Morgunn - 01.12.1941, Page 34
132
MORGUNN
Annars-heims efni.
Eftir doktor W. Garton.
Sérhver sanngjarn og óhlutdrægur maður eða kona,
sem kynnir sér eitthvað fyrirbrigði sálarrannsóknanna,
hlýtur að komast að þeirri niðurstöðu, að þessi yfir-
venjulegu sálrænu og líkamlegu fyrirbrigði hafa hlotið
þá staðfestingu, sem ekki er neinum skugga af efa undir-
orpin. Það er því vissulega tímabært, að fundin sé ein-
hver starfstilgáta, sem geti átt við flestar þessar stað-
reyndir og verið til skýringar og leiðbeiningar við fram-
haldsrannsóknir á þeim.
Hvort heldur sem tilgátan um ljósvakann (eterinn)
lendir í sömu ruslakistu, sem margar vísindalegar tilgát-
ur hafa lent, eða hún reynist vera raunveruleg, þá getur
enginn neitað því, að sem starfstilgáta hefir hún hjálpað
mjög til aukinnar þekkingar. Væri þá ekki hugsanlegt
— og jafnvel líklegt — að áþekk tilgáta gæti leitt til
mikils þekkingarauka á sviði hinna sálrænu rannsókna?
Þegar vísindamennirnir á öndverðri átjándu öld gátu
þess til, að til væri efni, sem þeir nefndu ,,eter“ og að það
væri alstaðar og í öllum hlutum og skýrðu með því
gagnkvæm áhrif fjarlægra hluta hvers á annan — þá
var það djörf hugmynd. Þekkingin á þeim tímum á allri
samsetningu efnisins var mjög hægfara í samanburði
við það, sem nú er orðið, og skoðanir vísindamanna ekki
síður en alls almennings hljóta að hafa verið varbúnar við
svo óvæntri nýjung. Hið eina sem á þeim tíma gat rétt-
lætt slíka tilgátu, var það, að það stuðlaði að einfaldri
skýringu á staðreyndum, en árangurinn hefir réttlætt
hana ríkulega.
Til þess að fá einfalda skýringu á yfirvenjulegum sál-
rænum og líkamlegum fyrirbrigðum, ætti það vissulega