Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 85
M 0 R G U N N
179
horfðu á hann ganga inn í atkvæðaklefann til að greiða
atkvæði.
Þingmaðurinn J. G. Svift McNeill birti blaðagi-ein árið
1897 um það kynlega fyrirbrigði, að T. P. O’Connor þing-
maður hefði sézt sitjandi í sæti sínu í þingsalnum, meðan
hann var raunverulega á leiðinni heim til írlands, til þess
að kveðja annað foreldra sinna, sem lá fyrir dauðanum.
Slík dæmi af sálförum, að sálin fer úr jarðneska lík-
amanum um stund og verður sýnileg á fjarlægum stað,
eru fjölda mörg og vottfest engu síður en dæmin af þess-
um þrem þingmönnum enska þingsins. Það er sannað, að
sálin getur lifað og starfað með fullri vitund utan jarð-
neska líkamans, og er þá nokkur ástæða til þess að ætla
að hún týnist, þegar hann deyr?
Jón Auðuns.
Máttur liugans yfir efninu.
Hinn heimsfrægi vísindamaður Alfred Russel Wallace
segir svo frá:
„Fjórir rússneskir glæpamenn höfðu verið dæmdir til
dauða, og voru látnir sofa í fjórum rúmum, sem voru
gegnsýrð af kóleru-sýklum. Þeir sváfu þannig nótt eftir
nótt, þeir sýktust ekki og voru við ágæta heilsu. Hálfum
mánuði síðar var þeim sagt, að nú ætti að láta þá sofa í
rúmum, sem væru sýkt af kóleru-sýklum. Tveim dögum
síðar dóu tveir þeirra og sá þriðji nokkru síðar. En
sannleikurinn var sá, að rúmin, sem þeir voru fluttir 1,
voru alls ekki sýkt, þau voru hrein og algerlega laus við
sýkla“.