Fréttablaðið - 27.11.2010, Síða 40

Fréttablaðið - 27.11.2010, Síða 40
40 27. nóvember 2010 LAUGARDAGUR Á fundi sem hófst í R á ð h e r r a - bústaðnum laugar- daginn 4. október 2008 kl. 15.30 var líklega fyrst sagt upphátt að þjóðin gæti orðið gjald- þrota í því gjörningaveðri sem þá gekk yfir Ísland. Þessa helgi rak hver fundurinn annan. Opinber- lega var tilefni fundarhaldanna það hvernig lífeyrissjóðirnir gætu flutt fjármuni til landsins en raun- veruleg ástæða var stórkostlegur vandi bankanna. Orðið sem ekki mátti nefna „Á föstudeginum komu fram kröfur frá Bretlandi og Evrópska seðlabankanum í Lúxemborg um að bæta lausafjárstöðu íslensku bankanna í Bretlandi og eins að þeir legðu fram frekari veð fyrir skuldbindingum sínum,“ segir Árni. Á fyrrnefndum fundi með aðilum vinnumarkaðarins var mikið talað um gjaldmiðilsmál. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR og stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna hélt því fram á fundinum að „við [næðum] ekki trúverðugleika með krónuna“ og skömmu síðar að hann hlustaði ekki á heilagleika Seðlbankans „ef þjóðin er að verða gjaldþrota á mánudag“, skrifar Árni eftir Gunnari. Síðan segir í bókinni: „Þarna sagði Gunnar Páll það sem enginn vildi segja, en var óneitanlega byrjað að grafa um sig í hugskotum manna: Færi allt á versta veg gat orðið þjóðargjaldþrot. Orðið sem ekki mátti segja, því kæmi það frá þeim sem þarna sátu á fundum til að reyna að bjarga þjóðar skútunni, hefði það valdið uppnámi, jafnvel skelfingu í samfélaginu. Hvergi í minnispunktum Árna frá þess- ari helgi er að finna vísbendingu um að ráðherrar, seðlabankamenn eða sérfræðingar þeirra hafi gefið þetta til kynna. Ekki er ólíklegt að Gunnar Páll, jafnvel fleiri þessara fulltrúa sem þarna voru frá Alþýðusambandinu og Samtökum atvinnulífsins, hafi einfaldlega dregið þessa ályktun af þeim upp- lýsingum sem þeir höfðu fengið um alvarlega stöðu bankanna. Líklega var þetta í fyrsta skipti sem einhver sagði þetta upphátt, en fram yfir helgina var því haldið innandyra. Menn voguðu sér ekki að leggja sér þetta skelfilega orð í munn, jafnvel ekki inni í Ráðherra- bústaðnum heldur.“ Rangar ákvarðanir Árni veltir fyrir sér þeirri spurningu hvenær síðast hefði verið hægt að grípa í taumana og stöðva þróunina sem leiddi um síðir til hrunsins í október 2008. „Þegar ég hugsa til baka, þá velti ég fyrir mér tveimur tíma- punktum þar sem taka hefði átt öðruvísi á málum eða teknar voru hugsanlega rangar ákvarðanir. Fyrri tímapunkturinn er lækk- un bindiskyldu bankanna 2003. Það er ljóst að í kjölfar þeirrar aðgerðar jókst peningamagn í umferð og stærð bankanna gríðar- lega. Það auðvitað gat gerst vegna þess að aðrir þættir voru þessari þróun hagstæðir s.s. lánshæfismat ríkis ins tengt minnkandi skuldum ríkissjóðs sem leiddi beint til hagstæðara lánshæfismats bank- anna. Einnig staðan á erlendum mörkuðum og sú ofgnótt fjár sem þar var og líka vaxta- og gengis- stefna Seðlabankans allt frá þess- um tíma. Hefði bindiskyldan verið hærri hefði bankakerfið trauðla vaxið eins hratt og raun bar vitni og áhrif vaxtanna á þensluna eru vægt sagt umdeilanleg í ljósi áhrif- anna á gengið. Þessi áhrif voru sennilega öll að verki þegar fund- ur var boðaður í Seðlabankanum í nóvember 2005, fyrir minni krís- una 2006. Hann var boðaður til þess að segja frá því að skulda- tryggingarálag bankanna væri að hækka. …Þá er, held ég að ég geti fullyrt, í fyrsta skipti talað um að það geti komið upp einhver vanda- mál. Þarna eru menn farnir að sjá fyrir minni krísuna 2006. Það er í rauninni á þessum tíma, telur Styrmir Gunnarsson í bók sinni Umsátrinu, að menn hefðu átt að gera eitthvað og þannig stöðva þróunina sem leiddi svo um síðir til hrunsins í október 2008. Hann kemst jafnframt að þeirri niðurstöðu að þá hafi ekki verið neitt hægt að gera, því að enginn hefði trúað því að þess hefði verið þörf. Ef menn hefðu farið að leggja til haustið 2005 að setja hömlur á bankana, þá hefði einfaldlega verið litið á þá sem einhverja vitl- eysinga, fjandsamlega atvinnu- lífinu, nú væri Davíð nýkominn í Seðlabankann og farinn að stunda hefndaraðgerðir þaðan.“ Gjaldeyririnn kláraðist Í vikunni sem bankarnir voru að falla þurfti Árni að halda út á fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Wash- ington. Þetta voru miklir óvissu- tímar og enginn vissi hvað myndi gerast. Á fundinum biðu Árna fjöl- mörg snúin verkefni. „Það var mjög skrýtið að yfir- gefa landið þennan dag. Allir stóru bankarnir þrír höfðu fallið á þremur dögum, sá síðasti, Kaup- þing, einmitt sama dag og ég fór út. Óvissan var slík að maður vissi ekki hvað mundi gerast hérna heima. Hvort konan og börnin gætu farið út í búð að kaupa í mat- inn, bjargað sér á meðan maður væri í burtu. Eða hvort ég gæti notað kreditkortið þegar ég færi út af hótelinu og þyrfti að borga reikninginn. Til öryggis varð ég þess vegna að hafa með mér reiðu- fé, því að það hefði orðið óbæri- legur álitshnekkir fyrir Ísland ef fjármálaráðherra landsins gæti ekki borgað reikninginn sinn af því kortið hans virkaði ekki! Ég hef aldrei verið með annað eins af peningum á mér á ferðalagi. Ég held ég hafi nánast verið með síð- asta gjaldeyrinn úr Seðlabankan- um, því að þeir höfðu látið Kaup- þing hafa allan gjaldeyrisforðann sem þeir voru með hérna heima þannig að það voru engir pening- ar eftir í Seðlabankanum. Seðla- bankinn hafði skrapað botninn til þess að láta okkur fá seðlana.“ Síðan segir í bókinni: „Við hefð- um átt að vera þrír ráðherrar og seðlabankastjóri á fundum þessa daga í Washington. Auk mín Davíð Oddsson frá Seðlabankanum, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir utanríkis- ráðherra og Guðlaugur Þór Þórðar- son heilbrigðisráðherra en það var reyndar út af einhverju sér- stöku verkefni sem tengdist ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hann sat hins vegar heima út af ástand- inu, Davíð komst ekki heldur og Ingibjörg veik. Það hvarflaði að mér þegar ég var á leiðinni vest- ur, að ég hefði kannski átt að vera kyrr heima líka, að ég ætti ekki að skreppa á fund á meðan húsið stóð í ljósum logum! En ég vissi að hjá því yrði ekki komist og áttaði mig líka á því að ég gerði meira gagn þarna úti í Washington, þar væru allir sem þurfti að ræða við til að finna einhverjar leiðir út úr vandanum heima. Það væri þess vegna réttari samlíking að ég væri að hlaupa út til þess að sækja slökkviliðið. Í rauninni var útilokað annað en að ég færi á ársfundinn því að Ísland var á þessum tíma í forsæti í Alþjóðabankanum en þetta var sameiginlegur ársfundur Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins og Alþjóða- bankans. Ég þurfti þess vegna að vera þarna á fundum í bankanum fyrir hönd kjördæmis Norður- landanna og Eystrasaltsríkjanna og halda ræðu fyrir hönd þessara þjóða á ársfundinum. Dagskráin var því alveg samfelld hjá mér. Með í för var ennfremur starfs- fólk Seðlabankans í þeim erinda- gjörðum að hitta bankamenn og ég sat þá fundi eins og hægt var í stað Davíðs. Ég var þess vegna bæði í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eins og hefði verið mitt venjulega hlutverk, í Alþjóðabankanum í hlutverki utanríkisráðherra, ræddi við bankamenn fyrir hönd Seðlabankans og svo hljóp ég í það að undirrita samninga fyrir heil- brigðisráðherra að auki. Ég var sem sagt þarna einn í hlutverkum okkar fjögurra.“ Öllum steinum velt til að fá lán Tími fjármálaráðherrans fór því að töluverðu leyti í að sækja fundi fyrir hönd annarra en hann sinnti þó einnig sínum erindum. Hann þurfti að hitta fulltrúa banda- ríska fjármálaráðuneytisins, full- trúa Bandaríkjanna hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og þýsku og hollensku fulltrúana hjá sjóðn- um og svo Stefan Ingves, sænska seðlabankastjórann. Og þegar öllu var á botninn hvolft snerust fund- irnir um eitt meginþema, þegar skyldubundnum erindum sleppti: Að afla Íslandi lánsfjár. „Það má segja að allra leiða hafi verið leitað, öllum steinum velt við og enginn skilinn eftir, til þess að reyna að fá lán. Beint og óbeint var þessi fámenni hópur að vinna að því öllum stundum. Ég átti langan fund með Stefan Ingves og svo Christine Lagarde, franska fjármálaráðherranum. Hún hringdi reyndar fyrst í mig á meðan ég var að tala við Stefan og ég þurfti því að gera hlé á þeim fundi, hún var þá í forsæti Evrópusambandsins. ESB var þá raunverulega að lýsa því yfir að ef við færum réttu leiðina, þá mundu þau vilja styðja við bakið á okkur. Og í þeirra augum virð- ist rétta leiðin hafa verið fólgin í því að halda sig innan hópsins, ef svo má segja. Hún var að vara mig mjög eindregið við því að við færum að taka við peningum frá Rússum. Það gæti verið erfitt. Ráðherra lék mömmu Ég hafði svo samband við hana aftur til þess að fá að vita nánar hvað gæti falist í aðstoð frá Evr- ópusambandinu. Hún lofaði að afla okkur stuðnings sambands- ins til þeirra hluta sem við þurft- um að gera. Ég held að henni hafi gengið gott eitt til, það reyndi líka á það síðar að mínu mati og hún var jákvæð í okkar garð. En þá voru komin önnur öfl inn í þetta, Bretland og Holland í Icesave- málunum. Fundurinn með henni á skrifstofum Frakka hjá AGS var reyndar dálítið sérstakur. Í öllu þessu stressi sem þarna var með þennan hefðbundna ráðstefnu- eða stórfundastíl á öllu, pappaglös og pappadiska og allt á hlaupum, þá var okkur boðið til stofu. Þar biðum við í rólegheitum á meðan te var bruggað á katli og franski fjármálaráðherrann skenkti okkur öllum síðan sjálf í þessa fínu post- ulínstebolla. Hún svona „played mum“, eins og sagt er á ensku. Henni tókst með þessu að róa liðið og skapa aðeins aðra stemningu en var á fundunum yfirleitt.“ Þegar ég hugsa til baka, þá velti ég fyrir mér tveimur tíma- punktum þar sem taka hefði átt öðruvísi á málum eða teknar voru hugsanlega rang- ar ákvarðanir. Með gjaldeyrisforðann í ferðatösku Í bókinni Árni Matt – Frá bankahruni til byltingar, sem Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, skrifar ásamt Þór- halli Jósepssyni fréttamanni, lýsir Árni bankahruninu frá sínum bæjardyrum séð. Fréttablaðið birtir hér nokkur brot úr bókinni. ÞJÓÐARGJALDÞROT RÆTT Fjölmiðlar fylgdust með hverju skrefi fjármálaráðherra í bankahruninu. Myndin er tekin 4. október 2008 að loknum fundi í Ráðherrabústaðnum þar sem þjóðargjaldþrot var rætt í fyrsta sinn að sögn Árna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Á rni M. Mathiesen var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar þegar bankahrunið varð. Í bókinni Árni Matt sviptir hann hulunni af því sem gekk á fjarri kastljósi fjölmiðla, greinir frá átökum við erlenda og innlenda áhrifa- menn og veitir lesendum einstaka innsýn í samtímasögu þjóðarinnar. Í bókinni vitnar Árni meðal annars til minnispunkta sinna og ýmissa annarra óprentaðra gagna. Þór- hallur Jósepsson fréttamaður er höfundur bókarinnar ásamt Árna. MINNISPUNKTAR OG ÓBIRT GÖGN Jólafundur Kvennadeildar Rauða krossins 2010 verður haldinn í Víkingasal Hótel Loftleiða fimmtudaginn 2. desember kl. 18:00. Dagskrá: Jólahugvekja: Séra Hjörtur Magni Jóhannsson. Kvöldverður: Glæsilegt jólahlaðborð, möndlugjöf. Einsöngur: Steinunn Ósk Axelsdóttir ásamt Sigurði Jónssyni undirleikara. Dansatriði: Verðlaunadansparið Harpa og Björgvin Þór, dansa Suður-Ameríska dansa. Happdrætti: Glæsilegir vinningar m.a frá Símanum, Nóa Síríus, Kynnisferðum, Farfuglum, Securitas, Forlaginu, Bjarti, Kaffitár og margt fleira. Sigurður Jónsson leikur á píanó undir borðhaldi. Tilkynnið þátttöku í síma 545 0405 eða 545 0400 í síðasta lagi tveim dögum fyrir jólagleðina. Verð kr. 4.800. Félagsmálanefnd.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.