Morgunn - 01.12.1943, Blaðsíða 14
108
MORGUNN
myndir, en að hann hafði borizt upp að lopti herbergisins
sýndi það, að þar voru merkin eftir hárolíuna, sem hann
notaði. Þessi fyrirbrigði eru sannarlega svo furðuleg, að
ekki er að undra, að fólk eigi örðugt með að trúa þeim.
En hins vegar eru sum þeirra vottfest af svo varfærnum
og vitrum mönnum, að vitnisburði þeirra hljótum vér að
trúa, svo framarlega sem vér tökum mannlegan vitnis-
burð gildan, yfirleitt. Af þessum hlutum er það bert, að
tilveran er svo miklu undursamlegri en vér höfum gert
oss ijóst, að það er viturlegra að fara varlega í reng-
ingarnar.
Þá eru ekki síður furðuleg hin svo nefndu flutninga-
fyrirbrigði, að hlutir berast inn í lokað tilraunaherbergið,
og stundum langar leiðir að. Mest eru það smáhlutir, sem
þannig koma, en oft lifandi blóm, og eins þótt um há-
vetur sé og engin blóm nálæg. iljá hinni frægu Madame
d’Esperance, hlóðust blátt áfram niður blómin, sem hin
ósýnilegu vitsmunaöfl fluttu í gegn um lokað og læst til-
raunaherbergið, og þó voru fundirnir hjá frú Thayer í
Boston, ennþá miklu merkilegri um þessi fyrirbrigöi, enda
var hún tíðum kölluð „blómamiðillin.n“, vegna þess mikla
fjölda af blómum, sem til hennar bárust með óskiljanleg-
um hætti, meðan hún var í transinum. 1 viðurvist hópS
af efagjörnum rannsóknamönnum komu einu sinni á svip-
stundu 17 tegundir af burknum og blómum á borð sem
hún sat við, og var hún þá í djúpu transástandi.
Það er að vonum, að þeir, sem ókunnugir eru með
öllu sklíkum fyrirbrigðum, eigi örðugt með að trúa þeim,
en þetta mjög svo dularfulla fyrirbrigði, að fastir hlutir
berist í gegnum lieilt efni, er staðfest af svo ágætum og
hæfum monnum, að það er engin leið að komast undan
að vita, að á einhvern hátt er þetta raunverulega mögu-
legt
Einhver fullkomnasti miðillinn á sviði þessara tilflutn-
inga var frú Guppy, kona alþekkts og vellauðugs fjár-
málamanns í Lundúnum. Ilún var mikil vinkona Alfred