Fréttablaðið - 26.11.2010, Page 16
16 26. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Þórunn Sveinbjarnardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar
Björn Þór
Sigbjörnsson
bjorn@frettabladid.is
Þórunn Sveinbjarnardóttir
vill breytingar innan
þings sem utan. Björn Þór
Sigbjörns son settist niður
með henni og spurði hana út
í nokkur mál.
Byrjum á orðum þínum í þinginu í
vikunni í tilefni af Árbótarmálinu
sem verið hefur til umfjöllunar. Þú
sagðir að til að bæta vinnubrögð
Alþingis þyrfti að hætta úthlutunum
á safnliðum og kjördæmapoti við
fjárlagavinnuna. Slík vinnubrögð
eru sem sagt enn viðhöfð í þinginu?
„Já, því miður þá örlar á því og það
er aðallega vegna þess að undirbún-
ingur og framsetning fjárlaga hefur
lítið breyst í gegnum árin. Í þessu
og stjórnkerfinu öllu erum við enn
þá föst í gömlum vinnubrögðum.
Um safnliðina er það að segja að
þingmenn leggja mat á umsóknir
sem berast þinginu. Þetta eru oft
góð málefni, góðgerðarmál, menn-
ingarstarfsemi og annað slíkt en
það segir sig sjálft að þetta býður
upp á handahófskennt mat á því
hvert peningarnir eiga að fara. Það
er freistandi að leggjast á sveif með
verkefnum í eigin kjördæmi.
Kjördæmapotið sem sumum þing-
mönnum finnst eðlilegt en öðrum
óeðlilegt lifir enn góðu lífi í þing-
inu og í öllum flokkum. Það er eng-
inn verri en annar í því. En það sem
gerist er að menn sjást ekki alltaf
fyrir. Þingmenn verða að meta mál
burtséð frá kjördæmaskipan, við
eigum að starfa fyrir alla þjóðina
og allt landið.“
Þrýstingur í Árbótarmálinu
„Árbótarmálið er dæmi þar sem
augljóst er að tilteknir þingmenn
hafa lagst á sveif og beitt þrýstingi
til að fá niðurstöðu. Ég hef ekki öll
gögn um það mál og því ekki for-
sendur til að meta hvað er réttlát og
skynsöm niðurstaða en þetta býður
upp á efasemdir og að aðrir spyrji
hvers vegna þeir hafi ekki fengið
sömu kjör.“
Verður þessu útrýmt með við-
horfsbreytingu eða tæknilegum
aðgerðum?
„Hvoru tveggja. Stjórnarflokk-
arnir hafa heitið því að fjárlaga-
gerðin fyrir 2012 verði unnin með
öðrum hætti en verið hefur. Það
eru eðlilegar skýringar á því hvers
vegna við höfum ekki haft tíma til
að gera þá kerfisbreytingu en nú
verður ekki lengur beðið. Það þarf
að endurskoða fjárlagaramma ráðu-
neytanna því þeir endurspegla ekki
rétta skiptingu verkefna, mikilvægi
þeirra og forgangsröðun þessarar
ríkisstjórnar í ríkisfjármálum.
Svo eru það vinnubrögðin. Það
er rætt um að Alþingi standi sig
ekki þessa dagana en ég finn mik-
inn vilja meðal þingmanna úr öllum
flokkum til að breyta vinnubrögð-
unum. Fyrir liggja tillögur að bylt-
ingarkenndum breytingum sem ég
vona að verði samþykktar.“
Í hverju felast þær?
„Til dæmis í breyttri nefndaskip-
an sem mun leiða til grundvallar-
breytinga í þingstörfunum. Að auki
liggja fyrir tillögur um umræðu-
lengd, að ráðherrar sitji ekki á þingi
og fleiri sem skipta miklu máli og
eru hluti af tímabærri endurskoðun
á starfsháttum Alþingis.“
Þá var meirihlutaofbeldi
Þú hefur verið í öllum stöðum;
í stjórnarandstöðu, ráðherra og
þingmaður stjórnarf lokks. Er
staða þingsins gagnvart ríkisstjórn-
inni mjög veik eins og sumir halda
fram?
„Nei, hún er það ekki. Stund-
um er talað eins og allt hafi verið í
lukkunnar velstandi hér áður fyrr.
Ég sat lengi í stjórnarandstöðu
þegar Framsóknarflokkur og Sjálf-
stæðisflokkur voru í meirihluta og
stjórnarandstaðan hafði lítil sem
engin völd þá. Það var vont fyrir-
komulag og ólýðræðislegt. Kannski
voru eitt eða tvö mál samþykkt frá
stjórnarandstöðuþingmönnum og
valið á þeim fór ekki eftir efni máls
heldur hvernig tilteknum ráðherr-
um líkaði við tiltekna einstaklinga
í stjórnarandstöðu. Þá var miklu
meirihlutaofbeldi beitt en þannig
er það ekki nú.“
Ég hugsa að einhverjir stjórnar-
andstöðuþingmenn núna geti
auðveldlega talað um meirihluta-
ofbeldi.
„Já, örugglega en þetta snýst um
hvort hlustað sé á stjórnarandstöð-
una og tekið tillit til tillagna hennar
í þingnefndum. Í þeim nefndum sem
ég starfa í er það gert, þar er góð
samvinna. Á endanum er það svo
þannig að ef menn deila þá ræður
meirihlutinn niðurstöðunni. En ég
fullyrði að það er miklu meira jafn-
ræði á milli mála og umfjöllunar og
eðlilegra flæði á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu en verið hefur.“
Við þjóðinni blasir mikið sund-
urlyndi í þinginu og margir eru
gapandi yfir því. Fólk hélt að þið
mynduð snúa bökum saman við að
koma þjóðarskútunni á réttan kjöl.
Af hverju hefur það ekki gerst?
„Ætli sé ekki nær að spyrja for-
menn stjórnarandstöðuflokkanna
að því. Ef menn vilja vinna saman
þá gera þeir það. Forsætisráðherra
hefur í haust boðið upp á samráð
um allt sem er efst á baugi, til
dæmis um skuldamálin. Lögð hefur
verið mikil vinna í þau og skýrsla
sérfræðinganna sýnir hvað hægt er
að gera og hvað ekki. Þeir sem ekki
hafa horfst í augu við að almenn
skuldaniðurfelling er óhagkvæm,
óréttlát og óskynsamleg þurfa að
gera það. Hún bjargar ekki þeim
sem verst eru staddir og fer illa
með fjármuni almennings.”
Hagsmunir ráða för
„Í þessari vinnu náðist gott sam-
tal, til dæmis á milli stjórnvalda
og bankanna og stjórnarandstaðan
hefur verið með í því og haft sama
aðgang og aðrir. Formenn stjórn-
arandstöðuflokkanna hafa setið
við sama borð og ríkisstjórnin í
þessu máli og það sama á við um
Icesave. Ef menn vilja vinna saman
þá eru allar aðstæður til þess. Það
kann hins vegar að vera pólitískt
mat manna að það sé ekki heppi-
legt að starfa með ríkisstjórninni
vegna stöðu flokka eða annars.
Þetta er eins og með annað í lífinu
ef við ætlum að breyta einhverju þá
byrjum við á sjálfum okkur.“
Hvernig meturðu stöðu ríkis-
stjórnarinnar, sem býr við harða
stjórnarandstöðu úr eigin röðum?
„Það er rétt. Ríkisstjórnin býr
við það að hópur stjórnarliða er á
stundum gagnrýnni á hana heldur
en stjórnarandstæðingar og það er
viðvarandi ástand.
Ég skal viðurkenna, sem for-
maður þingflokks Samfylkingar-
innar, að það er ekki létt verk að
vera í samstarfi þegar maður veit
ekki alltaf að morgni dags hvort
meirihlutastuðningur er við þau
verkefni sem eru á borðinu. Það er
hins vegar frekar fyrirsjáanlegt
hvernig þetta liggur og þrátt fyrir
allt var flokksráðsfundur Vinstri
grænna um síðustu helgi sammála
um að styðja ríkisstjórnina og að
hún skuli halda áfram sínum störf-
um. Ég met það því svo að Vinstri
hreyfingin grænt framboð sé heil í
þessu stjórnarsamstarfi þó ég geri
mér mjög vel grein fyrir því að þar
eru innanbúðardeilur og valdabar-
átta sem dregur úr krafti VG sem
stjórnarflokks.“
Eruð þið í Samfylkingunni alltaf
sem einn maður?
„Já, okkur tekst það oftast nær.
Þetta er góður og samstæður
hópur þingmanna. Það er samt ekki
þannig að við séum sammála um
allt milli himins og jarðar en við
afgreiðum deilumálin inni í þing-
flokknum og styðjum ríkisstjórn-
ina heils hugar. Við erum hrygg-
súlan í stjórnarsamstarfinu. Það er
ábyrgðarhluti og það reynir oft á.
Það hefur til dæmis reynt á okkur í
haust vegna niðurskurðarins í heil-
brigðiskerfinu og það er ekki nema
eðlilegt.“
Hvar er velferðin?
Þar er harkalega skorið niður og
stjórnvöld hafa verið ansi sein að
greiða úr skuldavanda heimil-
anna. Af þeim tilefnum tveimur,
og þó ekki væri vegna annarra,
spyrja margir hvar velferðin sé sem
ríkisstjórnin kennir sig við. Hvar er
hún?
„Hún sést í mörgu en fyrst og
fremst þeim breytingum sem gerð-
ar hafa verið á skattkerfinu. Þær
hafa leitt til meiri jöfnuðar en hér
hefur verið árum saman. Allar
breytingar á skattkerfinu hafa
miðað að því að tryggja kjör þeirra
lægst launuðu og þar hefur verið
miðað við að halda óskertum kjör-
um þeirra sem hafa minna en 400
þúsund krónur á mánuði eða þar
um bil. Það hefur tekist og það er
mikill árangur í einhverri dýpstu
kreppu sem þessi þjóð hefur gengið
í gegnum.
Hins vegar göngum við þess ekki
dulin að þessu verkefni er ólokið
og við þurfum að búa til nýtt skatt-
kerfi sem tryggir enn betri jöfnuð.
Þegar við gerum það endurskoð-
um við líka bótakerfið því bætur og
skattar eru tvær hliðar á sama pen-
ingi. Það má ekki gleymast að við
erum að vinna í kröppu umhverfi.
Hrunið kallaði yfir þjóðina gríð-
arlega lífskjaraskerðingu. Það að
fimmtán prósent af tekjum ríkis-
ins fari í að borga vexti segir allt
sem segja þarf um þá skerðingu.
Við höfum ekki úr miklu að spila og
þá skiptir enn meira máli en áður
að við nýtum tækifærið og tryggj-
um jöfnuð í samfélaginu. Það gerir
engin önnur ríkisstjórn en þessi
sem nú situr.“
Víkjum að atvinnumálunum sem
eru eitt af stóru málunum í sam-
félaginu. Við höfum ekki séð jafn
mikið atvinnuleysi og nú og á sama
tíma er ríkisstjórnin sökuð um að
standa í veginum fyrir atvinnu-
uppbyggingu. Frá henni gætir líka
andúðar í garð erlendrar fjárfest-
ingar. Af hverju eruð þið á núll-
punkti í þessum málum?
„Nokkur atriði skipta mestu máli
fyrir uppbyggingu atvinnulífsins.
Í fyrsta lagi að vinna traust lán-
ardrottna en til þess að svo verði
þurfum við að ná stöðugleika í
efnahagslífinu. Það er að takast.
Við þurfum að klára Icesave, annað
er ekki boði. Við þurfum líka not-
hæfan gjaldmiðil. Krónan er föst í
gjaldeyrishöftum sem stuðlar því
miður ekki að trausti. Skammtíma-
verkefnið er að styrkja hana en til
lengri tíma þurfum við að koma
okkur upp nothæfum gjaldmiðli.
Vill erlenda fjárfestingu
Einnig teljum við í Samfylking-
unni mjög mikilvægt að opna fyrir
erlenda fjárfestingu. Við getum
ekki byggt upp nýtt, þróttmikið
og fjölbreytt atvinnulíf nema með
erlendum fjárfestingum. Og þegar
ég segi það þá á ég við fjárfestingar
í alls konar fyrirtækjum, ekki bara
í stórfyrirtækjunum sem oftast er
talað um.
Ég veit til þess að erlendir fjár-
festar bíða eftir að við leysum
Icesave. Þeir vilja fjárfesta í og
vinna með íslenskum fyrirtækjum
í nýsköpun og hugverkaiðnaði, til
dæmis. Þar eru miklir vaxtarmögu-
leikar. Frumvinnslan og gömlu
undirstöðuatvinnugreinarnar eins
og sjávarútvegurinn eru góðar og
gildar og færa okkur miklar tekjur
en við verðum að byggja atvinnu og
velferð á fleiru.“
Þú nefnir erlenda fjárfestingu.
VG vill rifta kaupum Magma á HS
orku. Hver er þín afstaða til þess
máls?
„Ég er ósammála því. Ég skil vel
ótta við erlenda fjárfestingu ef fólk
heldur að einkaaðilar séu að eign-
ast auðlindirnar. En það skiptir
engu máli hvort einkaaðilarnir eru
erlendir eða íslenskir. Aðalmálið er
að tryggja sameign þjóðarinnar á
auðlindunum og það gerum við von-
andi í stjórnaskránni og með við-
eigandi lagasetningu. Hvernig eign-
arhaldi á fyrirtækjum og rekstri
þeirra, hvort heldur er í orkugeir-
anum eða sjávarútvegi, er háttað er
annað mál. Auðlindirnar eru eitt og
fyrirtækin annað og erlendir aðilar
hljóta að geta fjárfest í fyrirtækj-
unum rétt eins og við Íslendingar
fjárfestum í fyrirtækjum í öðrum
löndum og finnst ekkert óeðlilegt
við það.“
Þú hefur lýst yfir að þú teljir
betur fara á að ríkisstjórn Íslands
sé fjölskipað stjórnvald. Trúirðu að
það muni verða?
„Já, ég þreytist ekki á að segja
að ríkisstjórnin eigi að vera fjöl-
skipað stjórnvald sem þýðir ein-
faldlega að þar eru teknar sameig-
inlegar ákvarðanir og allir hafa
sömu upplýsingar undir höndum.
Þannig tryggjum við betra og upp-
lýstara stjórnvald og að skýrt sé
hvar ábyrgð liggur.
Það góða við samfélagsástand-
ið sem við búum við er að við
höfum tækifæri til að endurskoða
allt; stjórnkerfið, lögin, pólitíkina
og samfélagið allt ef út í það er
farið.“
Ráðherrar og völd
„Það eru ekki allir sammála um að
fjölskipað stjórnvald sé rétt leið og
margir vilja að ráðherra hafi end-
anlegt vald yfir sínum málaflokki.
Við höfum hins vegar dæmi sem
sýna hvert það getur leitt okkur og
hvers konar hörmungar geta leitt af
því fyrir land og þjóð. Ég vona að
við endurskoðun stjórnarskrárinn-
ar verði fjallað um þetta.“
Að lokum, finnst þér ekki að þú
ættir að vera ráðherra í þessari rík-
isstjórn?
„Ég er formaður í stærsta þing-
flokki á Alþingi og það er mjög
mikilvægt starf. Félagar mínir
hafa falið mér mikla ábyrgð sem ég
reyni að standa undir enda skipt-
ir miklu máli fyrir Samfylkinguna
að við stöndum okkur á Alþingi og
í stjórnarsamstarfinu.
Mér var sagt um daginn frá grein
í bresku blaði þar var lítil saga sem
ég ætla að endurtaka hér og hún
er svona: Konur sem eru ráðherr-
ar eru alla daga að velta því fyrir
sér hvort þær séu ekki örugglega
að standa sig og hvort þær séu ekki
að fara vel með valdið sem þeim
hefur verið falið, af því að konur fá
vald að láni. Karlar sem sitja í rík-
isstjórn eru alla daga að velta því
fyrir sér hvers vegna þeir séu ekki
formenn flokkanna sinna.
Þetta er mitt svar við spurning-
unni en ég tek við öllum verkefnum
sem ég er beðin um að taka að mér
og hef alltaf gert.“
Höfum tækifæri til að endurskoða allt
REYND Þórunn hefur setið á þingi frá 1999. Hún var umhverfisráðherra 2007 til 2009. Áður en hún var kjörin á þing vann hún
meðal annars fyrir Rauða krossinn á Íslandi, í Tansaníu og Aserbaídsjan og var blaðamaður á Morgunblaðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég skal viðurkenna sem formaður þingflokks Samfylking-
arinnar að það er ekki létt verk að vera í samstarfi þegar
maður veit ekki alltaf að morgni dags hvort meirihluta-
stuðningur er við þau verkefni sem eru á borðinu.