Fréttablaðið - 07.10.2010, Síða 13
FIMMTUDAGUR 7. október 2010 13
Ritstjóri Bændablaðsins:
Hættir vegna
ágreinings við
útgefendur
BLAÐAÚTGÁFA Þröstur Haraldsson,
ritstjóri Bændablaðsins, hefur
sagt upp störfum vegna ágrein-
ings við Bændasamtökin, sem
gefa út blaðið.
„Ég sagði upp eftir nokkuð
langvarandi samstarfs örðugleika
við útgefandann,“ sagði Þröstur.
„Þeir hafa aðrar skoðanir á því
hvernig eigi að reka blöð en ég.“
Ágreiningurinn snerist um sjálf-
stæði rit stjórna og verkaskipt-
ingu milli útgefanda og ritstjóra.
Þröstur vildi ekki fara nánar út
í þá sálma. Þótt hann hafi strax
hætt ritstjórn mun hann starfa
við blaðið út uppsagnarfrestinn,
sem rennur út um áramót. Tjörvi
Bjarnason hefur tekið við rit-
stjórn og ábyrgð á útgáfu Bænda-
blaðsins til bráðabirgða. - pg
ÞRÖSTUR HARALDSSON Sagði upp
vegna samstarfsörðugleika við útgefand-
ann.
DÓMSMÁL Karlmaður um fimm-
tugt sem valdið hefur margsinn-
is óspektum og ónæði á Selfossi
hefur verið dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi. Dómurinn er
skilyrtur og skal manninum gert
að dvelja á hæli í allt að eitt ár til
að venja hann af neyslu áfengis
eða deyfilyfja.
Maðurinn var ítrekað með læti
í matvöruverslunum á staðnum,
áreitti starfsfólk, henti vörum að
starfsfólki og viðskiptavinum og
sparkaði í lögreglumenn. Þá lá
hann á dyrabjöllum í fjölbýlishúsi
á Selfossi. Þrettán flöskum af
matarlit stal hann úr Samkaupum
og hafði drukkið hluta af matar-
litnum þegar hann var handtek-
inn. - jss
Matarlitsmaður dæmdur:
Skal dvelja á
hæli í eitt ár
Rekstrarstjóri íþróttamannvirkja
Akraneskaupstaðar vill að bærinn selji
hoppkastala sem voru hugsaðir til
afnota í Akraneshöllinni en hafa verið
afar lítið notaðir. Framkvæmdaráð
Akranes frestaði því á síðasta fundi
sínum að taka afstöðu til málsins.
AKRANES
Hoppkastalar til sölu
EFNAHAGSMÁL Aldrei hafa fleiri
ferðamenn sótt Upplýsingamið-
stöð ferðamanna í Reykjavík í
septembermánuði en í nýliðnum
mánuði. Í tilkynningu kemur fram
að alls heimsóttu 29.170 ferða-
menn upplýsingamiðstöðina.
Heimsóknum hafði fyrir það
fækkað um 8,6 prósent fyrstu átta
mánuði ársins. Heildarfjöldi heim-
sókna stefnir í að verða meiri en
300 þúsund. Takist það verður
árið það annað besta hjá upplýs-
ingamiðstöðinni frá því mælingar
hófust árið 2002. - bj
Upplýsingamiðstöð heimsótt:
Aldrei fleiri í
september
Stórhækkun á orkuverði.
www.osram.is
Allt að
30 %
orkuspa
rnaður
Allt að
80 %
orkuspa
rnaður
Allt að
80 %
orkuspa
rnaður
Halogen sparperur Sparperur
LED-perur
Góðir sparnaðarvalkostir í stað glóperunna
r:
Sparaðu núna!
Jóhann Ólafsson & Co - umboðsaðili OSRAM á Íslandi frá árinu 1948
Orkuverð hefur stórhækkað að undanförnu sem leiðir til aukinnar greiðslubyrði
fyrir fjölskyldur landsins. Minnkaðu áhrif hækkunarinnar á þitt heimili og taktu
strax skref til sparnaðar.
OSRAM býður upp á fjölmarga valkosti til orkusparnaðar - kíktu til næsta
endursöluaðila og skoðaðu úrvalið.
Endursöluaðilar um land allt www.osram.is
OSRAM býður upp á fjölmarga valkosti til orkusparnaðar
Jóh
an
n Ó
laf
sso
n &
C
o
EVRÓPUMÁL Utanríkisráðherra ræddi afstöðu Evr-
ópusambandsins í Icesave-deilunni og hvernig
hún hefði dregið úr áhuga Íslendinga á ESB-aðild
á fundi sameiginlegrar þingnefndar Alþingis og
Evrópuþingsins á þriðjudag. Þetta var eftir að
sendiherra ESB á Íslandi hafði vakið athygli á að
Icesave-málið væri óleyst.
Sendiherrann, Timo Summa, reifaði að lausn
deilunnar myndi hafa jákvæð áhrif á ferli aðildar-
viðræðna.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra svar-
aði því til að það væri vissulega gott að leysa
Icesave, en ekki einungis vegna aðildarferlisins.
Mátti skilja á ráðherranum að það væri ekki ein-
ungis skortur á lausn Icesave-deilunnar sem
hefði spillt fyrir aðildarferlinu. Stuðningur
Íslendinga við aðild að ESB, mældur í skoðana-
könnunum, hefði aukist nokkuð jafnt og þétt uns
ESB tók afstöðu með aðildarríkjum sínum, Bret-
landi og Hollandi, í Icesave-deilunni.
„Hvort sem mér eða ykkur líkar að heyra það
eða ekki var það akkúrat þá sem stuðningur við
aðild datt niður,“ sagði utanríkisráðherra.
Cristian Dan Preda, rúmenskur Evrópuþing-
maður, minntist einnig á Icesave á fundinum, en
Evrópuþingið hefur ályktað að lausn deilunnar
myndi auka stuðning þingsins við aðild Íslands
að ESB. - kóþ
Utanríkisráðherra svarar fulltrúum ESB á fundi sameiginlegrar þingnefndar:
Afstaða ESB til Icesave dró úr áhuganum
Í ÞJÓÐMENNINGARHÚSI Á fundi sameiginlegrar þing-
nefndar Evrópuþingsins og Alþingis voru á fjórða tug
manna frá Íslandi og meginlandi Evrópu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA