Morgunn


Morgunn - 01.12.1941, Síða 5

Morgunn - 01.12.1941, Síða 5
MORGUN N 103 Konan í eldinum. Það var á síðari hluta ársins 1932, að stúlka, sem ég kalla M., hringdi til mín og bað mig um viðtal. Ég tiltók hvenær hún mætti koma. Á tilsettum tíma kom hún, og sagði að erindið væri að tala um dulræn efni, og vita hvort ég sæi nokkuð hjá sér. Er við höfðum setið og rætt saman litla stund, opnast mér sýn og sé ég greinilega hjá henni gamlan mann. Lýsi ég honum nokkuð, en hún kannast ekki við hann og hverfur hann von bráðar. Þá sé ég hjá henni fullorðna konu og er hún ákaflega sterk og greinileg. Ég set hér lýsinguna, eins og ég sagði hana frk. M. og hún síðar staðfesti rétta í öllum at- riðum, eins og ég mun geta um síðar. ,,Það stendur'hjá yður fullorðin kona, á að gizka um sjötugt. Hún er í hærra lagi en frekar grönn. Hún er með grá augu, háar miklar augabrúnir, hakan er niðurmjó, annað munnvikið hallast dálítið niður. Þá er hún talar virðist hún hafa haft þann vana, að halla höfðinu lítið eitt til hliðar. Hún hefir langa handleggi og fingurnir eru nokkuð mjóir. Nú bregður hún upp mynd af bæ. Hann er mjög lítilfjörlegur og hrörlegur torfbær, næstum því niðurgrafinn. Hann er lágur og aftan við hann er þver- bygging. Bær þessi stendur á sléttlendi, en í nokkurri fjarlægð eru fjöll“. Allt í einu hrekk ég mikið við, M. hefir orð á þessu og spyr hvers ég verði nú var. Ég sé að eldblossar gjósa upp kringum konuna, hún stendur í ljósum loga, og fyrir því varð mér nokkuð bilt við. Ég segi M. frá þessu, en hún kannast ekki við neitt. Þetta hverfur jafnskjótt og það kom. „Nú kemur hún í sirstreyju, nokkuð slitinni og upplitaðri“. M. getur ekki þekkt konuna, en minnir samt að hún kannist við sirstreyjuna. Annað atriði var einnig, sem gaf henni nokkuð til kynna að verið gæti, að þetta væri móðir mágs hennar, en hana hafði M. aðeins séð í svip einu sinni. En þetta síðara atriði er ekki hægt að setja hér, 8*
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.