Morgunn - 01.06.1938, Blaðsíða 51
MORGUNN 45
ósjálfráða skrift eða trancetal, þar sem engar sannanir koma
fram.
En þegar sannanirnar fara að koma, þá fer óneitanlega
að vandast málið. Þegar ég fæ alveg óvænt hjá miðli í
London milli 10 og 20 nöfn á mönnum, sem hafa staðið
mér mjög nærri, sumpart í Kaupmannahöfn, sumpart í
Ameriku, sumpart á íslandi, er það þá eingöngu frá miðl-
inum runnið? Þegar ég fæ lýsing á tengdamóður minni,
sem dáið hafði í Danmörku fyrir mörgum árum, ásamt
búningi hennar, sem mikið hafði verið talað um í fjölskyld-
unni, en ég hafði aldrei séð, né heyrt getið um, er það
eingöngu frá miðlinum? Þegar miðill ritar ósjálfrátt vestur
í Ameríku setningu, sem virðist vera vitleysa, þegar annar
miðill ritar ósjálfrátt austur á Indlandi setningu, sem
líka virðist vera vítleysa. og þegar miðill á Englandi ritar
ósjálfrátt setningu, sem enn virðist vera vitleysa, og þeg-
ar fult vit reynist í setningunum, og jafnvel sérþekking á
sérstökum fræðigreinum, þegar fulltrúar brezka rannsókna-
félagsins bera alt saman — er það þá eingöngu frá miðl-
inum komið? Svona mætti halda áfram dag eftir dag.
Dæmin skifta þúsundum. Þeir, sem aðhyllast spiritistisku
skýringuna, sjá ekki ástæðu til að ætla, að þetta sé alt
runnið frá hæfileikum miðilsins. Og ég held, að það sé
engin von, að þeir sjái það.
Við skulum taka dæmi af fýsisku fyrirbrigðunum, lik-
amningarnar. Við vitum, að efni streymir út úr miðlinum,
sem á íslensku hefir verið nefnt útfrymi, en aðrar þjóð-
ir hafa ýmist nefnt ectoplasma eða teleplasma, og að úr
þessu efni eru likamningarnir gerðir. Eg hefi séð efnið.
Mikill mannfjöldi hefir séð það. Sumir hafa handleikið það.
Sumir hafa analýserað það. — (Þó að prófessorinn í Osló
lýsi yfir því með magt og miklu veldi, og meira að segja
á latínu til þess að gefa þeim meiri myndugleika og Iær-
dómssvip: »Teleplasma non est«.) En hver býr til manns-
likama úr útfryminu, likama, sem getur gengið, hugsað og
talað? Er það undirvitund miðilsins eða einhverra fundar-