Fréttablaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 16
16 7. október 2010 FIMMTUDAGUR
CHILE, AP Námumennirnir þrjátíu
og þrír, sem hírast á 700 metra dýpi
niðri í lokuðum námugöngum, fengu
ástæðu til að fagna í vikunni þegar
yfirvöld í Chile sögðust vongóð um
að þeim verði bjargað úr prísund-
inni strax í lok næstu viku.
Mennirnir hafa verið í tvo mánuði
niðri í göngunum og áttu ekki von
á að komast upp á yfirborð jarðar
fyrr en í næsta mánuði.
Undanfarnar tvær vikur hafa
mennirnir verið að búa sig undir
brottförina. Þeir hafa sent upp á
yfirborðið bréf frá ættingjum og
aðra persónulega muni, sem þeir
vilja ekki skilja eftir.
Þetta hefur verið flutt upp á yfir-
borðið í hylkjum, sem hafa verið
notuð til að flytja matvæli, hrein
föt, lyf og aðrar nauðsynjar niður
til mannanna í gegnum þröng göng,
sem tókst að bora til þeirra nokkrum
vikum eftir að þeir lokuðust inni.
Þrír borar eru notaðir til að bora
breiðari göng niður til mannanna,
svo hægt verði að flytja þá sjálfa
upp á yfirborðið með þar til gerð-
um hylkjum, sem sérstaklega hafa
verið smíðuð í þessu skyni.
Mennirnir hafa unnið að því að
flytja burt grjótmylsnu, sem hrun-
ið hefur niður í dvalarstað þeirra í
göngunum meðan borað hefur verið
niður til þeirra.
Mennirnir lokuðust niðri í göng-
unum þann 5. ágúst þegar 700 þús-
und tonn af grjóti hrundu og lokuðu
af neðri hluta ganganna. Í fyrstu
var talið að mennirnir hefðu farist,
en eftir að samband náðist við þá
hafa ættingjar og vinir dvalist við
yfirborðið og beðið eftir frelsun ást-
vina sinna.
Mikill fögnuður braust út þar í
vikunni þegar Cristian Barra iðn-
aðarráðherra sagði að byrjað yrði
að æfa björgunaraðgerðir á morg-
un, föstudag, með þyrlum og flutn-
ingabifreiðum.
Hann vildi þó ekki fullyrða að
björgunin sjálf væri á næsta leiti:
„Þetta þýðir bara að við viljum vera
vel undirbúin svo engin mistök verði
gerð þegar björgunin hefst.“
Sebastian Pinera forseti sagði þó,
nú í byrjun vikunnar, að vonir stæðu
til þess að mennirnir yrðu komn-
ir út undir bert loft áður en hann
færi af landi brott í Evrópureisu,
en þeirri ferð hefur verið frestað til
17. október. gudsteinn@frettabladid.is
Styttist óðum
í björgunina
Námumennirnir í Chile hafa fengið von um að
komast upp á yfirborð jarðar strax í lok næstu viku.
Síðustu tvær vikur hafa þeir búið sig undir björgun.
Tilboð opnuð í fyrradag*
Bjóðandi Milljónir kr. Kostn.áætl.
1. Voith Hydro 6.270 85,1%
2. Koncar-Litostroj Power (frávik) 6.436 87,4%
3. Koncar-Litostroj Power 6.616 89,8%
4. Andritz Hydro (frávik) 6.761 91,8%
5. Andritz Hydro 7.128 96,8%
6. IMPSA 10.203 138,5%
Kostnaðaráætlun 7.366 100%
*Heimild: Landsvirkjun / Tilboð í raf- og vélbúnað Búðarhálsvirkjunar
VIÐSKIPTI Fjögur fyrirtæki frá
Þýskalandi, Argentínu og Króatíu
buðu í uppsetningu raf- og vélbún-
aðar Búðarhálsvirkjunar. Tilboðin
voru opnuð í fyrradag á skrifstofu
Landsvirkjunar í Reykjavík.
Hæsta boð, 10,2 milljarðar króna,
var frá argentínska fyrirtækinu
IMPSA, nokkuð yfir kostnaðar-
áætlun ráðgjafa Landsvirkjunar.
Áætlunin nemur tæpum 7,4 millj-
örðum króna. Lægst bauð þýska
fyrirtækið Voith Hydro GmbH,
tæpa 6,3 milljarða króna, sem eru
tæp 85 prósent af kostnaðaráætlun.
Einnig buðu í verkið Koncar-Litos-
troj Power, frá Króatíu og Andritz
Hydro GmbH, frá Þýskalandi. - óká
Boðið í raf- og vélbúnað Búðarhálsvirkjunar:
Þýskt fyrirtæki var
með lægsta tilboðið
SVÍÞJÓÐ, AP Tveir rússneskir eðlis-
fræðingar, Andre Geim og Kon-
stantin Novoselov, fá Nóbelsverð-
launin í fræðigrein sinni í ár.
Þeir starfa við Háskólann í
Manchester í Englandi og hafa
kannað í þaula sterkustu og
þynnstu efni sem vitað er um.
Efnin verður væntanlega hægt að
nota til þess að smíða léttari flug-
vélar og gervihnetti, auk þess sem
þau geta nýst til að búa til fljótvirk-
ari tölvur en áður hafa þekkst.
Geim segir þetta geta orðið jafn
byltingarkennt og plastið á sínum
tíma.
Einn Bandaríkjamaður, Richard
Heck að nafni, og tveir Japanir,
þeir Ei-ichi Negishi og Akira Suz-
uki, fá hins vegar Nóbelsverðlaun-
in í efnafræði. Þeir fundu þróuðu
fyrir nokkrum áratugum bylting-
arkennda aðferð til að binda saman
kolefnisfrumeindir, en sú aðferð er
mikið notuð í framleiðslu lyfja og
víðar.
Heck segist hafa byrjað að gera
sér vonir um Nóbelsverðlaun fyrir
hálfri öld, þegar hann stóð á tví-
tugu.
Nóbelsverðlaunin verða að venju
afhent í Svíþjóð í desember. - gb
Tveir rússneskir eðlisfræðingar fá Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði og efnafræði:
Þróa örþunn efni til að smíða flugvélar
RÚSSARNIR TVEIR Eðlisfræðingarnir Andre Geim og Konstantin Novoselov á háskóla-
lóðinni í Manchester. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÝRALÍF Árásargjarn hrafn réðst
á barn og hund á Akranesi í
fyrradag. Fuglinn var aflífaður
í viðurvist lögreglumanna eftir
árásina. Þetta kemur fram á
Skessuhorni.is.
Hrafninn hafði komið sér fyrir
á sólpalli við hús eitt á Akranesi.
Í garðinum voru telpa og þriggja
mánaða gamall hvolpur að leik.
Þegar stúlkan beygði sig eftir
spýtu til að leika við hundinn
réðst hrafninn á hana og reyndi
að grípa í hana.
Móðir stúlkunnar segir í sam-
tali við Skessuhorn að barnið
hafi orðið skelfingu lostið og hafi
hlaupið inn með hundinn á eftir
sér. Hrafninn hafi elt þau en sest
síðan á pallinn gargandi. Haft
var samband við Náttúrufræði-
stofnun, sem gaf leyfi fyrir því að
hrafninn yrði drepinn.
Mannskæður fugl á Akranesi:
Óður hrafn
réðst á barn
GYÐJAN DURGA Verkamenn í Hyder-
abad á Indlandi leggja lokahönd á
styttu af gyðjunni Durga, sem verður í
hávegum höfð á níu nótta hátíð hind-
úa sem hefst á morgun. NORDICPHOTOS/AFP
Björgunarhylki fyrir námumennina í Chile
Sjóherinn í Chile hefur hannað sérstakt hylki til þess að flytja námumennina 33, sem hafa
verið lokaðir niðri í námugöngum í tvo mánuði, upp á yfirborð jarðar. Mennirnir eru á 700
metra dýpi og ferðin upp getur tekið allt að klukkustund fyrir hvern og einn.
© Graphic News Heimild: Asmar
Þyngd: 420 kg
Lengd: 3,9 m
Þvermál: 54 sm
Í hylkinu er hægt að
vera í hljóð- og mynd-
sambandi við fólk á
yfirborði jarðar.
4 mm þykk
stálplata
Vírnetshurð
Þrýstiloftsbirgðir:
Endast í allt að þrjár
klukkustundir
Hjól með höggdeyfum:
Renna eftir veggjum gang-
anna til að draga úr mótstöðu
Ólar:
Námu-
mennirnir
verða festir
með ólum
í öruggri
stöðu, sem
tryggir að þeir
skaðist ekki
þótt þeir falli í
ómegin.
Björgunargöng: 61 sm að
þvermáli. Málmklæðning á að
koma í veg fyrir að göngin falli
saman.
LETRUÐ Í STEIN Nöfn námumannanna
og hjálmur ofan á. FRÉTTABLAÐIÐ/AP