Fréttablaðið - 07.10.2010, Qupperneq 46
Orange Elephant heita tvær nýjar
verslanir hér á landi með föndur-
vörur fyrir börn. Í maí á þessu ári
var opnuð verslun á Garðatorgi í
Garðabæ og nú í október var önnur
opnuð í Firðinum í Hafnarfirði.
„Okkur langar að búa til keðju
af verslunum en búðirnar á Garða-
torgi og í Firðinum eru eins. Okkur
langar einnig að opna fleiri búðir
annars staðar á landinu á næstu
árum en það bjóða ekki margar
verslanir upp á föndruvörur fyrir
krakka úti á landi,“ segir Katerina
Gerasimova eigandi verslananna.
Vörumerkið Orange Elephant
kemur frá Moskvu og dreifast
verslanirnar um allan heim. Kater-
ina er sjálf frá Sankti Pétursborg
og kynntist vörunum í Moskvu.
Hún hefur verið búsett hér á landi
síðustu sex ár og stund-
að nám í tölvufræð-
um við Háskólann
í Reykjavík. Hún
heillaðist þó svo
af vörum og
hugmynda-
fræði Orange
Elephant að
hún skellti sér
út í verslunar-
rekstur.
„Þetta er vel
skipulagt fyrir-
tæki sem vinnur
stöðugt að nýjungum
í þroskandi föndurvörum
fyrir börn. Allar vörurnar eru
öruggar og meira að segja óhætt
að borða þær.“
Katerina nefnir boltaleirinn
og mótunarleirinn sem vinsælar
vörur. Á laugardögum eru hald-
in námskeið fyrir krakka í versl-
un Orange Elephant á Garðatorgi.
Þar er málað, leikið með leir eða
skreytt. Þáttökugjald er eitt þús-
und krónur og taka börnin afrakst-
urinn með sér heim.
Heimasíða verslunarinnar er
www.orange-elephant.is.
heida@frettabladid.is
Þroskandi föndurvörur
Katerina Gerasimova rekur tvær verslanir Orange Elephant á Íslandi. Hún heillaðist af hugmyndafræði
appelsínugula fílsins í Moskvu og dembdi sér út í verslunarrekstur eftir nám í tölvufræðum við HR.
Bolta mótunarleirinn er
léttur og meðfærilegur og
auðvelt fyrir litla fingur að
móta úr honum.
Úrval af mótunarleir
í öllum litum er að
finna í verslununum.
Orange Elephant leggur
áherslu á að virkja sköpunar-
kraftinn í krökkunum.
Katerina, eigandi föndurvöruverslunar Orange Elephant í Firðinum,
kynntist vörumerkinu í Moskvu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í verslunarleiðöngrum er nauð-
synlegt að geta sest niður og
fengið sér hressingu.
Slíkt er ekkert
vandamál í Firði.
„ Stemningin á
kaffitorginu okkar
er eins og á lestar-
stöð,“ segir Jón Arelí-
usson bakari í Kökulist sem er á
neðri hæðinni. Þar er freistandi
tilboð á kaffi og tertusneið „alvöru
hnallþóru“, 680 krónur. „Fleiri og
fleiri eru að uppgötva samlokurnar
okkar og svo eru ótrúlega margir
orðnir háðir sörunum,“ segir Jón.
Á efri hæðinni er Café Aroma
með barnahorni og útsýni út á
fjörðinn. „Allar tertur
hjá okkur eru bakaðar í
litlum formum og born-
ar þannig fyrir hvern
og einn,“ upplýsir
Andrea Norðfjörð,
eigandi staðar ins.
„Svo erum við með
sleikipinna úr kexi fyrir
börnin,“ segir hún og nefnir líka
smurbrauð, pönnukökur og mömm-
uvínarbrauð. - gun
Smá kaffipása
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran syngur á öðrum hádegistónleik-
um Hafnarborgar í haust milli klukkan 12 og 12.30 í dag. Hún mun flytja
valdar aríur sem eiga það allar sameiginlegt að fjalla um draumaprinsinn
en það er jafnframt yfirskrift hádegistónleikanna að þessu sinni.
Þjónustukönnun
stendur yfir á vegum
Hafnarfjarðarbæjar þar
sem verið er að kanna
notkun á og viðhorf til
rafrænnar þjónustu á
vefsvæði og íbúagátt.
Sjá nánar á vef bæjar-
ins.
Heimild: www.hafnarfjordur.is
Firði Hafnarfirði
Sími 565 0073
Full búð af nýjum
vörum
Afnemum
virðisaukann
af öllum
gallabuxum