frá Vogi árið 2009. Ritalínneyslan vex hinsvegar hratt og vinnur upp þá minnkun sem varð á ólöglega amfetamíninu svo að í raun fjölgar amfetamínfíklum hlut- fallslega á meðan kókaínfíklum og E- pillufíklum fækkar skart. Amfetamínfaraldur á Íslandi Faraldur ólöglegrar amfetamínneyslu að sænskri fyrirmynd hófst á Íslandi árið 1983. Faraldurinn einkenndist af því að neytendurnir notuðu stóra sakamta af efninu og voru þekktir kannabisneytendur fyrir. Gamlir fíklar með nýtt efni. Þeir sugu efnið í nef og um 60% þeirra sprautuðu efninu í æð. Neytendurnir voru ungir og leiddust margir þeirra fljótt út í afbrot. Eitt- hvað dró úr faraldrinum frá 1987 til 1992. Á árunum 1995 til 2000 vex far- aldurinn gríðarlega og nýju neytend- urnir eru mjög ungir og eru að leita sér meðferðar í fyrsta sinn. Nýir fíklar með nýtt efni. Inn í amfetamínfarald- urinn komu svo kókaín og E-pillur og æ algengara var að sjúklingarnir sem komu til meðferðar voru að fara úr einu örvandi efninu í annað eftir efn- um og aðstæðum. Einmitt á þessum árum 1995 til 2000 er létt hömlun á ávísun lækna á amfetamín og skyldra efna. Sölutölur rjúka þá upp og við setjum enn eitt heimsmetið. Um og eftir 2000 verður það æ algengara að sjúklingar leita á Vog sem fyrst og fremst eru háðir ri- talíni og sprauta því í æð. Sjúkling- arnir sögðu fíkn sína í þetta efni jafn- vel sterkari en í flest önnur vímuefni. Þetta var auðvitað óásættanlegt en ástand hélst nokkuð óbreytt næstu árin hvað ritalínið varðaði meðan kókaínneysla sótti í sig veðrið. Nota tugir taflna daglega „Við höfum verið að skoða þess- Ritalín er eitt eftirsóttasta vímuefnið RITALÍN er að verða faraldur á Íslandi. Taka verður ávísun lækna á lyfið til gagngerar endurskoðunar. Framboð af amfetamíni, kókaíni og E-pillum dregst saman í kreppunni en ritalínneyslan eykst hratt og veldur því að í raun fjölgar amfetamínfíklum á Íslandi á meðan kókaín- og E-pillufíklum fækkar. Reglulega kannar starfsfólk á sjúkrahúsinu Vogi verð á ólöglegum vímuefnum. Um er að ræða svokallað „götuverð“ og allir sjúklingar sem koma á Vog, og hafa heilsu til, taka þátt í könnuninni. Í nýrri könnun, sem birt er á vef samtakanna, www.saa.is, kemur í ljós að kannabis og ólöglegt amfetamín lækka lítillega í verði. Á síðasta ári fór grammið af hassi hæst í 3500 krónur og grammið af grasi náði 4800 krónum í fyrra. Í dag er hassið komið niður í 2800 og grasið í 3700. Ólöglegt amfetamín náði í fyrra 6200 en er nú komið undir 5000 krónur. Kókaín hefur einnig lækkað í verði frá því í fyrra, fór hæst í 18000 en er nú komið undir 14.000. Það sem vekur þó mesta athygli ef litið er til síðustu tólf mánaða er vaxandi notkun ritalíns. Hver tafla er seld á 500 til 1.000 krónur, eftir því hvernig ástandið er. Verðir er þó oftar nær þúsund krónum og ljóst að ávísun lyfsins virðist alveg komin úr böndunum. VERÐ Á ÓLÖGLEGUM VÍMUEFNUM Á ÍSLANDI: KANNABISEFNI OG AMFETAMÍN LÆKKA ar breytingar og lögðum í viðamikla upplýsingasöfnun um örvandi vímu- efnaneyslu á Vogi,“ útskýrir Þórarinn en nú liggja fyrir fyrstu upplýsingarnar um 600 einstaklinga sem komið hafa á Vog þetta árið. Í ljós kemur að 429 hafa Kannabisefnin lækka Grammið af hassi hefur farið lækkandi og kostar nú um 2.800 krónur á meðan grammið af grasi er á 3.700. HLUTFALL ÖRVANDI VÍMUEFNAFÍKLA AF SJÚKLINGAHÓP Á SJÚKRAHÚSINU VOGI 1991-2009 SÖLUTÖLUR FYRIR RITALÍN EÐA METHYLFENYDAT (DDD/1000 ÍBÚA/DAG ) 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40% 45% 1993 1995 1997 1999 2001 2003 2005 2007 2009 ÖRVANDI VÍMUEFNI AMFETAMÍN OG RITALÍNFÍKN KÓKAÍNFÍKN E-PILLUFÍKN KÓKAÍN OG E-PILLUFÍKN MINNI En á heildina litið þá vegur aukningin á amfetamín- og ritalínfíkn upp minnkunina. 103 AF 109 SPRAUTU- FÍKLUM ERU AÐ NOTA RÍTALÍN EITT OG SÉR EÐA MEÐ ÖRÐUM ÖRVANDI VÍMUEFNUM notað örvandi vímuefni og 109 hafa sprautað efnunum í æð. Af þeim 109 sem sprauta hafa örvandi vímuefn- um í æð segjast 64, eða um 60%, að ritalín sé það efni sem þeir noti mest eða næstmest. Þeir segjast sprauta sig 10-20 sinnum á dag og nota tugir taflna daglega. 103 af 109 sprautufíklum eru að nota ritalín eitt og sér eða með örð- um örvandi vímuefnum. „Þessar upp- lýsingar ber að taka alvarlega og þær kalla á viðbrögð,“ segir Þórarinn en fagfólkið á Vogi hefur miklar áhyggj- ur ef ávísanir lækna á ritalín verði ekki teknar til gagngerar endurskoðunar. 0 2 4 6 8 10 12 14 METÝLFENÍDAT SÖLUAUKNINGIN ÓTRÚLEG Sölutölurnar tala sínu máli en aukningin á sölu ritalíns á Íslandi er enn eitt heimsmet Íslendinga!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.