Morgunn - 01.12.1941, Qupperneq 87
MORGUNN
185
fæðing? Þeir eru þar ævinlega við staddir. Sagði Kristur
oss ekki frá návist þjónandi engla við andlát Lazarusar?
Og yrkir séra Hallgrímur ekki 1 sálminum fagra um sálar-
stríðið í Getsemane:
„Sjá þú, að eng-ill sendur var,
syni Guðs hér til huggunar.
þeir góðu andar oss eru nær
alla tíma, þá biðjum vær.
Helzt bá lífsenda iíður að
Lazarí dæmi kennir það“.
Þessi forn-kristilega kenning hefir á öllum öldum hlotið
stuðning frú dulskyggnu fólki, og jafnvel -meðal vor er
hér í kirkjunni í dag fólk, sem þetta getur vottað.
Þegar silfurþráðurinn slitnar megum vér eiga það víst,
að gæzkuríkur Guð hefir falið oss vernd og umsjá þjón-
andi anda eða engla, sem veita oss alla þá líkn, sem nauð-
synleg er veiku og vanmáttugu barni.
Sú heilaga þjónusta Guðs eilífu náðar fer fram í dán-
arherbergjum sjúkrahúsa og heimila, hún er leyst af
hendi í ósegjanlega djúpum friði á stormöldum hafsins,
þar sem sæfarandinn siglir sinni hinnstu sigling, og þessi
þjónusta er veitt með heilagri kyrrð mitt í háreysti og
orustugný vígvallanna. Þessi verk vinna heilagar verur
frá þeirri veröld, sem skilur til fulls það, sem jarðnesk-
um mönnum gengur illa að átta sig á, að helgustu for-
réttindi tilverunnar eru þau, að mega þjóna:
„Þitt verðmæti gegn um lífið er fórnin,
en til þess veit eilíi'ðin alein rök!“
Ef vér mættum, þó ekki væri nema í svip, sjá það of-
urmagn ástúðarinnar, sem þeirri þjónustu ræður, mund-
um vér vissulega hugsa til þess með fagnaðarskyldri lotn-
ing, en ekki ótta, þegar silfurþráðurinn slitnar.
Prédikarinn, sem ég tók frá texta minn í dag, segir að
moldin, jarðneski líkaminn hverfi aftur til jarðarinnar,
þar sem hún hafi áður verið, að jörðin hafi að eins um