Fréttablaðið - 27.05.2010, Blaðsíða 54
26 27. maí 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
10. HVE
R
VINNUR
!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
VILTU
MIÐA?
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL CBV
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ
MIÐA Á MYNDINA!
FRUMSÝND 26. MAÍ
FULLT AF GLÆSILEGUM VINNINGUM:
BÍÓMIÐAR - TÖLVULEIKIR
DVD MYNDIR,
GOS OG MARGT FLEIRA
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þú ert með
smá pítsu á
kinninni
Lína Soffía.
Nei, hinum
megin.
Aðeins
ofar...
Nú ertu
komin með
þetta í
augað á þér
Jæja... ég
þarf að fara
heim og
leggja parket.
Kem fljótt
aftur!
Áii!
Ég hata
þennan
stað.
Og þá er ég ekki bara
að tala um þennan
bæ, jarðkringlan er
bara leiðinleg!
Og ef út í það er
farið er ég alls
ekki svo hrifinn af
sólkerfinu!
Ertu
eitthvað
fúll í dag?
Þessi
heimur
er ömur-
legur!
Rannsókn-
arstofa
Ég kastaði
engri drullu
í stelpur
í dag.
Nú?
Ætli það þýði
ekki að ég sé
að þroskast.
Láttu það ekki
koma þér á
óvart ef þú
þarft að kenna
mér að raka
mig fljótlega.
Takk fyrir
aðvörunina.
Enn er ýmislegt
á huldu í málinu
þar sem yfirvöld-
um hefur ekki
tekist að bera
kennsl á froskinn
sem var krufinn
hérna í dag.
Skömmu eftir Hrun, raunar bara örfáum dögum, varð vitundarvakning á Íslandi.
Íslendingar sannfærðust um að það væri
raunhæfur möguleiki á að stokka kerfið
upp; út með það gamla – inn með það nýja.
Um allan bæ hélt fólk súpufundi þar sem
vinir komu saman og skeggræddu um fram-
tíðina, möguleikana og tækifærin sem í
henni fólust.
Í DAGBLÖÐUNUM valdist gáfaðasta og
lærðasta fólk landsins í skuggaríkisstjórnir
og vísaði veginn að betra landi; samfélagi
þar sem spillingunni, smásálarskapnum,
og tittlingaskítsskotgrafarumræðunni yrði
kastað fyrir róða. Mörgum fannst eins og
þjóðin hefði endurheimt glötuð heilindi
og með þau í veganesti myndi ekki langt
um líða þar til við fengjum uppreisn æru
í samfélagi þjóðanna.
SJALDAN hafa jafn háleit og göfug mark-
mið farið fyrir jafn lítið. Af öllu því sem
lagt var upp með Hrunveturinn mikla
hefur nákvæmlega ekkert ræst. Við
stöndum frammi fyrir því að meiri-
hluti kjósenda í Reykjavík lítur
á risastóran fokkjúputta sem
álitlegasta valkostinn í borgar-
stjórnarkosningum. Markið var
sannarlega sett hátt og það
ætlaðist enginn til þess að
þær umbætur sem kallað
var eftir næðu fram að ganga á einni nóttu
en gat okkur fjandakornið ekki orðið aðeins
meira ágengt á einu og hálfu ári?
VIÐBRÖGÐ margra stjórnmálamanna við
Hruninu eru þversagnakennd; í aðra rönd-
ina vilja þeir flýja það; þeir forðast að ræða
það og segja að við eigum ekki að dvelja of
mikið við hið liðna. Á hinn bóginn vilja þeir
ríghalda í Hrunið og kenna því um allt sem
afvega fer hjá þeim; í fyrra kenndu þeir
Hruninu um lélegt gengi í kosningum, nú er
Hrunskýrslan að þvælast fyrir þeim. Hvað
næst? Enn hefur enginn stjórnmálamaður
gengið fram fyrir skjöldu og einfaldlega
sagt: ætli skilaboðin séu ekki þau að fólki
finnst við ekki hafa staðið okkur vel.
HRUNIÐ sjálft er afstaðið, þótt við glím-
um enn við afleiðingar þess. Almenningur
hefur hins vegar ekki séð þess merki að
flokkarnir hafi lært nokkuð af því eða hafi
yfirhöfuð áhuga á að læra eitthvað af því.
Þar til það gerist verður það álitlegur kost-
ur að láta kylfu ráða kasti og merkja við
uppréttu löngutöngina á kjörseðlinum. Það
er ekki til marks um andúð á lýðræðinu,
eins og sumir halda fram, heldur fyrst og
fremst vonbrigði. Einfaldasta leiðin til að
verða ekki fyrir vonbrigðum er að hætta
að gera sér væntingar. Það er vissulega
sorglegt hlutskipti þjóðar en engu að síður
nákvæmlega það sem við búum við í dag.
Þjóðfélag vonbrigðanna