Fréttablaðið - 07.10.2010, Qupperneq 66
46 7. október 2010 FIMMTUDAGUR
Gylfi Ægisson verður með tónleika
á Faktorý í kvöld. Þar ætlar hann
að spila flest af sínum vinsælustu
lögum, þar á meðal Minningu um
mann og Stolt siglir fleyið mitt. „Ég
hef spilað þarna áður í afmæli en
það má segja að þetta séu fyrstu
stóru tónleikarnir í langan tíma þar
sem ég er alveg einn,“ segir Gylfi.
„Ég hef verið að spila þetta pró-
gramm í afmælum og skemmta hjá
íþróttafélögum og það hefur geng-
ið mjög vel.“
Gylfi Ægisson fæddist og ólst upp
á Siglufirði í umróti síldar áranna.
Árið 1974 kom út platan Gylfi Ægis-
son sem rokseldist og fleiri sóló-
plötur fylgdu í kjölfarið. Tónleik-
arnir hefjast stundvíslega kl. 22
en efri hæðin verður opnuð kl. 21.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Spilar sín bestu lög
GYLFI ÆGISSON Siglfirðingurinn knái
heldur tónleika á Faktorý í kvöld.
Stórstjörnurnar ungu Lady Gaga
og Justin Bieber stefna bæði að
sama takmarki þessa dagana: Að
komast upp í milljarðs áhorf á
myndbandasíðunni Youtube.
Búist er við að Gaga
verði á undan snáð-
anum Bieber og
nái takmarkinu 20.
október. Hún var
með um 1,8 millj-
ón áhorf á dag í
september. Bie-
ber nálgast hins
vegar Gaga á ógn-
arhraða, en hann er
með um 3,7 millj-
ón áhorf á dag.
Búist er við að
hann verði undir
í keppninni og
nái milljarðinum
í byrjun nóvem-
ber.
Youtube-stríð
VINSÆLL Justin Bieber er gríðarlega
vinsæll á Youtube.
KJÖTUÐ Búist er við
að áhorfstölur Lady
Gaga á Youtube nái
milljarði í október.
Meðlimum hljómsveitarinnar
Weezer hafa verið boðnar tíu
milljónir dala,
ríflega 1,1 millj-
arður króna,
fyrir að hætta
störfum. Það
var Seattle-
búinn James
Burns sem efndi
til undirskrifta-
lista á netinu
þar sem skorað
er á hljómsveit-
ina að hætta.
Vill Burns
meina að Weez-
er hafi verið á
niðurleið síðan platan Pinkerton
kom út árið 1996. Burns hefur
safnað 182 dölum en segir að ef
allir sem festu kaup á Pinkerton
leggi til 12 dali náist markmiðið.
„Ef þeir geta haft þetta
tuttugu milljónir, þá hættum við
með stæl,“ sagði Scott Shriner,
bassaleikari Weezer, í laufléttri
Twitter-færslu um málið.
Boðið stórfé
fyrir að hætta
STAÐNAÐIR Rivers
Cuomo og félög-
um í Weezer hefur
verið boðið stórfé
fyrir að hætta
störfum.
Hlustunarveisla verður haldin á
Austur í kvöld þar sem lög af nýj-
ustu plötum Hairdoctor, Retro
Stefson og Bix verða spilaðar. Þær
tvær fyrrnefndu koma út á vegum
Braks, undirmerkis Kimi Records,
en plata Bix kemur út hjá Muhaha
Records um miðjan nóvember.
Bix er nýfluttur heim frá New
York en hann bjó þar og í Los Ang-
eles í fjölmörg ár. „Ég var farinn að
sakna Íslands. Ég var búinn að vera
úti í þrettán ár og var kominn með
nóg af New York í bili,“ segir Bix,
sem heitir réttu nafni Birgir Sig-
urðsson. Þar í borg starfaði hann
við að semja tónlist við myndir og
auglýsingar. „Mig langaði að gera
meiri tónlist fyrir sjálfan mig. Það
er svo mikil gróska á Íslandi í dag
og svo mikil jákvæð sköpun í gangi.
Það er mikil orka hérna.“
Bix hefur á ferli sínum endur-
hljóðblandað lög við góðan orðstír,
meðal annars með lög með Beck,
Madonnu, Sigur Rós, múm og Gus
Gus. Hann gaf fyrir um tíu árum
út sex laga EP-plötu en nýja platan
hans, Animalog, er í fullri lengd.
Hún er elektrónísk þar sem lifandi
hljóðfæri fá líka sinn sess. Helm-
ingurinn er sunginn, þar sem Dan-
íel Ágúst og Phil Mossman, einn af
stofnendum hljómsveitarinnar LCD
Soundsystem, koma við sögu.
Plötusnúðarnir Sexy Lazer og
DJ Margeir ætla að gefa út tvö DJ
mix í kvöld og fólk getur mætt með
mp3-spilara í hlustunarpartíið til
að hala þau niður ókeypis. Veislan
hefst stundvíslega klukkan 21.30.
- fb
Kominn með nóg af New York
BIX Fyrsta plata Bix í fullri lengd, Anima-
log, verður spiluð í kvöld ásamt nýjum
plötum frá Hairdoctor og Retro Stefson.