Fréttablaðið - 12.06.2010, Síða 74
42 12. júní 2010 LAUGARDAGUR
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Nei, heyrðu,
það er nígerísk
ekkja sem vill
deila með mér
öllum
milljörðunum
sínum. Fljótur,
náðu í allar
bankaupplýsing-
arnar mínar.
„Og í Flórída
var eyðilegg-
ingin eftir
Marianne
sömuleiðis
skelfileg.“
Vá, hún er
bara útum
allt.
Heimska
sjónvarp!
Þú veist
að þetta er
síminn, er það
ekki?
„Bon
Jour?“
„Jón hafði engar
sérstakar
áhyggjur af
öllum heimsku-
legu hugmynd-
um eiginkon-
unnar. Enda var
hún gullfiskur.“
Ég hef
aldrei séð
barn klifra
svona.
Þetta er
ótrúlegt,
ekki satt?
Við megum aldrei hafa
augun af henni...
Ok, frá og með
núna megum
við aldrei hafa
augun af henni.
Væri ekki
einfaldast að
líma fæturn-
ar á henni
við gólfið
1. PRENTUN
UPPSELD
2. PRENTUN
VÆNTANLEG!
Fótbolti verður smurningin á gírum sam-félagsins næsta mánuðinn eða svo, hvort
sem mönnum líkar betur eða verr. Þótt ég
sé enginn sérstakur áhugamaður um fót-
bolta finnst mér einhver óræð en þægileg
stemning fylgja HM. Kannski er það vegna
þess að keppnin ber alltaf uppi á besta tíma
ársins, þegar allir eru frekar „ligeglad“ og
hamingjusamir. Fyrir nokkrum árum tók
reyndar ég andspyrnuna fram yfir knatt-
spyrnuna; lék tuddavörn með tuðliðinu
og reyndi að skensa þá sem höfðu gaman
af leiknum með athugasemdum um hvað
það væri asnaleg íþrótt sem gengi út á að
hlaupa á eftir bolta til þess að sparka
honum frá sér aftur.
SÍÐAN breyttist eitthvað. Ég veit ekki
hvað en ég ákvað að slaka á og leyfa
mér að hrífast með. Hvað með það þótt
það verði bara fótbolti í sjónvarpinu
næsta mánuðinn? Hver kemur hvort eð
er til með að sakna Taggarts, Kiljunn-
ar eða Aðþrengdra eiginkvenna á
sólböðuðu miðvikudagskvöldi í
júní, þegar sjónvarpsgláp ætti að
vera minnst freistandi kosturinn
í stöðunni? Þeim sem gerir það
er hreinlega ekki viðbjarg-
andi; hann mun finna sér eitt-
hvað til að suða yfir sama
hvað tautar og raular.
ALLT um það. Það var gaman að fylgjast
með snaggaralegum heimamönnum í
Suður-Afríku ná jafntefli við Mexíkó í opn-
unarleiknum í gær. Samt kann ég engin
deili á þessum leikmönnum, hef aldrei séð
nokkurn þeirra spila fótbolta áður. Þetta
snerist heldur ekki endilega um það: Þetta
var frekar táknræn stund; þjóð, sem fyrir
aðeins tveimur áratugum hratt af sér kerfi
aðskilnaðar og kúgunar, fékk tækifæri
til að sýna hvað í henni býr meðan heims-
byggðin horfði á.
ÍSLENDINGAR hafa verið í mikilli og á
tíðum erfiðri naflaskoðun undanfarin tvö
ár, sem hefur þó skilað merkilega litlu.
Næsta mánuðinn eða svo verður hún lögð til
hliðar. Það er vel. Það er oft ágætt að taka
sér stutt hlé í miðjum heilabrotum, kaffi-
pásu til að ná áttum. HM í fótbolta er heppi-
leg dægrastytting . Af þjóðmálaumræðunni
að dæma undanfarið eitt og hálft ár mætti
næstum halda að Ísland sé eina landið
í heiminum. Heimsmeistarakeppnin í
fótbolta er holl og þörf áminning um
að svo er ekki.
HORFUM á HM næsta mánuðinn. Lítum út
fyrir landsteinana og lesum okkur til um
löndin sem keppa. Það eru meiri líkur en
minni á að við lærum eitthvað um Ísland í
leiðinni.
Stefnumót við heiminn