Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 76
170
M 0 R G U N N
fjöldi tímarita um allan heim og félög og félagasambönd
með milljónum meðlima starfa að útbreiðslu þessara
miklu sanninda, og þótt við ramman reip sé að draga,
fávizku margra þeirra, sem málum kristninnar stjórna í
löndunum, hleypidóma vísindanna og harða skel gamalla
og nýrra blekkinga á sálum fjölda manna, mun þó vissu-
lega fara svo að lokum, að allir verði að viðurkenna þann
sannleika, sem er studdur tvímælalausum staðreyndum
og prófaður í eldi hinna mestu jarðneskra vitsmuna,
þann sannleika, að vort jarðneska líf sé ekki annað en
næturvaka, sem hverfur fyrir sól hins mikla morguns
handan við gröf og dauða.
Sumir þeir djúphyggjumenn mannkynsins, sem harð-
asta glímu hafa háð við ráðgátuna miklu um líf og dauða,
telja sig hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að hið jarð-
neska líf manpssálarinnar sé í miklu víðtækara og stór-
felldara skilningi en oss hefur áður verið ljóst, aðeins
óljós næturvaka, samanborið við líf þess mikla morguns,
sem bíður vor handan við dagrenning eilífðarinnar. Þeir,
sem sannfærzt hafa um sambandið milli jarðneskra manna
og framliðinna og hafa rannsakað og borið saman hina
miklu mergð skeytanna, sem komið hafa fram víða um
lönd, hafa undrazt mjög hinar síendurteknu fullyrðingar
þeirra um, að líf vort hér í efninu sé raunverulega ekki
annað en óljós draumur, samanborið við hina miklu vöku
hinu megin landamæranna, og að vér jarðneskir menn
lifum að eins svo sem í skuggatilveru hins óljósa skiln
ings, við ófullkomna sjón og skynjun næturvökunnar.
Sumir af þeim djúphyggjumönnum, sem ég gat um áður,
telja sig hafa fengið nýjan skilning á þessum undarlegu
og margendurteknu staðhæfingum, og vegna þess, að
kenning þeirra snertir mjög eilífðarviðhorf mannssálar-
innar, langar mig að segja frá henni örlítið nánara, þótt
hins vegar sé hér um svo flókið mál að ræða, að erfitt
sé að skýra það í stuttu máli.
Þessir menn segja oss, að sálin sé til í yfirskilvitlegri