Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 72
8 matur
margt smátt
Ég byrjaði að baka þessa köku eftir að amma dó til að færa afa fyrir jólin,“ segir
Thelma Hjaltadóttir, blaðamað-
ur á Bæjarins besta á Ísafirði,
um ávaxtakökuna sem hún bakar
nokkur stykki af fyrir hver jól og
færir þeim sem „eiga allt og hafa
ekkert að gera með einn kerta-
stjakann eða jóladúkinn í viðbót,“
eins og hún segir. „Það hljómar
náttúrulega eins og klisja að gefa
ávaxtaköku á jólunum, þótt það
sé kannski ekki svo algengt hér á
landi, en um jólin eru klisjur ein-
mitt svo hlýlegar og eiga vel við,“
segir Thelma.
En er ekki óttalegt maus að
baka svona köku? „Þetta er ekki
eins mikið mál og fólk ímyndar
sér að það sé að baka ávaxtakök-
ur, þarf að vísu að setja ávextina í
bleyti kvöldið áður, en baksturinn
sjálfur er lítið mál,“ segir Thelma.
„Það er best að baka hana með
góðum fyrirvara og bleyta svo
aðeins upp í henni með koníaki
eða rommi nokkrum sinnum áður
en maður pakkar henni inn. Ég
nota alltaf romm, en það fer auð-
vitað bara eftir smekk hvers og
eins. Og persónulega finnst mér
hún ekki síðri borin fram með
þeyttum rjóma.“
Er bakstur snar þáttur í jóla-
undirbúningnum hjá Thelmu?
„Já, ég geri alltaf nokkrar sortir
af smákökum og svo eru Sörurnar
ómissandi,“ segir hún. „En það er
ilmurinn af ávaxtakökunni í ofn-
inum sem kemur mér í rétta jólag-
írinn og er ómissandi lykt í und-
irbúningi jólanna á mínu heimili
rétt eins og ilmurinn af greninu
og mandarínunum,“ segir Thelma
og brosir út að eyrum. - fsb
„Ilmurinn af ávaxtakökunni í ofninum kemur mér í rétta jólagírinn,“ segir Thelma,
sem bakar nokkrar slíkar fyrir hver jól og gefur þeim sem eiga allt til alls.
250 g púðursykur
250 g smjör
4 stk. egg
280 g hveiti
1 tsk. vanillusykur
100 g suðusúkkulaði
100 g hnetur
200 g þurrkaðar
döðlur
50 g þurrkaðir app-
elsínubitar eða aðrir
þurrkaðir ávextir
Látið ávextina liggja í
bleyti í appelsínusafa
yfir nótt. Takið þá upp
úr og þurrkið vel áður
en þeir eru brytjað-
ir. Vinnið vel saman
púðursykur og smjör,
setjið egg saman við
eitt í einu og skafið vel
niður á milli, bland-
ið svo hveiti og lyfti-
dufti saman við. Saxið
niður allt sem fer svo
saman við, veltið upp
úr hveiti og blandið
vel og vinnið rólega
saman. Setjið deigið í
vel smurt form, smyrj-
ið formið með olíu eða
smjöri. Setjið hveiti
í formið og veltið
því vel um. Hellið úr.
Bakið við 160-170° í
80-90 mínútur í 21 sm
formi. Ef kakan verð-
ur of dökk er gott að
setja álpappír yfir í
lokin. Kakan er góð
svona, en gott er að
bleyta vel í henni með
koníaki eða rommi
nokkrum sinnum.
ÁVAXTAKAKA FYRIR AFA
Klisjur einmitt
svo hlýlegar
Heimabökuð ávaxtakaka er tilvalin í jólapakkann til þeirra sem eiga allt.
SVUNTUR eru hið mesta þarfaþing næstu vikur enda
ekki ólíklegt að húsfreyjur og -feður verði í sparifötun-
um á síðustu stundu að leggja lokahönd á matseldina
í ýmis konar jólaveislum og matarboðum. Og þá er
nú verra að fá slettu af waldorf-salati yfir sparikjól-
inn eða bindið. Fallegar svuntur fást víðsvegar
um bæinn. Nokkrar sérstaklega fallegar og lit-
ríkar má til að mynda finna í Habitat.
HEIMAGERÐAR
UPPSKRIFTA-
BÓK með saman-
safni af „leynileg-
um“ uppskriftum
heimilisins getur
verið sniðug jóla-
gjöf sem auðvelt
og frekar ódýrt er
að koma í verk en gleður.
Öllum uppskriftum sem glatt
hafa nánustu ættingja og vini
heimilisfólks er hægt að safna
saman í lítið hefti og ljósrita í jólagjaf-
ir. Bæði persónuleg gjöf og mikils metin.
AÐVENTUKRANSAR eru sérstak-
lega fallegir þegar ávextir, hnetur og
annað matarkyns er notað. Þá getur
komið mjög skemmtilega út að þurrka
appelsínusneiðar í ofni og nota sem
skraut, jafnt á jólatréð sem í kransa.
Þegar kemur að því að pakka inn gjöf-
unum má svo skreyta pakkann með
einni sneið til eða svo.
Kokkurinn Gordon Ramsey er okkur að góðu kunnur af skjánum. Í sjón-
varpsþáttunum Hells Kitchen og Kitchen Nightmares kemur kokkurinn
Gordon Ramsay okkur fyrir sjónir sem kjaftfor og kræfur karl með bein
í nefinu. Hann veit sitthvað um matargerð og í bók hans Eldað um víða
veröld hefur hann safnað saman uppáhaldsuppskriftum sínum héðan
og þaðan úr heiminum. Í bókinni er auk uppskrifta að finna fróðleik um
matarmenningu mismunandi landa og einnig kennir Ramsay les-
endum vinnubrögð í eldhús-
inu og fer yfir tæknileg at-
riði.
Bókina þýddi Hjalti
Nönnuson en Bókaútgáfan
Opna gefur bókina út.
ELDAÐ UM VÍÐA VERÖLD
Listakokkurinn kjaftfori
kennir handtökin í eldhúsinu
í nýrri bók.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi
á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku.
FÁÐU FÍNA OG FRÆGA
FÓLKIÐ Í HEIMSÓKN
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!