Morgunn - 01.06.1938, Qupperneq 20
14
MORGUNN
„Dauðinn táknar frelsi“ segir stjórnandinn.
»Hinn mikli uppskerumaður kallar þá heim hvern ai
öðrum, svo að lifsrásin haldi áfram skínandi fögur í full-
komnara heimi«, sagði Silver Birch, þegar Swaffer minnt-
ist á, að Nellie Tom Gallon nafnkunnur spíritisti væri kom-
in yfir.
»Það veldur tárum í yðar heimi, þegar þeir hverfa
yður sýnum, en fögnuði hjá oss þegar vér heilsum ný-
frelsuðum sálum, sem eru að byrja að njóta þeirrar lífs-
gleði, sem ekki er unt að lýsa á jarðnesku tungumáli.«
»Ég er alt af að reyna að kenna það, að dauði táknar
frelsi, og þegar þér syrgið þá, sem eru fluttir frá yðar
tilverustígi, þá fögnum vér yfir að vita, að þeir eru byrj-
aðir að lifa í nýju frelsi, nýrri sælu með meira tækifæri til
að láta í ljósi það sem býr innra með þeim, sem oft tókst
ekkí að gjöra sér grein fyrir í efnisheiminum.
Þér eígið þá sælu þekkingu, að þeir eru yður ekki
týndir, og ég vil segja yður að eftir því sem rnáttur
þeirra styrkist og þróast í lifinu hjá oss, þá koma þeir
ætíð aftur til ykkar til þess að hjálpa yður í hinni miklu
baráttu, sem vér erum að heyja.
Þessi mikla barátta heldur áfram dag eftir dag í öllum
áttum efnisheimsins, baráttan milli máttarvalda andans og
hinna viðbjóðslegu máttarvalda efnishyggjunnar og eigin-
girninnar. En vér keppum áfram til sigursins, sem ekki
getur brugðist, því að jafnvel þótt stundum miði aftur á
bak, og það geti litið svo út að máttur andans sé
yfirbugaður vegna hinna máttugu mótstöðuafla, þá mun
sigurinn verða vor.
Þér munuð öll renna augum til baka yfir þann þátt, sem
þér hafið átt í þessu starfi, til þeirrar huggunar og þekk-
ingar, sem þér hafið veitt svo mörgum. Þér vitið ekki, hve
mikið það er, sem þér vinnið, þér vitið ekki hve
ótölulegar þúsundir í efnisheiminum fagna vegna þess, sem
við höfum komið til leiðar.
Þér hafið átt yðar þátt í því, að breiða út þessa þekk-