Fréttablaðið - 04.09.2010, Side 8
8 4. september 2010 LAUGARDAGUR
PORTÚGAL, AP Sex karlar og ein
kona voru í gær dæmd sek um
kynferðisleg brot gegn börnum í
dómsmáli, sem staðið hefur yfir í
sex ár.
Sannað þótti að þau hefðu starf-
rækt hring barnaníðinga í Lissa-
bon á tíunda áratugnum, og á þeim
tíma bæði nauðgað og brotið með
öðrum hætti kynferðislega gegn
börnum og unglingum.
Réttarhöldin hafa verið þau
lengstu í sögu Portúgals og vöktu
glæpir fólksins óhug landsmanna.
Meira en 800 vitni og sérfræðingar
voru kölluð til, þar á meðal 32
manns sem fólkið hafði níðst á.
Meðal hinna seku eru Carlos
Ruiz, þekktur sjónvarpsmaður í
Portúgal, og Jorge Ritter, fyrr-
verandi sendiherra landsins hjá
UNESCO, en glæpirnir tengd-
ust allir stofnuninni Casa Pia,
sem í 230 ár hefur sinnt fátækum
börnum og munaðarleysingjum.
Það var fyrrverandi bílstjóri
á vegum stofnunarinnar, Carlos
Silvino, sem játaði brotin og nafn-
greindi hina sakborningana. Þau
hafa neitað ásökununum. - gb
Lengsta dómsmáli Portúgals lauk með sakfellingu sex karla og einnar konu:
Hópur barnaníðinga dæmdur
EINN SAKBORNINGANNA Carlos Cruz,
þekktur sjónvarpsmaður í Portúgal,
mætir til réttarhalda í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
ALMANNAVARNIR Brýn þörf er að
bæta miðlun upplýsinga á hættu-
svæðum eins og við Kötlu. Ferða-
menn eru almennt ómeðvitaðir um
að þeir séu á hættusvæði og marg-
ir gera sér ekki grein fyrir því að
þeir standi við rætur eldfjalls.
Deanne K. Bird kynnti í gær
niðurstöður doktorsverkefnis um
samfélagslegar hliðar eldfjalla-
vár og viðbragðsáætlanir á Suð-
urlandi. Rannsókn hennar er sam-
eiginlegt verkefni Háskóla Íslands
og Macquarie háskólans í Ástral-
íu og snýr að Kötlu og áhrifasvæði
hennar.
Rannsókn Deanne tekur ítar-
lega á hinum félagslega þætti
og er hugsuð sem viðbót við
umfangsmiklar jarð- og jarð-
eðlisfræðilegar rannsóknir sem
hafa verið gerðar á Kötlu. Beitt
var fjölbreytilegum aðferðum. Í
almannavarnaæfingunni Bergris-
anum árið 2006 var beitt þátttöku-
athugun, tekin viðtöl við stjórnend-
ur neyðar- og björgunarmála sem
og íbúa og loks voru lagðar spurn-
ingar fyrir íbúa, ferðamenn og
ferðaþjónustuaðila.
Það vakti athygli að viðtöl við á
annað hundrað ferðamenn í Þórs-
mörk leiddu í ljós að enginn þekkti
til viðbragðsáætlana ef Katla byrj-
aði að gjósa. „Yfirhöfuð voru menn
ómeðvitaðir um að eldfjall væri í
næsta nágrenni við þá, hvað þá að
þeir gætu átt von á hamfaraflóði
innan skamms tíma frá upptökum
goss,“ sagði Deanne.
Viðtöl við heimamenn leiddu í
ljós að flestir íbúar myndu bregðast
jákvætt við tilskipunum um rým-
ingu svæðisins en þó hafa marg-
ir samverkandi þættir áhrif á það
hvort þeir sjái sér fært að fylgja
ráðleggingum um varnarviðbrögð.
Til að viðbragðsáætlun verði skil-
virkari er því nauðsynlegt fyrir
stjórnendur neyðar- og rýming-
aráætlana að leita samvinnu við
bændur, taka tillit til staðbund-
innar þekkingar þeirra og hversu
tengdir þeir eru við búskapinn og
staðinn sem þeir búa á.
Þá kom hún inn á það að mikið
vatn hefði runnið til sjávar síðan
hún hóf rannsókn sína 2006, ekki
síst vegna Eyjafjallajökulsgossins.
Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá
Almannavörnum, segir nauðsynlegt
að gera átak til að kynna betur þær
hættur sem íslensk náttúra hefur
að geyma. Hann viðurkennir að til
slíks sé takmarkað fjármagn. Inn-
legg Deanne telur hann mikils virði
en oft greini yfirvöld og ferðaþjón-
ustuna á um hvernig þetta er best
gert. „Það verður að koma upplýs-
ingum á framfæri án þess að hræða
fólk frá viðkomandi svæðum,“ segir
Reynir. svavar@frettabladid.is
Ferðafólk við Kötlu
vissi ekki af fjallinu
Rannsókn sýnir að ferðafólk veit ekki hvernig það á að bera sig að í tilfelli nátt-
úruhamfara. Ferðamenn við rætur Kötlu vissu almennt ekki af nálægðinni við
virkt eldfjall. Gera þarf átak í kynningarmálum, segir sérfræðingur.
DR. DEANNE K. BIRD Vonast til að geta haldið rannsóknum sínum áfram á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Stal pela og náttbuxum
Tvítug kona hefur verið ákærð fyrir að
stela í febrúar síðastliðnum barna-
pela, átta barnasamfellum og tvenn-
um dömunáttbuxum úr Krónunni á
Selfossi. Andvirði þýfisins nam ríflega
tíu þúsund krónum.
LÖGREGLUMÁL
UMHVERFISMÁL Magn svifryks í
andrúmslofti á höfuðborgarsvæð-
inu fór yfir heilsuverndarmörk
á tímabili í gær vegna öskufoks.
Askan barst með hvassri suðaust-
lægri átt frá svæðinu í kringum
Eyjafjallajökul.
Heilsuverndarmörk eru 50
míkrógrömm svifryks á rúm-
metra andrúmslofts, en á hádegi í
gær mældist svifryk við Grensás-
veg 110 míkrógrömm á rúmmetra.
Við slíkar aðstæður beinir Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur þeim
tilmælum til þeirra, sem eru til
dæmis með viðkvæm öndunar-
færi, lungnasjúkdóma eða astma,
að vera innandyra. - þj
Öskufoks enn vart:
Svifryk yfir
heilsuverndar-
mörkum
Sími 515 4020 - www.BYKO.is
af leiguverði á smágröfu*
og öllum hoppukastölum
út september 2010!
Við leigjum réttu tækin!
*Gildir fyrir vnr. 9792007530%
afsláttur
FRÁBÆ
RT
VERÐ
Í SEPTE
MBER!
www.þraut.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-1
6
7
4
... og rjómi