Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 91
M O R G U N N
185
Allir þeir, sem vilja kynna sér sálarrannsóknirnar, og
einkum þeir sem lesa ensku, hafa óþrjótandi bækur til
lesturs um rannsóknarferðir og niðurstöður spíritismans.
Á íslenzku er til fjöldi þýddra og frumsamdra bóka um
þessi mál og „Morgunn“, málgagn Sálarrannsóknafélags
íslands, hefur frá byrjun flutt fræðandi fyrirlestra, frum-
samdar og þýddar greinar um gang málsins úti í löndum
og héðan að heiman. Er í ritinu mikill fróðleikur, sem
hver maður ætti að kynna sér, sem á annað borð ann
frjálsri hugsun í andlegum efnum. Við förum ógjarna í
annað hérað eða til annara landa til dvalar án þess að
kynna okkur staðhætti á þeim stað ef þess er nokkur
kostur. Allir hyggnir menn gera það. Ilversu ríkari er
þörf okkar á því, að þekkja næsta áfangastað, þegar farið
er yfir landamærin. Sú fræðsla er fyrir hendi og eflaust
er það ábyrgðarhluti, að forsóma hana eða gera lítið úr
því, sem þegar er fengið. (Leturbr. ritstj.). Að vísu eru
sálarrannsóknirnar erfitt viðfangsefni, sem krefst grand-
varra manna. Þeir hafa verið fyrir hendi. Þeir eru fyrir
hendi og verða fyrir hendi sökum þess, að þetta málefni er
í höndum hinna hvítu máttarvalda, sem vinna að þróun
allra heima og sálna. Sálarrannsóknir nútímans eru traust-
ur hlekkur í þróunarkeðjunni. Ilann hefur verið að mynd-
ast og þróast, og verður æ gildari, sem fram líða stundir.
Þetta er ekki hégómamál, þó mér takist ekki að endur-
segja það, sem hefur unnizt, svo sannfærandi sé. Það er
efalaust, að böl og eyðing manna og verðmæta, hatur og
grimmd, sem heimurinn þjáist af í dag, á rót sína að
rekja til þess, að trúnni og þekkingunni á æðri máttar-
völdum liefur ekki verið trúað eða náð til athafna manna,
einkum þeirra, sem stýra og skipuleggja málefni fjöldans
Þeir einir, sem eru andlega frjálsir, eru færir um að vera
leiðtogar lýðsins, hinir verða böðlar hans, fyrr eða síðar
hneppa þeir hann í fjötra. Hið eina, sem getur bjargað
heiminum úr þjáningunum, er vissan um æðri mátt og
leiðsögn máttarvaldanna á hugi og athafnir mannanna.