Fréttablaðið - 12.06.2010, Síða 74

Fréttablaðið - 12.06.2010, Síða 74
42 12. júní 2010 LAUGARDAGUR BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðs- sonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Nei, heyrðu, það er nígerísk ekkja sem vill deila með mér öllum milljörðunum sínum. Fljótur, náðu í allar bankaupplýsing- arnar mínar. „Og í Flórída var eyðilegg- ingin eftir Marianne sömuleiðis skelfileg.“ Vá, hún er bara útum allt. Heimska sjónvarp! Þú veist að þetta er síminn, er það ekki? „Bon Jour?“ „Jón hafði engar sérstakar áhyggjur af öllum heimsku- legu hugmynd- um eiginkon- unnar. Enda var hún gullfiskur.“ Ég hef aldrei séð barn klifra svona. Þetta er ótrúlegt, ekki satt? Við megum aldrei hafa augun af henni... Ok, frá og með núna megum við aldrei hafa augun af henni. Væri ekki einfaldast að líma fæturn- ar á henni við gólfið 1. PRENTUN UPPSELD 2. PRENTUN VÆNTANLEG! Fótbolti verður smurningin á gírum sam-félagsins næsta mánuðinn eða svo, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Þótt ég sé enginn sérstakur áhugamaður um fót- bolta finnst mér einhver óræð en þægileg stemning fylgja HM. Kannski er það vegna þess að keppnin ber alltaf uppi á besta tíma ársins, þegar allir eru frekar „ligeglad“ og hamingjusamir. Fyrir nokkrum árum tók reyndar ég andspyrnuna fram yfir knatt- spyrnuna; lék tuddavörn með tuðliðinu og reyndi að skensa þá sem höfðu gaman af leiknum með athugasemdum um hvað það væri asnaleg íþrótt sem gengi út á að hlaupa á eftir bolta til þess að sparka honum frá sér aftur. SÍÐAN breyttist eitthvað. Ég veit ekki hvað en ég ákvað að slaka á og leyfa mér að hrífast með. Hvað með það þótt það verði bara fótbolti í sjónvarpinu næsta mánuðinn? Hver kemur hvort eð er til með að sakna Taggarts, Kiljunn- ar eða Aðþrengdra eiginkvenna á sólböðuðu miðvikudagskvöldi í júní, þegar sjónvarpsgláp ætti að vera minnst freistandi kosturinn í stöðunni? Þeim sem gerir það er hreinlega ekki viðbjarg- andi; hann mun finna sér eitt- hvað til að suða yfir sama hvað tautar og raular. ALLT um það. Það var gaman að fylgjast með snaggaralegum heimamönnum í Suður-Afríku ná jafntefli við Mexíkó í opn- unarleiknum í gær. Samt kann ég engin deili á þessum leikmönnum, hef aldrei séð nokkurn þeirra spila fótbolta áður. Þetta snerist heldur ekki endilega um það: Þetta var frekar táknræn stund; þjóð, sem fyrir aðeins tveimur áratugum hratt af sér kerfi aðskilnaðar og kúgunar, fékk tækifæri til að sýna hvað í henni býr meðan heims- byggðin horfði á. ÍSLENDINGAR hafa verið í mikilli og á tíðum erfiðri naflaskoðun undanfarin tvö ár, sem hefur þó skilað merkilega litlu. Næsta mánuðinn eða svo verður hún lögð til hliðar. Það er vel. Það er oft ágætt að taka sér stutt hlé í miðjum heilabrotum, kaffi- pásu til að ná áttum. HM í fótbolta er heppi- leg dægrastytting . Af þjóðmálaumræðunni að dæma undanfarið eitt og hálft ár mætti næstum halda að Ísland sé eina landið í heiminum. Heimsmeistarakeppnin í fótbolta er holl og þörf áminning um að svo er ekki. HORFUM á HM næsta mánuðinn. Lítum út fyrir landsteinana og lesum okkur til um löndin sem keppa. Það eru meiri líkur en minni á að við lærum eitthvað um Ísland í leiðinni. Stefnumót við heiminn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.