Fréttablaðið - 13.11.2010, Side 50
6 matur
Glösin sem
gera góð vín
betri
www.fastus.is
580 3900
Síðumúla 16
Rauðvínsglas 55 cl. 1.295
Hvítvínsglas 40 cl. 1.195
Kampavínsglas 20 cl. 1.095
Valentína Björnsdóttir og eig-inmaður hennar Karl Eiríks-son hafa það fyrir sið að baka
kryddköku fyrir jólin og færa vinum
ásamt kerti eða öðru smáræði. „Þetta
er svona lítið sætt jólakort í kökuformi
en ég er hrifin af þeirri hugmynd að
föndra eitthvað heima, setja jafnvel
í fallegar krukkur og gefa. Úr því
verða persónulegar gjafir sem koma
frá hjartanu.“
Valentína segir ýmislegt hægt að
gera og að nauðsynlegt sé að nostra
jafnt við umbúðirnar sem innihaldið.
„Það eiga margir krukkur inni í skáp
sem má endurnýta en svo er víða hægt
að finna falleg ílát á góðu verði.“
Beðin um að láta sér detta í hug
sniðugar matargjafir er Valentína
fljót að nefna bláberjavinegar, rauð-
laukssultu og dukkah-krydd, en hið
síðastnefnda lét hún einmitt fylgja
með kryddkökunni í fyrra. „Vinegar-
inn er tilvalinn út á jólasalatið, sultan
með steikinni og kryddið er bragðgóð
hnetublanda til að setja út á salat, fisk
og fleira.“
Valentina veit hvað hún syngur
þegar kemur að matargerð en hún
hefur rekið Móður Náttúru ásamtValentína segir matargjafir oftast koma sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
DUKKAH
100 g pistasíuhnetur
100 g möndlur
50 g sesamfræ
2 msk. kóríanderfræ
2 msk. cumminfræ
1 msk. fennelfræ
1 tsk. svartur pipar
1 tsk. maldonsalt
Ristið pistasíuhnetur og möndl-
ur í ofni í um það bil 10 mínút-
ur við 170° hita. Þurrristið kórí-
anderfræ, kúmenfræ, fennelfræ
og sesamfræ á heitri pönnu í
um það bil 2-3 mínútur. Passið
vel að þau brenni ekki. Malið
kryddið og sesamfræin í mat-
vinnsluvél, bætið hnetum og
möndlum út í og malið allt vel
saman.
BLÁBERJAVINAIGRETTE
2 dl ólívuolía
2 dl bláber
½ dl hvítvínsedik
1 tsk. maldonsalt
1 msk. limesafi
2 msk. agave-síróp
Svartur pipar
Allt sett í
matvinnslu-
vél og
maukað vel
saman.
RAUÐLAUKSSULTA
2 msk. olía
3 meðalstórir rauðlaukar,
sneiddir
Safi úr ½ lime
2 msk. maple-síróp
2 msk. saxaður kóríander
Salt og pipar eftir smekk
Hitið olíu í potti. Mýkið lauk-
inn í olíunni og passið að hann
brenni ekki. Bætið lime-safa og
maple-sírópi út í. Látið malla í
um það bil 10 mínútur. Bætið
kóríander út í í lokin.
Saltið og piprið eftir
smekk.
BRAGÐGÓÐAR GJAFIR
M
Skvetta af bláberjaediki
Dukkah er til dæmis
gott sem raspur á fisk.
Góðgæti sem g
Valentína Björnsdóttir er hrifin af því þegar fólk útbýr matar
Hún gefur hugmyndir að góðgæti sem mætti lauma í litla p
Það má auðveld-
lega útbúa flösku
sem þessa. Velj-
ið góða ólívuolíu
og skreytið með
rósmaríni eða
öðrum krydd-
jurtum.