Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 77
M O R G U N N
171
veröld áður en barnið fæðist á jörðunni. Ilún er svo stór
og víðtæk, að hið jarðneska efni, hinn jarðneski líkami,
g-etur ekki orðið nema mjög ófullkomið átarfstæki fyrir
ha,na, og aðeins nokkur hluti hennar eitthvert brot henn-
ar, getur opinberast eða tekið sér bústað í mannlegu
holdi, þess vegna er þetta, sem vér köllum sál vora, ekki
annað en brot af sálinni eins og hún er í sínum óskipta,
víðtæka veruleika, sem í bókmenntum sálarrannsóknanna
er tíðum nefndur „hið meira sjálfMargir indverskir
heimsspekingar og einnig sumir meiri háttar hugsuðir á
Vesturlöndum halda mjög þessari kenning fram. Þeir
fullyrða, að á bak við hinn jarðneska persónuleika vorn
standi hið „meira sjálf“, hið raunverulega sjálf manns-
ins. Þeir benda á, að því nær allir menn verði þess ein-
hverntíma varir, að þeir séu eins og yfirskyggðir ein-
hverju, sem er meira og voldugra en persónuleiki þeirra.
Þetta „eitthvað“ sé hið meira sjálf, sem stöðugt dvelur í
heimi andans, en sendir öðru hvoru eitthvert brot af sér
inn í vora jarðnesku tilveru, svo að það megi þannig öðl-
ast þá þýðingarmiklu reynslu, sem þar er að fá, og nema
þá miklu lærdóma, sem þar er unnt að nema. Oss er
sagt, að hin óljósa en þó sára tilfinning einstæðingsskap-
ar og hin sterka þrá vor út yfir hið jarðneska efni og
eftir einhverju óljósu, óþekktu og fjarlægu, sé óljós
innri meðvitund þess, að hinn hluti vorrar eigin veru
bíði vor á ströndinni, þar sem draumarnir eiga að rætast.
Hinn merki sálarrannsóknamaður Shaw Desmond, sem
ritað hefur nokkuð um þetta merkilega efni, segir: „Ég
held, að vér sameinumst hinu „meira sjálfi“ ekki þegar
eftir andlátið, heldur þykist ég hafa ástæðu til að ætla,
að þriðja sviðið, sem vér hverfum flest til eftir að vér
erum komin úr jarðneska líkamanum að fullu, sé ætlað
til þess, að vér vöxum þar inn í hið „meira sjálf“, en sam-
einumst því fyrst að fullu á fjórða sviðinu. Þessi tilgáta
hans verður skiljanlegri, þegar þess er gætt, að þeir,
sem nýlega eru farnir af jörðinni, tala sjaldan um þenn-