Morgunn - 01.12.1941, Blaðsíða 82
180
MORGUNN
fæddist. Það var ekki fyrr en mörgum mánuðum síðar, að
hann fór að gera fyrstu tilraunir sínar til að tala ensku
eða afríkönsku, sem hann heyrði daglega heima hjá sér.
R. H. Gardner.
(Vottorð föðurins fylgir.)
Þegar silfurþráðurinn slitnar.
Prédikun á Allra sálna messu eftir séra Jón Auðuns.
Flutt fyrir Frjálslynda söfnuðinn í Rvík.
Pred. 12, 6—7.
Náð, blessun og friður sé með oss öllum, jarðneskum og
ekki-jarðneskum, sem leita hér friðar og kyrrðar helgi-
dómsins í dag.
Þegar vér komum hér saman í helgikyrrð síðdegisins
til þess að minnast látinna vina, finnum vér, að vér erum
saman komin til hátíðar. Hér er hátíð innan veggja og
hátíð í hverju hjarta.
Allra sálna messa er hinn æva forni minningardagur
kirkjunnar um þá, sem voru oss hjartfólgnir á meðan þeir
dvöldu með oss og eru oss dýrmætir enn. Af misskilinni
andúð gegn hátíðadögum hinnar fornu, rómversk-kaþólsku,
kirkju hefir vor lúterska kirkja hér á landi glatað þess-
um degi Úr helgihaldi sínu og þar með týnt einni fegurstu
perlunni úr safni helgidaga sinna og hátíða.
Þessa hátíð höldum vár hér í dag, og ekki vér ein, heldur
einnig þeir blessuðu vinir með oss, sem vér erum að minn-
ast. Þess vegna beinum vér til þeirra allri ástúð vorri,
sem nú er endurvakin af minningum ljúfra og liðinna
samvistardaga, og segjum: Liðinn faðir og látin móðir,
sem vér eigum allt hið dýrasta að þakka frá bernsku- og
æskuárunum, systir eða bróðir sem áttuð með oss unaö