Fréttablaðið - 07.10.2010, Qupperneq 26
26 7. október 2010 FIMMTUDAGUR
Ekki meir, ekki meir
Nú er sú tíð að Íslendingar eiga bara eina fasteign
saman sem ekki verður metin
til fjár; það er alþingishúsið. Nú
virðist sterk samstaða um þetta
hús, það er að segja um að það
megi kasta í það skít. Enginn
mótmælir því. Ekki alþingis-
mennirnir sem starfa þar, ekki
fjölmiðlarnir. Er það kannski
komið í lög að alþingis húsið
megi eyðileggja með drullu-
kasti. Hvar er húsafriðunar-
nefnd?
Það er verið að bera fólk út.
Fólk á ekki fyrir mat. Það eru
langar biðraðir eftir mat. Neyð-
in hefur kvatt dyra á þúsundum
íslenskra heimila. Í örvilnan er
fólk að kasta tómatsósu í alþingis-
húsið. Hvað hefur alþingishúsið
gert fólki? Alþingishúsið er ekki
sökudólgurinn. Er alþingishúsið
tákn fyrir valdið? Þarf þá ekki
að muna að Alþingi er líka tákn
fyrir það vald sem við sóttum
af Dönum fyrir 66 árum? Þarf
ekki að hafa í huga að alþingis-
húsið er aðsetur lýðræðisins
og lýðræðið er besta stjórnar-
formið sem hefur verið fund-
ið upp nokkru sinni? Alþingi er
tákn þess valds sem við eigum
að hafa vit á að hafa fyrir okkur
sjálf. En valdið sem er vanda-
mál í dag er auðvaldið – ekki
Alþingi. Það er auðvaldið sem
ber ábyrgð á hruninu. Auðvald-
ið á ekki heima í alþingishúsinu
nema kannski innan í einum og
einum þingmanni.
Vel á minnst: Af hverju tekur
enginn alþingismaður upp
hanskann fyrir alþingishúsið?
Af hverju reynir enginn að
útskýra hlutverk Alþingis og
alþingishússins?
Fjöldi fólks öskrar í hljóð-
nemana að það eigi að leggja
Alþingi niður, að það eigi að loka
Alþingi. Viljum við einræði?
Nei, við viljum ekki einræði.
Það er ekki í lagi að henda skít
í alþingishúsið. Það er ofbeldis-
aðgerð. Það er ekki í lagi að
trufla Alþingi að störfum.
Alþingi á að starfa – á að tala og
á að komast að niðurstöðum.
Hámark hinna undarlegu við-
burða er þó þingmaðurinn sem
tekur sér leyfi frá þingstörf-
um og tekur inn varamann og
mætir á Austurvöll til að berja
tunnur.
Á kannski að flytja Alþingi
í burtu, vestur á firði? Á að
byggja plexíglerhús yfir alþing-
ishúsið og kannski dómkirkjuna
í leiðinni? Á Alþingi kannski að
funda í tjaldi sem er færan-
legt? Eða er það kannski lausn
að leyfa alþingishúsinu að vera
með ummerkjunum áfram, að
láta sturta yfir það rusli og skít,
dag eftir dag, nótt eftir nótt? Því
meira því betra. Og safna skítn-
um saman í hauga. Er það ekki
falleg tilhugsun þegar skíta-
haugarnir eru orðnir svo háir
að það sést ekki í alþingishús-
ið lengur? Leysir það vandann
að stafla fleiri tunnum fyrir
utan þinghúsið svo fleiri geti
komið og lamið? Vilja kannski
fleiri þingmenn taka sér frí frá
þingstörfum til að berja tunnur
fyrir utan alþingishúsið? Það
er þekktur málsháttur að það
glymur hæst í tómri tunnu. Sá
málsháttur átti við innantómt
fólk. Á kannski að halda upp á
200 ára ártíð Jóns Sigurðssonar
með því að eyðileggja alþingis-
húsið, þetta örhýsi lýðræðisins
á Íslandi?
Það er úrslitaatriði fyrir
íslenska alþýðu að hún eigi sér
virkt lýðræði og þingræði. Það
getur verið að auðstéttin lifi
þetta allt af og hún flytji úr
landi ef illa fer. Hún hefur arð-
rænt samfélagið í áratugi og
hún bíður greinilega blóðþyrst
eftir því að fá að ráða öllu aftur.
Alþingishúsið breytir engu
fyrir hana. En það er úrslita-
atriði fyrir kjör almennings á
Íslandi að fólk geti knúið fram
með félagslegum hætti ákvarð-
anir í sína þágu – á Alþingi. Það
á að safna liði með skipulegum
hætti og berjast fyrir bættu
þjóðfélagi, gegn auðvaldinu og
umboðsmönnum hennar.
Það leysir engan vanda að
kasta grjóti, drullu og matar-
afgöngum í alþingishúsið eða
dómkirkjuna.
Ekki meir, ekki meir.
Mótmæli
Svavar
Gestsson
starfaði í
alþingishúsinu í 35
ár sem blaðamaður,
þingmaður og ráðherra
Það er ekki í lagi að henda skít
í alþingishúsið. Það er ofbeld-
isaðgerð. Það er ekki í lagi
að trufla alþingi að störfum.
Alþingi á að starfa – á að tala og á að komast
að niðurstöðum.
Kletthálsi 11 - 525 8000 - www.bilaland.is
VIÐ ERUM Á KLETTHÁLSI 11VIÐ ERUM Á KLETTHÁLSI 11 VIÐ ERUM Á KLETTHÁLSI 11 VIÐ ERUM Á KLETTHÁLSI 11 VIÐ ERUM Á KLETTHÁLSI 11
NÚ LÁTUM VIÐ HJÓLIN SNÚAST!
BÍLALAND
EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS
BÍLALAND
EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS
BÍLALAND
EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS
BÍLALAND
EIN STÆRSTA BÍLASALA LANDSINS
LÍTIÐ EKINN!
220
BÍLAR TIL
SÝNIS Á EINU
M
STAÐ!
Dæmi um
ÓTRÚLEGA GOTT VERÐá okkar bílum
Subaru IMPREZA
Ek. 98 þús. Nýskr. 06/08. Bsk.
Verð áður: 1.990 þús. kr.
OUTLETVERÐ
1.490 þús. kr.
Land Rover FREELANDER
Ek. 86 þús. Nýskr. 04/08.
Sjálfskiptur
Toyota YARIS
Ek. 32 þús. Nýskr. 08/07.
Beinskiptur
Nissan MURANO
Ek. 97 þús. Nýskr. 08/05.
Sjálfskiptur
Opel VECTRA 1.9 CDTi
Ek. 20 þús. Nýskr. 06/08.
Sjálfskiptur
OKKAR VERÐ
4.690 þús. kr.
OKKAR VERÐ
2.490 þús. kr.
OKKAR VERÐ
3.620 þús. kr.
OKKAR VERÐ
3.130 þús. kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
5
8
1
Hinn 17. september kom út skýrsla nefndarinnar um
orku- og auðlindamál sem átti
m.a. að fjalla um sölu HS Orku til
Magma. Þetta eru mjög áhuga-
verðar 93 blaðsíður sem væri vel
hægt að nota sem upphaf á stefnu
þjóðarinnar í umhverfismálum
og umgengni á auðlindunum,
bæði til sjávar og lands. Þegar
skýrslan kom út voru nefndar-
menn spurðir hvort skúffan í Sví-
þjóð væri lögleg eða ekki. Þeir
sögðu að það væri túlkunaratriði.
Samstundis fór það upp á síður
fjölmiðlanna að salan til Magma
væri í lagi. Málið er ekki alveg
svona einfalt. Stjórn Íslands hefur
nú fjóra ráðherra í að fara í gegn-
um þessa skýrslu og mun líkleg-
ast koma með niðurstöður fljót-
lega. Nú á fimmtudag mun fara
fram málþing í Háskóla Íslands
þar sem ráðið verður í skýrsluna
með sérfræðingum, meðal ann-
ars nefndar mönnum sjálfum. Ég
skora á alla sem hafa áhuga að
mæta til að kynna sér þessa mjög
svo upplýsandi skýrslu.
Mér finnst of mikil áhersla
hafa verið lögð á það í umræðunni
um Magmamálið hvort þessi
fræga skúffan sé lögleg eða ekki.
Það er aðeins smáatriði í stóru
spurningunni: vilja Íslendingar
einkavæða aðgang að orkuauð-
lindum sínum? Könnun var gerð
þar sem rúm 80% Íslendinga
sögðu að þeir vildu það ekki. Til
að bregðast rétt við stöðunni þarf
ráðamenn með framtíðarsýn
og hugrekki, sem eru tilbúnir
að breyta lögum og síðan fram-
kvæma róttækar breytingar.
Tæp 20.000 manns hafa skrifað
undir á orkuaudlindir.is þar sem
þeir andmæla sölunni á HS Orku
til einkaaðila og krefjast þjóðar-
atkvæðagreiðslu um málið. Vilja
ráðamenn þjóðarinnar virkilega
þrýsta sölunni á þriðja stærsta
orkufyrirtæki landsins í gegn í
óþökk Íslendinga? Þetta mál snýst
ekki bara um söluna til Magma
heldur stefnu þjóðarinnar í orku-
málum. Mig langar að minna
þjóðina á að þeir sem vilja láta í
sér heyra í þessum málum ættu
að nota tækifærið og skrifa undir
núna.
Geysir Green Energy neitaði
þessari stjórnskipuðu nefnd um
aðgang að öllum upplýsingum.
Síðan sendi Geysir Green
umboðsmanni Alþingis fyrir-
spurn um hversu lögleg afskipti
nefndarinnar af sölu HS Orku
eru. Telur Geysir Green sig vera
yfir allt hafið, meira að segja
stjórnvöld landsins? Hljómar
þetta eitthvað kunnuglega? Gæti
þetta ekki þýtt að þeir hafi eitt-
hvað að fela? Hver eru annars
raunveruleg tengsl á milli Suður-
orku, Geysir Green, Magma, REI
og HS Orku? Þetta þarf að rann-
saka á sama hátt og bankahrunið
var rannsakað.
Nú þegar hafa ofangreind
fyrirtæki sýnt áhuga á Hruna-
mannaafrétt, Kerlingarfjöllum,
Öræfum, Krísuvík, Reykjahlíð
og Vogum við Mývatn. Magma
myndi ekki aðeins fá einkarétt á
nýtingu mikilvægra orkuauðlinda
heldur jafnframt þau leyfi og rétt-
indi sem HS Orka og Suðurorka
hafa og væri því komið í lykil-
stöðu víða um land. Eftir banka-
hrunið ættum við að hafa lært að
ekki sé gott að láta fáa viðskipta-
menn ákveða örlög okkar og ráð-
stafa peningunum okkar þar til
fjöldi manns hefur bæði misst
vinnu, hús, bíl og sjálfsvirðing-
una. Reiði þjóðarinnar fór ekki
framhjá neinum síðasta föstu-
dag og á mánudag. Á samt að
fara með náttúruna okkar á sama
hátt? Á að ræna náttúruauðlindir
okkar á sama hátt og bankana og
almenning?
Í síðustu viku var í fréttum að
Landsvirkjun hefði tekið enn eitt
gígantíska erlenda lánið á okkar
nafni á ekki of góðum kjörum,
keypt meirihluta að aðgangi á
Þeistareyki og lokið svo samþykki
við Alcoa og Rio Tinto um að
stækka álverið í Straumsvík. Öllu
þessu er skellt í gegn án umræðu
eða neinnar orkustefnu sem fólk
er sammála um. Ef verður af
stækkun álversins í Straumsvík
og Landsvirkjun klárar verk-
efni sitt á Þeistareykjum verða
langflest jarðvarmasvæði okkar
nýtt. Þá er of seint að gera aðra
hluti. Þegar hart er í ári og erf-
itt eins og núna ættum við ein-
mitt að vera að sá fræjum langt
fram í tímann. Ekki vera með
skyndilausnir eða óþarfa áhættu.
Af hverju stefnum við ekki að
því t.d. að rækta allt okkar eigið
grænmeti? Og síðan þegar þeim
áfanga er náð bæta við ávöxtum.
Eins og ég hef minnst á áður í
öðrum greinum finnst mér miklu
betra ef við fjárfestum í grænni
kostum. Þetta eru atvinnuskap-
andi hlutir sem vinna með land-
inu, bæta umhverfið, gera okkur
sjálfstæðari, gefa arðinn ekki frá
sér og munu vaxa í tugi ára, ekki
hrynja eftir fjögur ár.
Ómar Ragnarsson varð nýlega
sjötugur og þjóðin kepptist við að
leggja í púkk saman til að greiða
fyrir skuldir hans, þakka honum
fyrir óeigingjörn störf í þágu
náttúrunnar og stytta var reist
honum til heiðurs. En öll hans
barátta, bar hún árangur? Stöðv-
aði hann Kárahnjúkavirkjun? Mér
sýnist vera hefð fyrir því að finn-
ast náttúruverndarfólk vera sodd-
an dúllur og krútt og innst inni í
hjartanu á okkur vitum við öll að
þau hafa rétt fyrir sér en í „raun-
veruleikanum“ virkar það ekki,
þá hverfur trúin, og best að skella
bara upp stóriðju þrátt fyrir öll
mótmælin, og verðlauna fólkið
svo bara með styttu seinna. Hvað
vorum við að verðlauna? Hug-
rekki hans til að segja satt? En
ætlum við að fara eftir því? Eða
bara hlusta á það í smástund, bera
vinstri hendina upp að eyra og
svo halda áfram eyðileggingunni
með þeirri hægri? Hefur ein-
hvern tíma verið gerður almenni-
legur útreikningur um alla hina
kostina? Um það hvernig við vilj-
um að framtíðin sé? Fáum við
ekki að taka þátt í að skapa auð-
lindastefnu?
Framtíð þjóðarinnar í húfi
Ég skil að þegar þjóðin er að
heyja allar þessar stóru orrustur
er erfitt að gefa meðferð náttúru-
auðlinda athygli. Ekki pláss. En
tíminn er að renna út. Ef við
tökum ekki stefnu núna, sættum
þjóðina með t.d. þjóðaratkvæða-
greiðslu, ef við brúum ekki bilið
milli þessara ólíku en annars
líku fylkinga, þá gæti það orðið
of seint. Gæti verið líka að verið
sé að skella þessu í gegn einmitt
núna í skjóli kaossins?
Maður heyrir að fólki finnist
að sérstaklega núna í kreppunni
höfum við ekki efni á að hlífa
náttúrunni. En ef við seljum
aðgang að auðlindunum og afsöl-
um okkur ábyrgð á náttúrunni
erum við um leið að horfa fram-
hjá þeirri leið sem langflestir ráð-
gjafar hafa ráðlagt okkur að fara:
að halda auðlindunum okkar sjálf,
að vernda náttúruauðlindir okkar
og vera ábyrg í nýtingu þeirra.
Erfiðleikarnir eru miklir núna
og erfitt að horfa fram á við
þegar kreppir æ meira að á hverj-
um degi. En ef við hlúum ekki að
náttúruauðlindum okkar núna
eigum við á hættu að sýna af
okkur vítavert gáleysi gagnvart
framtíð okkar og barnanna okkar.
Nýja orkustefnu strax!
Magmamálið
Björk
Guðmundsdóttir
tónlistarmaður
En ef við hlúum ekki að náttúruauð-
lindum okkar núna eigum við á hættu
að sýna af okkur vítavert gáleysi gagn-
vart framtíð okkar og barnanna okkar.