Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 82
176
M 0 R G U N N
Meðan á jarðardvöl vorri stendur, en hún er stutt,
„eins og næturvaka“, erum vér í stöðugu sambandi við
flokkssál vora hinu megin, þótt vér séum oss sjaldnast
meðvitandi um það, Oss hefur verið sagt, að sérhverja
nótt, þegar sálin yfirgefi hinn sofandi jarðneska líkama,
finni hún bæði flokkinn, sem hún tilheyrir, og einnig aðra,
sem ekki eru af vorum flokki. En það er ekki að eins
svo, að andaleiðtogarnir hafi sagt oss þetta, heldur vit-
um vér einnig, að margir hafa þjálfað sig til þess að
muna þessi næturferðalög sín, samtöl og fu.ndi að morgni.
Um þetta segir höfundurinn Shaw Desmond svo: ,,í
svo ríkum mæli erum vér gestir og útlendingar á jörð-
unni, að ég efa að vér gætum borið útlegðina, ef vér
ættum ekki þessa næturfundi með vinum í hinu sanna
föðurlandi. Ilin sára einstæðiskennd, hin eirðarlausa þrá
eftir einhverju óþekktu, sem stundum grípur jafnvel
hina köldustu og tilfinningasnauðustu menn, stafar að
nokkru leyti af því, að undirvitund vor er sér meðvitandi
um þenna aðskilnað vorn frá hinu sanna föðurlandi —
Minnizt þess, að það kostar sjúlfsfórn, að taka sér bú-
stað í líkama úr holdi og blóði. Samt verðum vér að frels-
ast þannig fyrir þjónustu og þjáning, sem eru goðbornar
systur. Jafnvel Jesús sjálfur, hinn mikli meistari, varð
að velja sér veg þjónustunnar“.
Um flokksálina er oss það einnig sagt, að hún sé ekki
aðeins samansett af þeim sálum, sem mynda flokkinn, en
að hún eigi einnig sitt einingartákn, eins og mannlegur
líkami, sem samansettur er af milljónum af frumum, sem
aftur sé öllum stjórnað af einni sál. Á bak við hvern
flokk standi einn stór andi, sem innblási flokkinn, en fái
einnig innblástur frá honum. Það er í þessum fræðum
staðhæft, að mjög sé það misjafnt, hve margar sálir
séu í hverjum einstökum flokki, þær geti verið tíu, tutt-
ugu, þúsund eða milljón, en að þær séu samstilltur hóp-
ur, sem gangi sama þróunarveginn áleiðis til hins óþekkta
markmiðs, og að hinn innri skyldleiki, sameiginleg reynsla