Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 23
M 0 R G U N N
117
slíkum spurningum. Þó er forspáin staðreynd. Spádóm-
arnir eru stundum hjúpaðir svo miklum líkingum, að
þeir verða alls ekki skildir fyrr en eftir á, en þótt þeir
séu sagðir berum orðum, verða þeir langsamlega sjaldnast
til þess að afstýra hinu ókomna. Svo var t. d. um hinn
fræga franska sálarrannsóknamann dr. Gustave Geley.
Ilann fékk mjög eindregna aðvörun við flugslysi, en hann
virtist ekki hafa heimfært hana til sín. Nokkru síðar fórst
hann í flugvél, sem hrapaði á flugvelli í Varsjá í Pól-
landi.
Spádómar hafa óneitaniega stundum komið fram um
heimssögulega atburði, sem öllum þóttu ólíldegir, þegar
spádómurinn var fluttur. Forspáin er vissulega einn þátt-
ur hinna sálrænu fyrirbrigða, en hún er raunverulega
dularfyllsta fyrirbrigði þeirra allra.
PSYCHOMETRIE HLUTSKYGGNI
Þá er enn ein tegund miðilsfyrirbrigðanna hin svo-
nefnda hlutskyggni, sem á erlendum málum er lcölluð
„Psychometrie“. Þetta verður með þeim liætti, að miðill-
inn sér engan veginn allt af það, sem hann er að lýsa,
lieldur er oft eins og hann fái það með einhverjum óskilj-
anlegum hætti inn á vitundina. Ilann veit hvað hann er
að segja, en hann, veit eklvi hvernig hann veit það. Sé
eigandi hlutarins viðstaddur og þekki sögu hans, má geta
sér þess til, að um hugsanaflutning eða fjarhrif sé að
ræða, frá manninum og til miðilsins, en þegar eigand-
inn er fjarstaddur og enginn konum kunnugur til staðar,
fer slíkt að verða heldur ólíklegt. Eins og t. d. þegar sál-
arrannsóknamaðurinn Wills sendi hlut úr eigu sinni yfir
Atlantshafið til miðils í Englandi, og fær senda vestur
til sín lýsingu af sjálfum sér í tólf atriðum og var hvert
einasta þeirra rétt. Eða þegar frú Cannoclí var fenginn
í liendur hlutur, sem hún. hafði borið sjálf en vissi það