Fréttablaðið - 02.10.2010, Blaðsíða 79
FERÐALÖG 7
„Þá var ég með íslenskan hóp á
Mont Blanc í mjög tvísýnu veðri
alla vikuna og erfitt að hitta á
rétta daginn til að toppa fjallið.
Sökum afleitrar veðurspár þurft-
um við að flýta toppdeginum og
þann dag voru yfir 200 manns að
reyna við fjallið á sama tíma. Við
vorum tíu manna hópur og fimm
leiðsögumenn í leiðinda snjó-
komu og skafrenningi, en engin
stórhætta á ferðum. Þann dag-
inn sneru allir til baka nema við,
og Íslendingarnir voru eina fólk-
ið sem fór á tind Mont Blanc þann
daginn. Ástæðan? Þeim þótti sjálf-
sagt að berjast úti í engu skyggni
og mikilli úrkomu. Íslendingar eru
því sannir víkingar og það er stað-
reynd að þeir eru harðari af sér en
aðrir. Það sér maður aftur og aftur
í þessum ferðum.“
Jökull segir upplifun Íslendinga
á fjallamennsku í Ölpunum af allt
öðrum toga en heima á Íslandi.
„Heima sækjum við í einangr-
un fjalla og stöndum kannski
alein í heiminum á okkar tindi, en
í Ölpunum er mannmergð og oft-
ast yfir 300 manns að reyna við
Mont Blanc á degi hverjum yfir
sumartímann. Ég segi því fólki að
fara með því hugarfari að upplifa
alvöru fjallamenningu því hvergi
annars staðar í heiminum upplifir
fólk návígi við hundruð manna líkt
þenkjandi sjálfu sér og að stunda
sitt áhugamál. Og að fara í alda-
gamla fjallaskála í 3.000 metra
hæð, þar sem öll aðföng eru flutt
með þyrlum, sitja yfir rauðvíni og
góðum mat með fólki alls staðar að
úr heiminum að spjalla um fjöll og
klifur í hrikalegri og undurfagurri
náttúru er ótrúleg upplifun. Því
smitast menn af fjallabakteríunni
og koma aftur og aftur í Alpana,“
segir Jökull, sem farið hefur með
yngstan fjallgöngumann sinn á
sextánda ári og þann elsta um sjö-
tugt.
„Flestir eru á milli fertugs og
fimmtugs, og alltaf aðeins fleiri
karlar. Eftir hnúkvæðinguna
hefur þó mikið bæst við af pörum,
enda fátt rómantískara en að sofa
við hliðina á fimmtíu sveittum og
hrjótandi útlendingum í þétt skip-
uðum kojum fjallaskála!“
Heimasíða Jökuls er www.berg-
menn.com. - þlg
TOPPNUM NÁÐ Ósér-
hlífnir Íslendingar á
lokaskrefunum að toppi
Mont Blanc.
AÐEINS FYRIR AFREKSMENN
UIAGM-IFMGA-IVBV eru alþjóðasamtök fjallaleiðsögumanna sem setja
reglur og viðmið um þjálfun og reynslu fjallaleiðsögumanna. Þjálfunar-
og prófaferlið er gríðarlega strangt, og það erfiðasta og jafnframt virt-
asta í heiminum. Krafist er sérhæfingar á fjórum sviðum fjallamennsku:
klettaklifri, ísklifri, fjallamennsku og fjallaskíðun. Reikna má með að tíu
ár líði frá því einstaklingur hefur þjálfun og þar til hann hefur lokið síð-
asta prófi. Ísland er ekki meðlimur í samtökunum og Jökull Bergmann
jafnframt eini Íslendingurinn sem lokið hefur UIAGM-prófi.
Lækjargata 2a 101 R. sími 5115001 opið alla daga 9 til 22
þrjú verð: 490.-, 990.- og 1.490.-
Krókur á móti kreppu!
Kiljutilboð allan október
Bleika slaufan fæst hjá okkur