Fréttablaðið - 07.10.2010, Page 10
10 7. október 2010 FIMMTUDAGUR
ALLT FARIÐ Kyle Whitmer frá Pedro í
Ohio í rústum heimilis síns sem varð
eldi að bráð aðfaranótt mánudags.
Fimm létust í brunanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EVRÓPUMÁL Mikið var rætt um
sjávarútvegsmál á fundi sameigin-
legrar þingnefndar Alþingis og
Evrópuþingsins í Þjóðmenningar-
húsinu á þriðjudag. Full trúar
Íslands og ESB telja að einna
erfið ast verði að ná samkomu-
lagi um sjávarútvegsmál í aðildar-
viðræðum.
Timo Summa, sendiherra og
fulltrúi framkvæmdastjórnar
ESB á Íslandi, sagði að umhverfis-
og sjávarútvegsmál yrðu erfið í
aðildar viðræðum Íslands.
„Reynsla Íslands gæti haft góð
áhrif á umræður um sameiginlega
sjávarútvegsstefnu ESB,“ sagði
hann hins vegar og tók fram að
ESB gerði sér grein fyrir andstöðu
marga Íslendinga við aðild.
Cristian Dan Preda Evrópuþing-
maður minnti á ályktun Evrópu-
þingsins þar sem segir að Íslend-
ingar ættu að hætta hvalveiðum.
Össur Skarphéðinsson utan-
ríkisráðherra sagði að sjávar-
útvegsmál yrðu það sem annað
hvort gerði samninga mögulega,
eða gerði út af við þá. Hann væri
ósammála því að flokka hvalveið-
ar til umhverfismála, eins og full-
trúar ESB gerðu.
„Á Íslandi höfum við flokkað
hvalveiðar undir sjálfbæra nýt-
ingu sjávar,“ sagði Össur; Ísland
væri þekkt fyrir að stýra þessum
auðlindum sínum án þess að ganga
um of á þær. Íslendingar myndu
ekki stuðla að því að hvalir yrðu
útdauðir frekar en annað.
Össur minnti á að í umsóknar-
ferli annarra ríkja hefði ESB oft
lagað sig að sértækum þörfum
umsóknarríkja og minntist á sér-
lausn fósturjarðar sendiherrans,
Finnlands, í landbúnaði. Þar hefði
fólk gert sér grein fyrir því að
sameiginlega landbúnaðarstefnan
hefði ekki verið gerð með finnskan
landbúnað í huga og búið til nýtt
hugtak: heimskautalandbúnað.
„Og ég held að við munum þurfa
álíka lausnir í sjávarútvegi,“ sagði
Össur: tal Íslendinga um fullveldi
snerist gjarnan í reynd um stjórn
yfir fiskimiðunum.
Þá sagðist Evrópuþingmaðurinn
Pat Gallagher, annar formanna
sameiginlegu þingnefndarinnar,
vera þeirrar skoðunar að það ætti
að vera sérstakur kafli um lítil
eyríki í sameiginlegri fiskveiði-
stefnu ESB og að stuðla þyrfti að
því að skip lönduðu í heimaríkinu,
til að skapa þar atvinnu.
klemens@frettabladid.is
Ísland og ESB munu
helst deila um fisk
Mikið var rætt um sjávarútvegsmál og hvalveiðar á fundi sameiginlegrar
nefndar Alþingis og Evrópuþingsins. Utanríkisráðherra mótmælir því að
hvalveiðar séu flokkaðar sem umhverfismál og kallar eftir sérlausnum.
ÚR ÞJÓÐMENNINGARHÚSI Í gegnum sameiginlegu þingnefndina eiga þingmenn Íslands og Evrópuþingsins að geta rætt beint við
stofnanir ESB og við ríkisstjórn Íslands um hvaðeina sem viðkemur aðildarferli Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Hópuppsagnir í
septembermánuði í ár eru tölu-
vert færri en á sama tíma í fyrra,
að því er fram kemur í morgun-
korni Greiningar Íslandsbanka í
gær. Þá var 87 manns sagt upp
störfum í slíkum uppsögnum, en
í ár var 21 sagt upp í einni hóp-
uppsögn.
Greiningardeildin segir hafa
verið heldur minna um hópupp-
sagnir framan af þessu ári en í
fyrra. Í ár hefur 515 verið sagt
upp í 22 hópuppsögnum, á móti
1.454 í 43 uppsögnum í fyrra.
Ekki mun þó hægt að slá því föstu
að uppsagnahrinan sé að baki.
„Má hér nefna að sú hætta er
fyrir hendi að seinkunin sem
hefur orðið á endurskipulagn-
ingu skulda margra fyrirtækja,
og hefur þá jafnvel tímabundið
komið í veg fyrir að mörg þeirra
hafi farið í þrot án þess að staða
þeirra hafi í raun breyst til hins
betra,“ segir í umfjöllun Grein-
ingar. Þá hafi einnig tímabundið
verið komið í veg fyrir að mörg
þeirra hafi ráðist í frekari upp-
sagnir. - óká
Í LAUGARDALNUM Greining Íslands-
banka segir að seinkun á endurskipu-
lagningu skulda fyrirtækja auki á óvissu
á vinnumarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hópuppsagnir eru færri það sem af er ári en voru á sama tíma í fyrra:
Óvíst um lok uppsagnahrinu
VIÐSKIPTI Slitameðferð ALMC,
sem áður hét fjárfestingarbank-
inn Straumur, lauk í fyrradag.
Ný stjórn tók
þá til starfa og
tekur hún við
af skilanefnd
sem stýrt hefur
bankanum frá
því FME greip
inn í rekstur-
inn. Óttar Páls-
son, forstjóri
félagsins, á sæti
í nýju stjórn-
inni. Kröfuhafar Straums eignuð-
ust bankann fyrir mánuði. Frétta-
blaðið greindi frá því í kjölfar
yfirtökunnar að kröfuhafar hefðu
verið ánægðir með slitameðferð-
ina. Litu þeir til þess að svipuðu
skapalóni yrði beitt við uppgjör á
Glitni og Kaupþingi. - jab
Slitameðferð Straums lokið:
Uppgjörið tók
eitt og hálft ár
ÓTTAR PÁLSSON
Málþing um skipulagsþróun
Skipulagsfræðinga Íslands efnir til
málþings um stöðu og þróun skipu-
lagsmála á Íslandi í dag klukkan 10
í sal Þjóðarbókhlöðunnar, 2. hæð.
Málþingið er opið.
SKIPULAGSMÁL
Opinn borgarafundur
Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi
standa fyrir opnum borgarafundi í
Stapa í Reykjanesbæ klukkan 16.30 í
dag. Er tilgangur fundarins að hvetja
til samstöðu og að þrýsta á um
úrbætur í atvinnumálum.
REYKJANES
Umhverfisverðlaunin 2010
Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefn-
ingum til Umhverfisverðlauna fyrir
árið 2010. Tilgangur þeirra er að beina
athyglinni að þeim ferðamannastöð-
um eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu
sem sinna umhverfismálum í starfi
sínu og framtíðarskipulagi.
FERÐAMÁL
DÓMSMÁL Karlmaður sem grun-
aður er um að hafa ráðist á konu
í Hveragerði í lok síðasta mánað-
ar og slasað hana alvarlega hefur
undirgengist lífsýnatöku eftir
úrskurð Héraðsdómur Suðurlands
þar að lútandi.
Þá hafa fjarskiptafyrirtæki
verið skylduð til þess að afhenda
lögreglunni upplýsingar um sím-
hringingar og SMS-skilaboð úr
þremur farsímum sem maðurinn
hafði undir höndum. Hann hafði
áður neitað lífsýnatöku og aðgangi
að upplýsingum. - jss
Úrskurður vegna árásar:
Gekkst undir
lífsýnatöku
SVEITARFÉLAGSMÁL Fjöldi stöðugilda
sveitarfélaga fækkaði um 190 eða
úr 19.430 í 19.240 milli áranna
2009 og 2010. Þetta þýðir um 1%
samdrátt í vinnuafli sveitarfélag-
anna frá fyrra ári.
Greint er frá þessu á vefsíðu
Samtaka íslenskra sveitarfélaga.
Þar segir að þegar fjallað sé um
stöðugildi sé átt við fjölda starfa
miðað við 100 prósenta starfshlut-
fall. Fjöldi starfsmanna hjá sveit-
arfélögum séu töluvert fleiri en
fjöldi stöðugilda gefi til kynna
þar sem margir séu í hlutastarfi.
Mælingin er gerð í apríl ár hvert
og nær til bæði A-hluta og B-hluta
sveitarfélaga.
Helsta ástæða fyrir fækkun
stöðugilda er án efa nauðsynleg
hagræðing hjá sveitarfélögum til
að bregðast við versnandi fjár-
hagsumhverfi þeirra. Almennt
hafa sveitarfélög reynt að halda
óbreyttu þjónustu- og starfs-
mannastigi þrátt fyrir erfiðar
kringumstæður í efnahagsmálum
og skýrist fækkun stöðugilda frek-
ar af því að ekki er endurráðið í
stöður frekar en að um uppsagnir
sé að ræða.
Fjöldi stöðugilda hjá ríkinu
hefur einnig fækkað á sama tíma.
Þannig hefur fjöldi stöðugilda hjá
hinu opinbera fækkað um 800 milli
2009 og 2010.
Samband íslenskra sveitarfélaga birtir tölur um fjölda starfa hjá sveitarfélögum:
Stöðugildum fækkar um 190
BORGARSTARFSMENN Alls eru 19.240
stöðugildi hjá sveitarfélögunum.