Fréttablaðið - 04.09.2010, Qupperneq 104
72 4. september 2010 LAUGARDAGUR
Undankeppni EM 2012:
A-riðill:
Kasakstan-Tyrkland 0-3
Belgía-Þýskaland 0-1
Miroslav Klose.
B-riðill:
Armenía-Írland 0-1
Keith Fahey.
Andorra-Rússland 0-2
Slóvakía-Makedónía 1-0
C-riðill:
Færeyjar-Serbía 0-3
Eistland-Ítalía 1-2
S. Zenjov - Cassano, Bonucci.
Slóvenía-Norður-Írland 0-1
D-riðill:
Rúmenía-Albanía 1-1
Lúxemborg-Bosnía 0-3
Frakkland-Hvíta-Rússland 0-1
E-riðill:
Moldavía-Finnland 2-0
Svíþjóð-Ungverjaland 2-0
Pontus Wernbloom 2.
San Marínó-Holland 0-5
Klaas-Jan Huntelaar 3, Dirk Kuyt (víti), Nistelrooy.
F-riðill:
Lettland-Króatía 0-3
Grikkland-Georgía 1-1
G-riðill:
Svartfjallaland-Wales 1-0
England-Búlgaría 4-0
Jermaine Defoe 3, Adam Johnson.
H-riðill:
Ísland-Noregur 1-2
Portúgal-Kýpur 4-4
Almeida, Meireles, Danny, Fernandes - Aloneftis,
Konstantinou, Okkas, Avraam.
I-riðill:
Litháen-Skotland 0-0
Liechtenstein-Spánn 4-0
Fernando Torres 2, David Villa, David Silva.
Þýska úrvalsdeildin:
Grosswallstadt - Wetzlar 23-22
Hvorki Sverre Jakobsson (Grosswallstadt) né
Kári Kristján Kristjánsson (Wetzlar) skoruðu.
Rheinland - Kiel 25-32
Árni Þór Sigtryggsson skoraði þrjú mörk fyrir
Rheinland og Sigurbergur Sveinsson tvö. Aron
Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Framherjinn ungi hjá
Fylki, Pape Mamadou Faye, var
í gær rekinn frá félaginu. Trún-
aðarbrestur er ástæða þess að
samningi við leikmanninn var
rift.
Hvorki Pape né Þórður Gísla-
son, formaður meistaraflokks-
ráðs Fylkis, vildu tjá sig um í
hverju trúnaðarbresturinn fælist.
Þórður sagði þó að hann væri
þess eðlis að ekki hefði verið
annað hægt en að beita þessi
úrræði þó svo það væri þeim
vissulega ekki að skapi.
„Ég má ekki tjá mig um ástæð-
ur riftunarinnar,“ sagði Pape við
Fréttablaðið í gær.
„Það kom mér samt svolítið á
óvart að vera rekinn frá félaginu
sem ég hef spilað með svo lengi,“
sagði Pape en sér hann eftir því
sem hann gerði?
„Já, auðvitað geri ég það. Ég
hefði ekki átt að gera þetta.“
Pape er aðeins 19 ára gamall
og hann ætlar sér að finna nýtt
félag til þess að leika með í
framtíðinni. - hbg
Pape rekinn frá Fylki:
Hefði ekki átt
að gera þetta
FARINN FRÁ FYLKI Pape Faye var rekinn
frá uppeldisfélagi sínu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Bílar:
RS – rally sport
OS – ofur sport
TS – true street, drag radial
TD – true street, DOT
HS – heavy street
DS – door slammer
OF – opinn flokkur
Bracket
Hjól:
Standard-flokkur
Modified
Opinn flokkur
Aðgangseyrir 1.000 kr.
Frítt fyrir 12 ára og yngri
í fylgd með fullorðnum
Svæðið opnað kl. 11 - Keppni hefst kl. 14
REYKJANESBRAUT
K
VA
R
TM
ÍLU
B
R
A
U
T
B
ÍLA
-
STÆ
Ð
I
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK
K
R
Ý
S
U
V
ÍK
U
R
V
E
G
U
R
ÁLFHELLA
R
A
U
Ð
H
E
L
L
A
Krónan og Kvartmíluklúbburinn kynna:
LOKAUMFERÐ
KVARTMÍLU
ÍSLANDSMÓTSINS Í
Laugardaginn 4. sept.
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson
landsliðsþjálfari var vitanlega
ekki ánægður með úrslit leiksins á
Laugardalsvelli í gær. Ísland tap-
aði fyrir Noregi, 2-1, eftir að hafa
verið yfir í hálfleik.
„Við spiluðum fínan fyrri hálf-
leik. Við áttum von á því að Norð-
menn myndu koma hærra á okkur
og að það yrði meiri barátta í leikn-
um. En þeir gerðu það ekki, heldur
gáfu okkur svæði sem við nýttum
okkur vel. Við sýndum og sönnuð-
um fyrir okkur að við erum fínir í
fótbolta og getum spilað ágætlega
ef við þorum því.“
Íslenska liðið náði hins vegar
ekki að fylgja þessu eftir í síðari
hálfleik.
„Það er erfitt að segja hvað
klikkaði. Fyrsti hálftíminn í síð-
ari hálfleik var skelfilegur. Við
duttum óþarflega mikið til baka
og fórum ef til vill í þann leik
að reyna að verja forystuna og
urðum kannski hræddir. Eftir
þennan góða fyrri hálfleik vorum
við í fínu færi til að klára leikinn
í þeim síðari.“
Hann segir að liðið hefði notað
vængina minna í síðari hálfleik. „Í
átta af hverjum tíu tilfellum þegar
Jói [Jóhann Berg] og Gylfi fengu
boltann komu sendingar fyrir
markið. En mér fannst Gylfi ekki
fá boltann nóg í síðari hálfleik.“
Fyrstu skiptingar íslenska liðs-
ins komu ekki fyrr en eftir að Norð-
menn hefðu náð forystu. Spurður
hvort Ólafur hefði átt að breyta
til fyrr sagði hann einfaldlega:
„Kannski, við vitum það aldrei.“
Við tekur ferðalag til Danmerk-
ur hjá íslenska liðinu þar sem liðs-
ins bíður erfitt verkefni hjá Parken
á þriðjudaginn.
„Það verður mun erfiðari leikur.
Landsliðsþjálfarinn Ólafur Jóhannesson eftir tapið gegn Noregi í gær:
Fínir í fótbolta þegar við þorum
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Ólafur á Laugardalsvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Danirnir voru í fríi í kvöld og koma
ef til vill ferskari til leiks,“ segir
Ólafur. „Þetta verður auðvitað erf-
itt fyrir okkur og það hefði verið
betra að fara út með annaðhvort
eitt eða þrjú stig með okkur. Danir
eru mun betri í fótbolta en Norð-
menn og við verðum að sjá til hvort
við eigum einhver brögð á móti
þeim.“ - esá
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari kallaði í gær eftir betri stuðningi
áhorfenda á Laugardalsvelli.
„Ég var vissulega ánægður með stuðningsmennina en ég hefði viljað fá
meiri hvatningu frá þeim, sérstaklega á fyrstu 20 mínútum síðari hálfleiks.
Þá hefði ég viljað fá aðeins meira garg og læti. Það þarf líka að hjálpa
okkur þegar við lendum í erfiðleikum.“
Hann undirstrikaði mikilvægi stuðnings áhorfenda. „Til þess að ná ein-
hverjum árangri í fótbolta þarf allt að ganga upp, nánast á hverri sekúndu.
Við megum aldrei misstíga okkur. Það hjálpar okkur tvímælalaust þegar
fólkið stendur með okkur og það gerir okkur lífið auðveldara. Ég er ekki
að segja að áhorfendur hafi ekki gert það hingað til en betur má ef duga
skal.“
Ólafur Jóhannesson:
Þurfum meiri hjálp áhorfenda