Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 46
2 matur
a-
Kökur
Til hátíða-
brigða
Sætindi
Hvunndags/til
hátíðabrigða
M Með-læti
Hollt
SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM:
matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði
Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink
Pennar: Friðrika Benónýsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Júlía
Margrét Alexandersdóttir, Ragnheiður Tryggvadóttir, Vera
Einarsdóttir og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið
Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is
HVA, ER MATUR Í
JÓLAPAKKANUM?
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir skrifar
Það er fullt af námskeiðum í boði fyrir fullorðna svo ég miða þessi námskeið við krakka. Hugmyndin er að börn og fullorðnir komi saman og hingað hafa
komið heilu fjölskyldurnar. Þá er námskeiðið
líka orðið að gæðastund við að búa til eitthvað
gott í sameiningu.
Svo fara allir heim með fullt af konfekti sem hægt er að
nota í jólagjafir en steyptu molarnir verða mjög fallegir,“
segir Guðmundur Finnbogason, heimilisfræðikennari við
Laugarnesskóla, en hann hefur ýmist búið uppskriftirnar til
eða aðlagað að minnsta konfektgerðarfólkinu.
„Konfektgerð er ekki mjög flókin aðgerð í sjálfu sér en hér
lærir fólk tækni og aðferðir til að geta svo útfært sínar eigin
hugmyndir heima. Námskeiðin koma fólki af stað.“
Guðmundur leggur til mót og hráefni á námskeiðinu en vill
minna þá fullorðnu á að koma með svunt-
ur. Hvert námskeið tekur um það bil
tvo tíma og á þeim tíma gera þáttak-
endur fjórar til fimm tegundir af kon-
fekti. Námskeiðin eru haldin í Laug-
arnesskóla á fimmtudagskvöldum
frá klukkan 19 til 21. Skráning fer
fram á www.matreidslunamskeid.
com - rat
Góðir molar í gjöf
Guðmundur Finnbogason miðar konfektgerðarnámskeiðin við yngstu bakarana. Hann segir námskeiðin gæðastund fyrir alla fjölskylduna við að búa
til eitthvað gott í sameiningu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NÚGGAT OG
MARSÍPANFYLLING
200 g gott marsípan
100 g núggat
Blandaðu þessu vel saman og
bættu út í, til dæmis líkjör eins
og Grand Mariner eða Amar-
etto. Það má líka nota ávaxta-
þykkni eins og appelsínudjús
til að fá appelsínubragð. Mik-
ilvægt er að smakka stöðugt
til að finna rétta bragðið. Það
má líka nota hnetur í þessa
fyllingu, hakkaðar salthnetur,
heslihnetur eða pekanhnetur.
KARAMELLUFYLLING
100 g fyllt karamellurjóma-
súkkulaði
½ dl rjómi
1-2 tsk. líkjör ef vill.
Hitaðu rjómann og súkkulaðið
rólega í potti eða örbylgju-
ofni. Bættu líkjörnum út í.
Látið kólna í skál í ísskáp þar
til blandan verður þykk. Settu
smá í hvern mola og hjúpaðu
með bráðnu súkkulaði. Það
má líka búa til litlar kúlur og
hjúpa þær í súkkulaði.
EINFALDAR KONFEKTMOLAFYLLINGAR
TE &KAFFI
Konfektmolar eru sniðug og falleg gjöf á jólum. Guðmundur Finnbogason hefur sett saman
námskeið þar sem fjölskyldan lærir saman að steypa mola í mót.
Nammi
namm!
Te & kaffi framleiðir allt kaffi
sitt sjálft og selur nýristað í
búðum til dæmis í kaffihús-
inu Te & kaffi á Laugavegi 27
sem er skemmtilegt kaffihús en
einnig sælkeraverslun. Þar má
fá allt í kringum kaffi en einn-
ig ýmsar aðrar vörur á borð við
súkkulaði, bakkelsi og sælgæti.
Kringum jólin er boðið upp á
sívinsælar gjafakörfur sem í eru
kaffi og te og konfekt af ýmsum
gerðum. Nýlega hefur Te&kaffi
hafið sölu á súkkulaðistöngum
sem eru búnar til út hágæða
belgísku súkkulaði. Stönginni er
stungið út í heita mjólk, súkkul-
aðið leysist þá upp og verður að
alvöru súkkulaðidrykk.
Fyrir hver jól gefur Te & kaffi
út nýja hátíðablöndu.
Kaffi, konfekt og með því
Á hverju aðfangadagskvöldi fæ ég ætan og dísætan jólapakka frá húslegri frænku minni undan jóla-trénu, en þeim dugnaðarforki finnst fátt skemmti-
legra en að bauka við persónulegar jólagjafir í formi
hannyrða og girnilegra eldhústilrauna þegar haustar
að. Þetta kemur sér stórvel fyrir mig því ég er bæði
óduglegur og klúðurslegur jólabakari og með eindæm-
um óskipulögð í öllum jólaundirbúningi, sem útilokar
sennilega æta jólapakka frá mér um alla framtíð. Samt
dáist ég öðru fremur að útsjónarsömum húsmæðrum
og öfunda þær af hugmyndaauðgi, handlagni og snilli-
gáfu í eldhúsinu.
Í árvissum jólapakka frænku minnar er ávallt veg-
legur skammtur af dýrindis mildkrydduðum mömmu-
kökum með hnausþykku smjörkremi, heimagert súrsætt
chili-chutney og oftar en ekki óvæntur bónus í formi
gamaldags, sneisafullrar glerkrúsar af súkkulaðihúð-
uðum kókostoppum, handskreyttum kransabitum og
heimagerðu úrvalskonfekti.
Þessi bragðmikla jólagjöf bjargar jólum í mínu húsi
þegar gesti ber óvænt að garði og gleður sannarlega
börnin smá, sem elska að seilast eftir smákökubita um
hátíðirnar, en reyndar er sonur minn farinn að stóla á
þennan gómsæta jólaböggul frænku sinnar, vitandi sem
er að mamma hans gerir misheppnaðar og öllu bragð-
verri mömmukökur.
Nú hyllir undir hátíðirnar með tilheyrandi ára-
mótaheitum og mig langar auðvitað að verða betri í
öllu. Betri manneskja og duglegri húsmóðir. Tína
berjaflóru að hausti til að sjóða í ljúffengt sultu-
tau, gera framandi marmelaði úr alls kyns aldin-
um, finna sprek til að stinga í karamellugljáð epli,
baka enskar jólakökur sem ég staupa með koníaki
allt haustið, handgera marsipandrumba og súkk-
ulaðitrufflur, og baka kynstrin öll af smákökum
og jólatertum, þar sem jólamerkimiðar pakkanna
eru úr piparkökum og jólakortin fléttuð heima-
tilbúnum hnetukaramellum. Þá þykist ég
viss um að skora hærra um jól hjá börn-
unum, pabba þeirra og ekki síst sjálfri
mér, að ógleymdum þeim sem fengju frá
mér hjartans persónulega pakka og dáð-
ust svo mjög að innihaldinu.
Má ég samt koma með eina tillögu?
Gefum þessar matargjafir frekar á
aðventunni og njótum þeirra saman á
huggulegasta tíma ársins. Kannski bara
barnaskapur og vanþakklæti að láta svona, því ég vil
síst missa af matargjöfinni glæstu, en það er ekki nærri
eins gaman að fá jólagjöf sem aðrir klára og gufar upp í
munnum gesta. Ekki einu sinni þótt persónuleg sé.