Morgunn - 01.06.1938, Page 111
MORGUNN
105
að gjöra heiminn að betri stað, hvort sem þeir lifa sjálfir
til að sjá árangur af því eða ekki. Þetta er vandráðin gáta.
Þetta eru sannarlega miklir menn og þeir gjöra þjóð sína
sannarlega mikla. Og vér þurfum ekki hygg ég að bera
neinn kvíðboga fyrir trúarbrögðum þeirra, því að líf þeirra
stjórnast af því, sem er hinn sanni kraptur í allri verulegri
— það er framkvæmdarsamri — trú. Það er kœrleikur til
annara. Ég hefi ánægju af að hugsa mér, að þeir fái
óvænta umbun er þeir fara yfir fyrir sitt óeigingjarna líf.
Að minsta kosti er oss opt sagt, að svo sé.
En mér getur ekki annað skilist, en að fyrir hina mörgu
minni háttar dauðlega menn — eins og þeir gjörast al-
ment — hljóti það að vera feykilegur munur að snúast
frá afneitun til trúar á hið andlega. Ég get ekki ímyndað
mér annað, en að hver sá maður, sem fengið hefir þekk-
ing á andlegri undirstöðu til að byggja á líf sitt — hversu
óljós sem sú þekking væri — muni lifa því alt öðru vísi
og miklu minna eigingjarnt, svo hið minsta sé sagt, held-
ur en hann mundi gjöra, ef algjörð afneitun væri ráðandi
hjá honum. En undarlegt má það sýnast og eftirtakanlegt
að flestir þeir, sem lengst fara i því að trúa ekki, eru
menn með drengilegri einurð og eiginleikum, sá flokkur
manna, sem ég áðan var að tala um, og þessir eiginleik-
ar skapa heilbrigðan siðferðislegan grundvöll fyrir lífið.
Þeir sem eru þannig algjörðir trúleysingjar eru í raun-
inni fáir og sjaldgæfir. Ég veit þetta af reynslu, þvi að
það er mitt starf að rannsaka líf manna. Ef þetta væri
ekki svo, þá væri lífið enn verra en það er. í þessu ligg-
ur mesta hættan við guðleysisherferðina í Rússlandi og
víðar. Að innræta almennar siðahugmyndir guðleysingja
börnum, sem eru þroskalaus til að standa á móti siðspill-
ingu, grimd og glæpum, hlýtur óumflýjanlega að leiða til
ábyrgðarsnauðrar eigingirni.
Hið tilfinningarlega gildi. Með því á ég við hin gjör-
breytandi áhrif á harmleik dauðans, sem svo er með óréttu
nefndur, Og hér get ég aftur talað af núkilli eigin reynslu.