Fréttablaðið - 04.09.2010, Page 47
LAUGARDAGUR 4. september 2010 3
„Þetta þótti nú brandari að ætla
að reka skartgripaverslun uppi í
Breiðholti, segir Ulrik Falkner,
gullsmiður í Mjódd, og hlær. „En
ég sló til og þetta hefur gengið
glimrandi fínt.“
Ulrik rekur Gullsmiðinn í
Mjóddinni í samvinnu við son
sinn, Örn Falkner, og Guðrúnu
Bjarnadóttur, eiginkonu hans.
Ulrik keypti verkstæðið af Guð-
bjarti Þorleifssyni gullsmiði fyrir
16 árum en sjálfur opnaði hann sitt
fyrsta verkstæði á Amtmannsstíg
í miðbæ Reykjavíkur í desember
árið 1959. Næstu árin flutti hann
sig til í miðbænum, rak lengi verk-
stæði í Lækjargötu 2 áður en han
flutti sig upp á Laugaveginn en
Ulrik segir Austurstrætið hafa
dáið á einum degi þegar því var
lokað fyrir akandi umferð.
„Þar sem ekki er hægt að keyra
þar þrífst enginn rekstur. Þarna
sást ekki hræða allan daginn. Þá
fór ég á Laugaveg 71 var þar í nokk-
ur ár og var síðar með verkstæði í
bakhúsi við Laugaveg 8 þegar mér
bauðst þetta pláss í Mjóddinni. Ég
segi nú að Austurstrætið hafi verið
miðja Reykjavíkur í gamla daga en
þetta er miðja Reykjavíkur í dag.
Hér hefur aldrei verið skortur á því
að hafa nóg að gera.“
Ulrik á stóran hóp fastra við-
skiptavina sem hafa jafnvel fylgt
honum úr miðbænum. Hann segir
góða þjónustulund borga sig og af
henni hafi hann nóg.
„Ég hef nú alltaf verið þjónustu-
glaður og nenni að gera við hluti
fyrir fólk. Þegar mikið var að gera,
þá töldu sumir gullsmiðir sig bara
þurfa að selja og græða. En ég gat
aldrei neitað viðgerðum,“ segir
Ulrik hress. Hann rifjar upp að á
árum áður hafi hver einasti grip-
ur í versluninni verið smíðaður
baka til. Nú láti hins vegar marg-
ir smíða í Asíu en eitthvað sé enn
um sérsmíði.
„Ég hef alltaf sérsmíðað trú-
lofunarhringa sjálfur. Nú er ég
til dæmis að laga hringapar sem
ég smíðaði árið 1964 í Lækjargöt-
unni. Ég er að grafa höfðaletrið upp
í þeim svo þeir verða eins og nýir,“
segir Ulrik og viðurkennir að það
sé gaman að handleika gamla smíði
eftir hann sjálfan. „Þetta er eins og
að hitta gamla vini.“
Gullsmiðurinn er fjölskyldu-
fyrirtæki. Örn, sonur Ulriks, lærði
gullsmíði hjá föður sínum og eigin-
kona hans, Guðrún, sér um verslun-
ina. Ulrik segir gott að fjölskyldan
vinni saman og er ekkert á förum
úr Mjóddinni.
„Nei það myndi ekki hvarfla að
mér að fara héðan.“
heida@frettabladid.is
Þjónustugleðin við völd
Gullsmiðurinn í Mjóddinni er rekinn af Ulrik Falkner gullsmiði, syni hans og tengdadóttur. Ulrik segir
Mjóddina miðju Reykjavíkur og saknar miðbæjarins ekki neitt.
Ulrik Falkner gullsmiður milli Arnar, sonar síns, og Guðrúnar Bjarnadóttur, tengda-
dóttur sinnar, en þau reka fjölskyldufyrirtækið Gullsmiðinn í Mjóddinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Göngugata Mjóddar-
innar er opin frá 7.30
til 19.30 mánudaga til
föstudaga. Á laugar-
dögum er opið frá 9
til 18 og sunnudaga
frá 10 til 18. Fjölda
verslana er að finna
í Mjóddinni, allt frá
dýrabúð til fataverslun-
ar. Þar er einnig hægt
að sækja fjölbreytta
þjónustu tannlækna,
banka og augnlækna.
www.mjodd.is
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
hefur aðstöðu í Mjóddinni og
heldur opið hús annan hvern
miðvikudag.
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
er til húsa að Álfabakka 14a í
Mjóddinni. Félagar dansa hvert
fimmtudagskvöld auk þess sem
opið hús er haldið annan hvern
miðvikudag þar sem fólk getur
komið og dansað gömlu dans-
ana.
Þá heldur félagið úti búninga-
leigu þar sem fólk getur fengið
lánað búninga til notkunar við
ýmis tækifæri, svo sem dans-
sýningar,
brúðkaup eða
aðrar athafn-
ir.
Þ ei m sem
hafa áhuga á að
nálgast frekari
upplýsingar er bent
á vefsíðuna www.
isdans.is. - sg
Þjóðdansar í
Mjóddinni
Hægt er að dansa þjóðdansa og gömlu dansana hjá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur.
KLASSÍSKI LISTDANSSKÓLINN
HVATNING - METNAÐUR -ÁRANGUR WWW.BALLET.IS
Rakamikið gljáa sjampó,
næring og djúpnæring.
Hentar öllum sem þurfa
raka.
HYDRE
2 FRÁBÆRAR LÍNUR Á 25% AFSLÆTTI
TIL 20. SEPTEMBER
ENDURHEIMTU HEILBRIGÐI HÁRSINS
EFTIR SÓLRÍKT SUMAR!
Repair línan gerir við skemmt hár af völdum
kemískra efna, hita og sólar. Þessi frábæra lína
inniheldur protein sem endurnýjar og gerir við
innra byrði hársins.
Þönglabakka 1 • 109 Reykjavík • Sími: 557 4600
Garnbúðin Gauja • Álfabakki 14a • Sími: 571-2288
Prjónakaffi
mánudagskvöldið 6. september frá kl.
19.00 til 21.30 í Garnbúðinni Gauju
í Mjódd
Margar nýjungar framundan
Persónuleg þjónusta í notalegu umhverfi
Mikið úrval af garni og prjónavörum.