Fréttablaðið - 09.10.2010, Page 46
9. OKTÓBER 2010 LAUGARDAGUR4 ● fréttablaðið ● bleika slaufan
● STYRKTAR- OG SÖLUAÐILAR BLEIKU SLAUFUNNAR
2010 Styrktaraðilar Bleiku slaufunnar 2010 eru Sölufélag garðyrkjubænda
og Hreyfill.
Bleika slaufan kostar aðeins 1.500 krónur og verður til sölu dagana 1.-
15. október hjá eftirtöldum söluaðilum sem selja slaufuna án álagningar.
● APÓTEK: Apótekarinn, Apótekið, Garðsapótek, Lyf og heilsa, Lyfja,
Reykjavíkurapótek, Rima Apótek, Skipholtsapótek, Heilsuhúsið, Lyfja-
ver og Lyfjaval.
● VERSLANIR OG AFGREIÐSLUSTÖÐVAR: 11/11, Belladonna, Besta,
Blómabúðin Dögg, Blómahönnun, Debenhams, Einar Farestveit & Co.,
Eirberg, Eymundsson, Fríhöfnin, Frumherji, Garðheimar, Grifill, Hag-
kaup (Kringlunni, Garðabæ og Skeifunni), Hrafnista, Hreyfil Bæjarleiðir,
Hyrnan, Iceland Travel Market, Islandia, Kaskó, Kjarval, Krambúðin,
Krónan, Hrím, Rauðakrossbúðirnar Fossvogi og Hringbraut, Leon-
ard, Melabúðin, Nettó, Nóatún, Olís, Parísartískan, Penninn,
Pósturinn, Samkaup, Smith og Norland, Strax, Úrval, Útilíf
(Glæsibæ, Kringlunni og Holtagörðum) og Þín verslun.
● Á NETINU: www.bleikaslaufan.is og www.femin.is.
● LEIGUBIFREIÐAR: Hreyfill.
● KAFFIHÚS: Kaffitár og Te & kaffi.
● SILFURÚTGÁFA: Einnig er Leonard í
Kringlunni, Smáralind og Leifsstöð með
silfurútgáfu af slaufunni til sölu. Hana er
hægt að fá sem hálsmen eða sem nælu á
9.500 krónur.
„Þegar fólk greinist með krabbamein tapar það áttum
í fyrstu þegar áður óþekktur veruleiki blasir við. Því
hvet ég alla sem greinast með krabbamein til að leita
til Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins eftir að-
stoð og upplýsingum því flest þarf að hugsa upp á nýtt,“
segir Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi
hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, en
þar er veitt þjónusta fólki að kostnaðarlausu.
„Þegar krabbamein greinist er eðlilegt að það or-
saki kvíða hjá viðkomandi einstaklingi og fjölskyldu
hans varðandi framtíðina, bæði hvað varðar heilsu,
fjárhag og ýmsa félagslega þætti. Við slíkar aðstæður
getur verið mikil hjálp fólgin í því að fara yfir stöðu
sinna mála með aðstoð fagaðila og gagnlegt að gera
sér hugmyndir um þá framtíð sem í vændum er, því
oft er hægt að fyrirbyggja að léttvæg vandamál valdi
áhyggjum og kvíða, eða jafnvel depurð og vonleysi,“
segir Gunnjóna Una og útskýrir að í samfélaginu séu
til staðar ýmis úrræði sem létta eigi undir með fólki
sem verður fyrir heilsutjóni.
„Almennt stendur fólk misvel að vígi hvað áunnin
réttindi hjá stéttarfélögum og lífeyrissjóðum varðar,
en fyrst eftir að fólk veikist nýtir það rétt sinn á vinnu-
markaði. Eftir að honum lýkur taka við greiðslur úr
sjúkrasjóðum stéttarfélaga og þegar þær falla niður
getur fólk fengið lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins,
félagsþjónustu sveitarfélaga eða frá lífeyrissjóðum, en
lög tryggja að allir njóti lágmarks framfærslu,“ segir
Gunnjóna Una og ítrekar að í Ráðgjafarþjónustunni
sé hægt að fá aðstoð við að afla upplýsinga um áunn-
in réttindi og aðstoð við að sækja um lífeyri og annað
sem fólk á rétt á í samfélaginu.
Í Ráðgjafarþjónustunni starfa fleiri fagstéttir og þar
er haldið úti vönduðu fræðslustarfi í formi fyrirlestra,
námskeiða og einstaklings- og hópviðtala. Dagskrá og
nánari upplýsingar á: www.krabb.is/rad.
Hjálp á óþekktum vegum
Félagsráðgjafinn Gunnjóna Una Guðmundsdóttir er verk-
efnastjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands. Hún hvetur alla sem
greinast með krabbamein til að nýta sér ókeypis þjónustu
Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þetta er fjórða árið sem Bifreiða-
stöðin Hreyfill/Bæjarleiðir tekur
niður hefðbundnu gulu hattana og
setur upp þá bleiku. Þessi skemmti-
lega upplyfting á leigubílunum er
liður í bleiku slaufu átaki Krabba-
meinsfélagsins.
Tíu krónur af hverri ferð hjá
Hreyfli/Bæjarleiðum renna til
Krabbameinsfélagsins auk þess
sem bílstjórarnir selja bleiku slauf-
una til styrktar félaginu. Bílstjór-
arnir eru sammála um að gífurlegt
hópefli og samkennd eigi sér stað
þegar að verkefnið fer af stað og
að menn leggi mikinn metnað í að
selja slaufurnar, sumir hverjir fá
jafnvel fjölskyldumeðlimi til að að-
stoða við söluna til að styrkja mál-
efnið til hlítar.
Leigubílarnir munu skarta þeim
bleika í tvo mánuði og styrkja þá
Krabbameinsfélagið í leiðinni eins
og fyrr greinir en salan á slaufun-
um varir einungis í tvær vikur.
Taktu þann bleika
Tíu krónur af hverri ferð renna til
Krabbameinsfélagsins.
Hversu margir fá
krabbamein á Íslandi?
Brjóstakrabbamein 186 28,9% 90%
Lungnakrabbamein 72 11,2% 16%
Ristilkrabbamein 45 7,1% 59%
Sortuæxli í húð 29 4,6% 94%
Húðkrabbamein, önnur en sortuæxli: 28 4,4% 100%
Krabbamein í legbol 28 4,4% 80%
Heilaæxli og önnur æxli í miðtaugakerfi 26 4,0% 66%
Krabbamein í skjaldkirtli 23 3,5% 96%
Nýrnakrabbamein 18 2,8% 57%
Krabbamein í þvagvegum (þvagblöðru o.fl.) 18 2,8% 69%
Árlega
greinast
Hlutfall
kvenna sem
fá krabba-
meinið á lífs-
leiðinni Lífslíkur
Ragnheiður Ingibjörg Mar-
geirsdóttir vöruhönnuður á
heiðurinn að hönnun bleiku
slaufunnar í ár en tillaga henn-
ar var valin úr hátt í 80 tillög-
um í samkeppni sem haldin
var í samvinnu við Hönnunar-
miðstöðina.
Útlit bleiku slaufunnar í ár, sem
Ragnheiður Ingibjörg Margeirs-
dóttir vöruhönnuður hannaði, má
rekja til þjóðbúnings í eigu ömmu
Ragnheiðar. Tillaga hennar að
slaufunni var valin úr hópi hátt í
áttatíu annarra.
„Allt frá því að ég fór að hugleiða
þátttöku í keppninni um hönnun
bleiku slaufunnar var ég viss um
að mig langaði til að sækja hönn-
unina í gömul mynstur. Mér finnst
það falleg tilhugsun að tengja slauf-
una formæðrum okkar. Ég hef áður
unnið með gömul mynstur, til að
mynda úr þjóðbúningi Sigurðar
Guðmundssonar málara. Nú sótti
ég innblástur í skúfhólk á skotthúfu
við þjóðbúning sem amma mín heit-
in átti og móðir mín á núna,“ segir
Ragnheiður. Hólkurinn sem Ragn-
heiður vísar í er skreyttur tveim-
ur mynstrum, en Ragnheiður not-
aði bæði mynstrin á slaufurnar og
eru því tvær útfærslur í boði. Á sér-
stakri silfurútgáfa Bleiku slaufunn-
ar notast Ragnheiður við annað
mynstrið í hálsmen og hitt í nælu.
„Ég hef ætíð heillast af skúf-
hólknum á skotthúfunni. Amma
mín spáði því að ég yrði forn-
leifafræðingur enda var ég mikill
dútlari og hreifst af gömlu þegar
ég var yngri. Það er kannski ekki
skrýtið að ég hafi endað sem vöru-
hönnuður með ræturnar í arfleið-
inni.“ Ragnheiður segir að bleika
slaufan sé draumaverkefni.
„Það er ekki á hverjum degi sem
íslenskir hönnuðir eiga möguleika
á að fá verk sín framleidd í svona
magni. Málstaðarins vegna er líka
gaman að taka þátt enda alltaf ein-
hverjir í umhverfi manns sem hafa
þurft að standa í þessari baráttu.
Ég hvet alla til að styrkja málefn-
ið. Margir nota slaufuna sína áfram
eftir átakið sem skartgrip, sumir
safna slaufunum og ég veit að út-
lendingar, sem hafa einhver tengsl
við landið, eru mjög hrifnir af þess-
ari hugmynd.“ Ragnheiður hefur í
kjölfarið á slaufuhönnuninni hafið
vinnu að eigin skartgripa línu sem
seld verður á næstunni í verslun-
um Leonard, sem selur silfurútgáfu
slaufunnar, en Ragnheiður hefur
einnig hafið störf hjá versluninni.
- jma
Sótti innblástur til ömmu
Silfurútgáfuna af slaufunni er bæði
hægt að fá sem nælu og hálsmen.
„Mér finnst það falleg tilhugsun að tengja slaufuna formæðrum okkar,“ segir Ragnheiður Ingibjörg Margeirsdóttir, hönnuður
bleiku slaufunnar í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI