Fréttablaðið - 07.10.2010, Síða 28
7. október 2010 FIMMTUDAGUR28
timamot@frettabladid.is
Sonur minn,
Björn Jóhannsson
lést á heimili sínu í Grasten í Danmörku sunnudaginn
3. október. Útförin fer fram í Grasten í Danmörku.
Fyrir hönd aðstandenda,
Soffía V. Björnsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
afi og langafi,
Óli Geir Þorgeirsson
Siglufirði, síðast til heimilis að
Boðaþingi 5-7,
lést þann 23. september síðastliðinn. Jarðarförin fór
fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir
færum við starfsfólki Hrafnistu Boðaþingi 5-7, 2. hæð
deild 5. Vinátta ykkar og kærleikur var honum og
okkur mikils virði.
Theodóra Óladóttir Höskuldur Pétur Jónsson
Sigfríður Ingibjörg Óladóttir Sverrir Björnsson
Birgir Ólason
Hulda Þorgeirsdóttir
barnabörn og barnabörn hins látna.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Feilan
Marinósson
fyrrverandi bryti, Háaleitisbraut 44,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 8. október kl. 15.
Annalísa Jansen
Anna Margrét Ólafsdóttir Pétur Gunnarsson
Sigrún Erla Ólafsdóttir Ágúst Birgisson
Guðrún Birna Ólafsdóttir Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson
Brynjar Marinó Ólafsson Þórný Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Hugheilar þakkir fyrir hlýjan hug og
sýnda samúð við andlát móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Ingu Sigríðar Pálsdóttur
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Guðjón Tómasson Þuríður Hanna Gísladóttir
Valdimar Tómasson Guðrún Júlíusdóttir
Guðrún Sólborg Tómasdóttir Sigurður Sumarliðason
Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
og barnabörn
Ástkær maður minn, faðir okkar, afi
og bróðir,
Haukur Kristjánsson
tæknifræðingur, Aragötu 12, 101
Reykjavík,
varð bráðkvaddur föstudaginn 1. október. Útförin fer
fram frá Neskirkju föstudaginn 15. október klukkan
13.00. Fyrir hönd aðstandenda,
Hildur Hafstað
Sigríður Helga Hauksdóttir
Hafrún Hauksdóttir
Áslaug Kristjánsdóttir
Petra Kristjánsdóttir
Erlingur Kristjánsson
Vilhjálmur Kristjánsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir og amma,
Rut Guðmundsdóttir
Flúðaseli, Flúðum,
verður jarðsungin frá Skálholtskirkju laugardaginn
9. október kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélagið.
Bjarni H. Ansnes
Þórunn Ansnes Sigurður I. Björnsson
Íris B. Ansnes Viggó Sigursteinsson
Bjarni H. Ansnes
Gunnar Sigurðsson
Mímir Sigurðsson Árlegir tónleikar til styrktar forvarna-
og fræðslusjóðnum Þú getur! verða
haldnir í Vídalínskirkju í kvöld klukk-
an átta. Meðal þeirra tónlistarmanna
sem koma fram eru Bubbi Morthens,
Geir Ólafs, Páll Rósinkranz, Raggi
Bjarna, Margrét Eir, Richard Scobie
og Haffi Haff.
Forvarna- og fræðslusjóðurinn Þú
getur! var stofnaður árið 2008 af.
Ólafi Þór Ævarssyni geðlækni og vinn-
ur með það að leiðarljósi að styrkja og
styðja forvarna- og fræðslustarf gegn
andlegum þjáningum og geðrænum
veikindum.
„Markmið sjóðsins er þríþætt, að
styrkja þá sem orðið hafa fyrir áföll-
um eða hafa átt við geðræn veikindi að
stríða, að efla þjónustu við geðsjúka á
sviði fræðslu og forvarna og að draga
úr fordómum gegn geðsjúkdómum,“
segir Ólafur Þór.
Ungt fólk með geðraskanir getur sótt
um námsstyrki til sjóðsins en einnig er
markmið hans að hvetja fagfólk geð-
heilbrigðisþjónustunnar í landinu og
vinna gegn fordómum, opna umræðuna
og auka þá fræðslu sem snertir geð-
heilbrigði. Í ár vinnur sjóðurinn eftir
þema Alþjóða geðheilbrigðisstofnun-
arinnar sem er Geðheilsa og langvinn
veikindi. „Við höfum verið í samstarfi
við bæði samtök og geðlækna sem hafa
áframsent til okkar umsóknir og í ár fá
fimm einstaklingar námsstyrki og einn
hópur einstaklinga fær hvatningar-
styrk frá sjóðnum,“ segir Ólafur, sem
er hugmyndasmiður sjóðsins.
„Hugmyndina fékk ég að mörgu
leyti úr starfi mínu, en í gegnum það
hef ég séð að það er hægt að gera
mikið úr litlu,“ segir Ólafur. Að hans
mati getur margt smátt gert krafta-
verk fyrir einstaklinga sem glíma við
geðræn veikindi. „Meðferð er oftar en
ekki mun ódýrari og einfaldari held-
ur en kostnaðurinn sem hlýst af því að
glíma við slík veikindi, sérstaklega ef
að um langvinn veikindi er að ræða og
er sjóðurinn hugsaður sem framlag til
meðferðar og forvarna.“
Sjóðurinn var stofnaður fyrir rúmum
tveimur árum. „Það var í raun heppni
að jafn vel skyldi ganga eins og raun
ber vitni. Ég fékk afskaplega gott fólk
í lið með mér strax frá upphafi,“ segir
Ólafur. En auk hans sitja í stjórn Ása
Ólafsdóttir lögmaður, Siv Friðleifsdótt-
ir alþingismaður, séra Pálmi Matthí-
asson sóknarprestur í Bústaðasókn og
Sigurður Guðmundsson forseti heil-
brigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og
fyrrverandi landlæknir. Jafnframt fer
Einar Benediktsson, fyrrverandi sendi-
herra, fyrir hópi bakhjarla sjóðsins
sem styðja starf hans ötullega. Ragn-
heiður Guðfinna Guðnadóttir sinnir
starfi verkefnastýru sjóðsins og stýrir
tónleikahaldi til fjáröflunar með aðstoð
Jóhanns Björns Ævarssonar tónlistar-
manns og Geirs Ólafssonar söngvara,
en tónleikar til styrktar sjóðnum verða
einmitt haldnir í kvöld.
Styrktartónleikarnir eru árlegur við-
burður þar sem margir af vinsælustu
tónlistarmönnum og skemmtikröft-
um landsins koma fram auk þess sem
á tónleikunum verða veittir náms- og
hvatningarstyrkir fyrir frumkvöðla-
starf í geðheilbrigðisstarfi. Þess má
geta að allir þeir tæplega 100 einstakl-
ingar sem koma fram á og að tónleik-
unum gefa vinnu sína. Tónleikarnir,
sem hefjast klukkan 20 í kvöld, fara
fram í Vídalínskirkju í Garðabæ og
verður heiðursgestur frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti.
- jbá
ÞÚ GETUR: ÁRLEGIR STYRKTARTÓNLEIKAR
Margt smátt gerir kraftaverk
MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT Ólafur Þór Ævarsson er stofnandi Þú getur! en sjóðurinn
stendur fyrir styrktartónleikum í kvöld í Vídalínskirkju í Garðabæ. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR söngkona og tónlistarmaður er 54 ára.
„Við þurfum að hjálpa náunganum og styðja við hann þegar
hann hrasar.“
54
Minjasafn Reykjavíkur var stofnað á
þessum degi árið 1954. Aðdragandinn
að því var sá að bæjarstjórn Reykjavíkur
hafði borist skrifleg áskorun um stofnun
þess tólf árum áður og var henni vísað til
umsagnar Reykvíkingafélagsins. Um það
leyti varð til vísir að skjalasafni safnsins
þegar farið var að safna gögnum um sögu
Reykjavíkur. Fimm árum síðar samþykkti
bæjarstjórn að stofna Bæjarsafn Reykja-
víkur og efna til bæjarsýningar, sem
haldin var í nýbyggðu húsi Þjóðminjasafns
Íslands við Suðurgötu árið 1949. Hófst
átak til þess að safna forngripum í tilefni
af því og varð það til þess að Skjala- og
minjasafn Reykjavíkur var formlega stofn-
að árið 1954 til að halda utan um þessa
gripi. Minjasafn Reykjavíkur var sameinað
Árbæjarsafni árið 1968.
Heimild: www.minjasafnreykjavikur.is.
ÞETTA GERÐIST: 7. OKTÓBER 1954
Minjasafn Reykjavíkur stofnað
ÁRBÆJARSAFN Minjasafn Reykjavíkur og
Árbæjarsafn voru sameinuð 1968.