Morgunn - 01.06.1938, Síða 68
62
MORGUNN
Þessi gáfa kemur fram á ýmsan hátt, og kem ég að því
síðar. En algengust og þektust hér til sveita á íslandi
mun vera sú tegund miðilsgáfu, sem nefnd er skygni og
skygnír eru þeir kallaðir, sem hana hafa. En það eru mjög
mikil líkindi til að samfara skygninni séu fleiri tegundir
miðilsgáfu, þó að það sé ekki á vitorði þeirra sem eiga
hana, sökum þess að engar tilraunir hafa verið gerðar í þá
átt að rannsaka það.
Það eru nú liðin 90 ár síðan fyrst var farið að gjöra
tilraun til aö rannsaka dularfull fyrirbrigði. Vestur i Ame-
ríku í húsi þar, sem tvær systur áttu heima, urðu tölu-
vert mikil brögð að höggum og flutningum á hlutum, sem
engar sýnilegar hendur snertu þó á. Einu sinni þegar bar
óvenjulega mikið á þessum einkennilegu höggum, þá datt
annari systurinni í hug, að skora á þetta leyndardómsfulla
afl, að svara spurningum sínum með ákveðinni tölu af
höggum og var það gjört á þann hátt sem um var beðið.
Nú datt þeim í hug að fara með stafrófið og biðja þessa
ósýnilegu veru að berja högg við þann staf, sem við ætti í
það skifti. Þetta hepnaðist ágætlega. Og nú fór þessi ósýni-
lega vera að setja saman á þennan hátt orð og setning-
ingar, þannig að systurnar fóru með statrófið en veran
sló eitt högg þegar kom að þeim rétta staf. Þessi saga
flaug eins og eldur í sinu út um þorpið. Og nú fóru menn
að leggja ýmsar spurningar fyrir þessa ósynilegu veru, og
fá einkennilega glögg svör. Eitt skifti voru viðstaddir um
200 manns til að horfa á þessi undur. Þá var kosin nefnd
af þorpsbúum til að rannsaka, hvort ekki væri höfð svik í
frammi við þessar tilraunir. Og hún komst að þeirri niður-
stöðu, að svo væri ekki. Þessi fregn barst viðara, en hún
mætti hvarvetna undrun og tortrygni. Nefndir voru settar
á laggirnar til að rannsaka málið og ströngustu gagnrýni
var beitt, eftir því sem menn bezt höfðu vit á. En
alt kom fyrir ekki, fyrirbrigðin gjörðust og það var ekki
hægt að sanna svik á þær systurnar. Menn urðu því að
gjöra sér að góðu hvort sem þeim var það Ijúft eða Ieitt,