Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 74
10 matur
ÍSLENSKT SMÁKÖKU-
DEIG fæst nú í IKEA en
Karl Viggó Vigfússon, fram-
kvæmdastjóri íslenska kokka-
landsliðsins var IKEA innan
handar við þróun deigsins.
Deigið er án allra aukaefna og
kemur í rúllum sem þarf bara
að skera niður og setja inn í
ofn. Uppskriftirnar eru „ein-
faldar ömmuuppskriftir sem
margir kannast við“ að sögn
Karls Viggós. Annað deigið
er með kókos og rúsínum en
hitt með súkkulaðibitum og
hnetum og tvær rúllur kosta
395 krónur.
PIPARKÖKUHÚS fyrir önnum kafna
fást um þessar mundir í versluninni
Kosti við Dalveg í Kópavogi. Húsið
kemur samsett þannig að ekki þarf að
líma það saman og allt sem til þarf fylg-
ir með í kaupunum; tvenns konar litur
af glassúrkremi, tilbúinn, pip-
arkökukarlar til að skreyta
með, sælgæti og fleira sem
þarf til að útbúa hið full-
komna piparkökuhús.
Ég er búinn að brugga vín úr jurtum og berjum í ára-tugi,“ segir Hannes Lárus-
son myndlistarmaður og kveðst
oft gefa slíkar guðaveigar í jóla-
gjöf. Hannes bruggar langmest úr
bláberjum og krækiberjum en líka
úr rifsberjum og sólberjum eftir
atvikum. „Bláberja- og kræki-
berjavín eru bestu og skemmtileg-
ustu vínin. Fólk kann vel að meta
þau og finnst hátíðlegt að fá þau á
jólunum,“ lýsir hann.
Þetta árið kveðst Hannes gefa
bláberjavín sem hann lagði í í
fyrra, krækiberjavínið sé búið.
Auk þess bruggar hann mjöð úr
mjaðjurt og fíflablómum. „Menn
þurfa að venjast miðinum og það
er útvalinn hópur sem fær hann.
Mjöðurinn er svona 7,5 prósent en
vínið heldur sterkara, eða um 10
prósent. Ef það verður áfengara
kemur það niður á bragðgæðum.“
Það tekur bláberjavín og
krækiberjavín níu til tólf mán-
uði að verða góð, að sögn Hann-
esar. Svo geymast þau í hálft til
eitt ár. „Berjavín verða flöt við
langa geymslu,“ segir hann. „Vín
sem ekki eru úr þrúgum hafa
litla þroskamöguleika. Sólberja-
vín er þó hægt að geyma dálítið,
það er gróft fyrst en batnar með
aldrinum.“
Hannes hefur leiðbeint
ýmsum í víngerð og uppskrift
að berjavíni eftir hann er í bók-
inni Ætigarðurinn eftir
Hildi Hákonardóttur.
Hann segir of stutt
til jóla til að fólk geti
bruggað gott berjavín í
jólapakkana í ár, því best
sé að byrja með berin fersk,
merja þau og láta hýðið og
hratið liggja með sykri, vatni og
geri í tíu daga. „Þá dregur alkó-
hólið bragð úr berjunum,“ útskýr-
ir hann. Hann telur þó líklegt
að hægt sé að brugga úr saft en
býst við að útkoman verði bragð-
minni og flatari en úr berjunum.
„Ég nota yfirleitt hunang í vín og
miða við fimm kíló í 25 lítra af berj-
um. En ef notuð er saft í grunninn
og vínið á að vera tilbúið fyrir jól
væri trúlega hæfilegt að nota tvö
kíló af sykri eða hunangi í 25 lítra
af saft og vatni sem blandað er til
helminga.“
Möguleiki er á að vín úr saft
verði orðið drykkjarhæft um jólin,
að sögn Hannesar. Að minnsta
kosti væri hægt að gefa það í jóla-
gjöf og miða við neyslu á þorran-
um. „Styrkleikinn verður kannski
ekki mikið meiri en fimm prósent,“
segir hann kíminn og bætir við. „En
það er nú betra en ekkert.“ - gun
Gefur hátíðlegt heimagert vín
Hannes Lárusson myndlistarmaður stingur oft heimalöguðu berjavíni í jólapakka til vina og útvalinn hópur fær mjöð úr íslenskum blómum.
Hóflega drukkið vín gleður mannsins hjarta stendur einhvers staðar og með það í huga pakkar Hannes inn höfugu bláberjavíni
handa vinum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
margt smátt
SÍTRÓNUSMJÖR er meðal þeirra
girnilegu matvara sem hægt er að
panta í svokölluðu Sælkerahorni á
jólaheimasíðu Júlla sem er fyrir margt
löngu orðin nafntoguð. Vefsíðan er
uppfærð árið um kring, með alls kyns
fróðleik varðandi jólahaldi, matar-
gerð og bakstur en æsast þó leikar
í desember þegar farið er að telja
niður. Auk sítrónusmjörsins selur Júlli,
eða Júlíus Júlíusson, rauðlaukssult-
ur, sítrónusmjör, eplasíróp, appels-
ínu- og eplamarmelaði með kókos,
kókoskarrýsalt og fleira. Slóðin er:
http://www.julli.is/krukkur.htm