Morgunn - 01.12.1941, Page 97
MORGUNN
195
saman, yrði vafalaust til mikillar ánægju og uppörvunar
öllum þeim, sem tækju þátt í slíkri starfsemi. Sálarrann-
sóknafélagi íslands væri mikil ánægja, að fá að vita um
slíka flokka úti um landið, og mundi geta veitt þeim stuðn-
ing. Félagið á nokkurt safn bóka um sálræn efni, sem það
mundi fúslega senda til afnota út um land, og hver slíkur
flokkur ætti að eiga MORGUN frá upphafi, því að úr hon-
um mætti vinna mörg fundaefni, bæði til samlesturs og
umræðna. Auk þess mundi félagið e. t. v. geta látið slík-
um flokkum nokkurt fundaefni í té, jafnhliða því, sem það
er notað á fundum S. R. F. í. í Reykjavík. Ritstjóri
MORGUNS mun fúslega svara hvers konar fyrirspurn-
um um þetta efni.
MORGUNN hefir stundum áður beint til
FyrirbrigSa- iesen(ja sjnna þeiri’i ósk, að þeir sendi hon-
um greinilegar frásagnir heyrnar- og
sjónarvotta af dulrænum fyrirbrigðum. Fólk mun heldur
færast undan þessu af þeirri ástæðu, að hér þekkir hver
annan, og birti maður slíkt getur maður búizt við forvitni
og spurningum nágrannanna, sem flestir vilja helzt vera
lausir við. Fram hjá þeim óþægindum er auðvelt að stýra,
því að MQRGUNN birtir fúslega frásagnir undir dulnefn-
um, en vitanlega verður nafn heimildarmanns að fylgja
frásögninni til ritstjórans, þótt hann birti að eins dulnefn-
ið opinberlega, ef óskað er. MORGUNN biður enn lesend-
ur sína og alla þá, sem frá merkilegum hlutum kunna að
segja, að senda sér frásagnir.
Til þess að komast hjá því að hækka
MORGUN í verði síðastliðið ár, gripu út-
gefendur til þeirra ráða, að draga dálítið úr arkafjöldan-
um, eins og lesendur munu hafa orðið varir. Þetta ráð var
oss óljúft, en hjá því varð því miður ekki komizt. En þetta
ráð nægir ekki lengur. Útgáfukostnaðurinn fer svo hröð-
um skrefum vaxandi, að ekki verður hjá því komizt, að
nokkur verðhækkun verði á ritinu með næsta árgangi. En
VeríShœkkun.