Fréttablaðið - 04.09.2010, Page 110
78 4. september 2010 LAUGARDAGUR
PERSÓNAN
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. niður, 6. í röð, 8. húsfreyja, 9.
hlemmur, 11. samtök, 12. fáni, 14.
hlemmur, 16. belti, 17. sníkjudýr, 18.
persónufornafn, 20. ryk, 21. mjög.
LÓÐRÉTT
1. helminguð, 3. tveir eins, 4. mergð,
5. nugga, 7. brjóstverja, 10. frosts-
kemmd, 13. hlaup, 15. stefna, 16.
rjúka, 19. átt.
LAUSN
Gyða Pétursdóttir
Aldur: 29 ára
Starf: Markaðs- og gæðafulltrúi hjá
Brimborg
Fjölskylda: Einhleyp
Búseta: Álftamýri, 108 Reykjavík
Stjörnumerki: Hrútur
Gyða Pétursdóttir er á leiðinni til Taílands
í október þar sem hún ætlar að nema
jógafræði og hugleiðslu.
„Ég er bara alveg í skýjunum yfir þessu,“
sagði Jóhanna Eva Gunnarsdóttir vörubíl-
stjóri og fatahönnuður þegar Fréttablaðið
náði af henni tali en hún bar sigur úr býtum
í fatahönnunarkeppni á vegum Iceland Fas-
hion Week sem er í gangi þessa dagana.
Fréttablaðið greindi frá þátttöku Jóhönnu
í keppninni fyrr í sumar í tengslum við þá
skemmtilegu staðreynd að Jóhanna er með
meiraprófið og vinnur sem vörubílstjóri hjá
Gámaþjónustunni þegar hún situr ekki við
saumavélina að hanna sína eigin fatalínu.
„Ég fékk utanlandsferð og peninga til
að setja upp mína eigin sýningu seinna, og
Martini-línuna en það er bara eins og bikar
fyrir mig því ég drekk ekki,“ segir Jóhanna
hlæjandi.
Jóhanna segist ekki ætla að hætta að
keyra þrátt fyrir velgengni fatalínu hennar
sem ber nafnið J.E.G. „Nei, mér finnst líka
gaman að keyra vörubíl og á meðan það
borgar reikningana held ég því áfram,“
segir Jóhanna en viðurkennir að hún sé
þó byrjuð að láta sig dreyma um að gera
stærri hluti á sviði fatahönnunar í kjölfar
sigursins.
„Ég ætla kannski að gera eitthvað meira
og sjá hvort ég geti ekki farið með fötin
mín í sölu einhvers staðar.“
Jóhanna ber keppninni vel söguna og
segir að það hafi nánast verið setið í öllum
sætum. „Við vorum fjórar að keppa með
okkar fatalínur og svo ein sem var með
skartgripalínu og við fengum mjög góðar
viðtökur. Þetta var bara alveg æðislegt,“
segir Jóhanna. - áp
Vörubílstjórinn vann fatahönnunarkeppni
SIGRAÐI Jóhanna Eva Gunnarsdóttir vann Martini-fata-
hönnunarkeppnina en ætlar þó ekki að hætta að keyra
vörubílinn sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Spákonan Sigríður Klingenberg
var fengin til að spá fyrir Karli
Gústaf Svíakonungi á meðan hann
dvaldi á Hótel Rangá á dögunum.
Þau hittust í litlum glersal á hótel-
inu og ræddu saman í vel á fjórðu
klukkustund. Fullt tungl var þenn-
an dag, 24. ágúst, og gekk fundur-
inn svo vel að þau hittust aftur dag-
inn eftir á hótelinu og áttu annað
spjall. Sigríður spáði einnig fyrir
föruneyti Karls, sem samanstóð
af fjölda áhrifamanna í Svíþjóð,
þar á meðal yfirmanni hjá sænska
hernum.
Sigríður vildi ekkert tjá sig um
málið þegar Fréttablaðið ræddi
við hana en samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins spáði hún í augun á
Svíakonungi og gaf honum íslensk-
an Baggalúts-kraftaverkastein.
Eins og komið hefur fram í
Fréttablaðinu var Karl Gústaf hér á
landi í einkaerindum. Hann renndi
fyrir lax í Rangá, skoðaði sig um
undir Eyjafjöllum og endaði dvöl
sína með góðu partíi á skemmti-
staðnum Austur sem hann hafði
látið taka frá fyrir sig fimmtudags-
kvöldið 26. ágúst. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins var Sigríður
Klingenberg á meðal gesta á Aust-
ur og ein þeirra sem skáluðu með
kónginum í kampavíni.
Sigríður Klingenberg hefur
lengi verið í fararbroddi á meðal
íslenskra spákvenna. Fyrir tveim-
ur árum setti hún heimsmet þegar
hún spáði fyrir 198 manns í flug-
vél á leið frá Keflavík til Kaup-
mannnahafnar. Hún hefur spáð
SIGRÍÐUR KLINGENBERG: HITTI STÓRLAX Á HÓTEL RANGÁ
Sigríður Klingenberg spáði
fyrir Karli Gústaf Svíakóngi
SPÁÐI FYRIR
SVÍAKONUNGI
Sigríður Klingenberg
spáði fyrir Karli Gústaf
Svíakonungi á dögun-
um. Hún hefur á ferli
sínum spáð fyrir fjölda
fólks, þar á meðal Plac-
ido Domingo og Harry
Belafonte.
Hljómsveitin Hjaltalín kemur
fram í norska morgunþættinum
God morgen Norge á sjónvarps-
stöðinni TV2 sunnudaginn 8.
september. Þetta verður í annað
sinn sem sveitin treður þar upp
en síðast var hún gestur í þættin-
um fyrir tveimur árum.
„Það var mjög gaman. Þetta
var rosa fyndið því þetta var svo
brjálæðislega snemma morguns.
Það var mæting fyrir allar aldir
en það var bara allt í lagi,“ segir
söngkonan Sigríður Thorlacius
um síðustu heimsókn Hjaltalíns
í þáttinn.
God morgen Norge er einn
vinsælasti sjónvarpsþáttur Nor-
egs og þykir svipa nokkuð til
hins íslenska Kastljóss. Um afar
góða kynningu er að ræða fyrir
Hjaltalín sem er þessa dagana
að kynna plötu sína, Terminal,
erlendis. Hún ætlar að nýta ferð-
ina til Noregs til tónleikahalds í
Osló, Árhúsum og í Kaupmanna-
höfn þar sem lög af plötunni
verða spiluð, þar á meðal Sweet
Impressions sem nýlega kom út
sem stafræn smáskífa.
Terminal hefur hlotið góða
dóma á Norðurlöndum, rétt eins
og annars staðar. Platan fékk 5
af 6 mögulegum í einkunn bæði
í danska blaðinu Politikien og
í Bergenavisen í Noregi. Hér
heima var platan valin sú besta
á síðasta ári af tónlistarspekúl-
öntum Fréttablaðsins.
- fb
Spila í norskum morgunþætti
HJALTALÍN Hljómsveitin kemur fram í norska morgunþættinum God Morgen Norge á
sjónvarpsstöðinni TV2. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
fyrir fjölda frægra einstaklinga
og nægir þar að nefna stórtenór-
inn Placido Domingo sem hún hitti
tvívegis, bæði í Barcelona og heima
á Íslandi, í tengslum við tónleika
hans í Egilshöll árið 2005. Hún
spáði einnig fyrir söngvaranum
Harry Belafonte þegar hann kom
hingað til lands fyrir sex árum á
vegum Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, UNICEF.
freyr@frettabladid.is
LÁRÉTT: 2. ofan, 6. áb, 8. frú, 9. lok,
11. aa, 12. flagg, 14. hleri, 16. ól, 17.
lús, 18. sín, 20. im, 21. afar.
LÓÐRÉTT: 1. hálf, 3. ff, 4. aragrúi, 5.
núa, 7. bolhlíf, 10. kal, 13. gel, 15.
ismi, 16. ósa, 19. na.
Sveppi og Auddi, sjónvarpsstjörn-
urnar geðþekku, eru komnir aftur
til Íslands eftir að hafa verið fastir
í Kuulusuk á Grænlandi í tvo og
hálfan dag. Upphaflega ætluðu þeir
eingöngu að vera þarna í hálfan
sólarhring og slepptu því að koma
með helstu nauðsynjavörur. En
flugið frestaðist. Félagarnir fengu
því tækifæri til að
kynna sér græn-
lenska menn-
ingu mun betur
en upphaf-
lega var
lagt upp
með.
Stétt svokallaðra „plöggara“, sem
myndi á íslensku kallast kynningar-
stjórar eða markaðsstjórar, misstu
góðan mann úr sinni stétt í gær.
Þá tilkynnti holdgervingur þeirra,
Jón Gunnar Geirdal, að hann væri
hættur störfum hjá Senu
eftir níu ára starf. Jón
Gunnar er höfundur
margra þeirra frasa
sem Ólafur Ragnar
notaði í Vaktar-seríun-
um og verður eflaust
vandfyllt í það skarð
sem hann skilur eftir
sig.
Og fyrsta stiklan úr kvikmyndinni
The Romantics er komin á netið en
einn framleiðandi myndarinnar er
Eva Maria Daniels. Myndin skartar
stórleikurunum Katie Holmes og
Josh Duhamel í aðalhlutverkum
en meðal annarra sem koma fram
má nefna Elijah Wood og
Candice Bergen. Eins
og Fréttablaðið hefur
greint frá mun Eva
næst framleiða Goats
með Lisbeth Saland-
er-leikkonunni Rooney
Mara. - fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Þér er boðið í skemmtilegustu
afmælisveislu ársins!
Sunnudaginn 5. sept. frá 14-16
Gerpla (Stóra sviðið)
Fös 29/10 kl. 20:00Fim 21/10 kl. 20:00 Ö Fim 4/11 kl. 20:00
Fíasól (Kúlan)
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Hamskiptin (Stóra sviðið)
Nígeríusvindlið (Kassinn)
Lau 11/9 kl. 15:00 U
Sun 12/9 kl. 13:00 Ö
Sun 12/9 kl. 15:00 Ö
Lau 30/10 kl. 20:00 4.sýn Ö
Sun 31/10 kl. 20:00 5.sýn Ö
Fös 5/11 kl. 20:00 6.sýn
Fim 16/9 kl. 20:00 U
Fös 17/9 kl. 20:00 Ö
Lau 18/9 kl. 20:00 Ö
Sun 19/9 kl. 19:00 Ö
Mið 22/9 kl. 19:00 U
Fös 24/9 kl. 19:00 Ö
Sun 12/9 kl. 20:00 Ö
Fim 16/9 kl. 20:00
Sun 5/9 kl. 20:00
Lau 4/9 kl. 13:00 U
Lau 4/9 kl. 15:00 U
Lau 11/9 kl. 13:00 Ö
Fös 15/10 kl. 20:00 frums U
Lau 16/10 kl. 20:00 2.sýn Ö
Lau 23/10 kl. 20:00 3.sýn Ö
Fös 10/9 kl. 20:00 Ö
Lau 11/9 kl. 20:00 Ö
Sun 12/9 kl. 20:00 Ö
Fim 9/9 kl. 19:00 Ö
Fös 10/9 kl. 19:00 Ö
Lau 18/9 kl. 19:00 Ö
Fös 3/9 kl. 20:00 Ö
Lau 11/9 kl. 20:00 Ö
Lau 4/9 kl. 20:00
Lau 18/9 kl. 13:00
Lau 18/9 kl. 15:00 Ö
Sun 19/9 kl. 13:00
Lau 6/11 kl. 20:00 7.sýn
Fim 11/11 kl. 20:00 8.sýn
Sun 19/9 kl. 20:00
Fim 23/9 kl. 20:00
Fös 24/9 kl. 20:00 Ö
Lau 25/9 kl. 19:00 Ö
Fös 1/10 kl. 19:00
Lau 2/10 Kl. 19:00
Fös 17/9 kl. 20:00
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki