Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.11.2010, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 27.11.2010, Qupperneq 58
 27. NÓVEMBER 2010 LAUGARDAGUR2 ● fréttablaðið ● jólaþorpið Í Jólaþorpinu er Grýla í aðal- hlutverki, hún stýrir skemmti- dagskrá og sér til þess að allir sem í þorpið koma hagi sér vel. Þetta hefur gengið það vel að bæjarstjórinn er að íhuga að fá hana til liðs við bæjarstjórnina. Grýla stendur vaktina allar helgar fram að jólum og drífur öll verk- efni áfram. Í föruneyti hennar eru svo strákarnir hennar, jóla- sveinarnir og að sjálfsögðu verður jólakötturinn ógurlegi við loðandi þorpið. Við hittum þau Grýlu og Guðmund Rúnar bæjarstóra í Hellisgerði þar sem þau höfðu tekið stuttan fund um undirbúning Jólaþorpsins sem verður opnað nú á laugardaginn. Hvernig gengur svo undir- búningurinn? Grýla: „Þetta er að komast í vana, ég hef nú verið í Jólaþorp- inu í tvö kjörtímabil, miklu, miklu lengur en Guðmundur hefur verið bæjarstjóri. Annars eru þeir andskoti duglegir strákarnir í Þjónustumiðstöðinni og ég þarf lítið að tukta þá til, annað en með strákana mína sem eru ekkert nema letin og óþekktin.“ Guðmundur: „Já þetta er orð- inn stór þáttur í jólahaldi okkar Hafnarfirðinga, að kíkja í heim- sókn til þín í Jólaþorpið, kerlingin mín, og maður er farinn að hlakka til að sjá hvernig til tekst í ár enda er ég viss um að þú hefur lagt þig alla í þetta. Grýla: „Auðvitað eru margir sem koma fram með mér, ég fæ ekki að vera ein á sviðinu allan tímann enda þótt ég gæti það svo sem alveg. En hún Selma Björns vinkona mín kemur, Gunni og Felix koma líka og svo Ljótu hálfvitarnir, en mér finnast þeir eigin lega ekki nógu ljótir til að heita þessu nafni. Svo kemur hann þarna sem er stundum í sjónvarpinu með brand- ara, hann Ari Eldjárn og einhver mafía frá Memfis og Dísa ljós álfur, sem ég veit ekki hverjum datt í hug að fá í Jólaþorpið, fýkur hún ekki bara burtu?“ Guðmundur Rúnar: „Dísa er bara flott og auðvitað fýkur hún ekki burtu.“ En hvernig var það Grýla, var Guðmundur Rúnar ekki stilltur sem krakki? Grýla: „Ég man vel eftir honum sem krakka á Arnarhrauninu. Frekar stilltur alltaf en hann leynir samt svolítið á sér og það kemur mér ekkert á óvart að hann hafi endað í pólitík.“ Guðmundur Rúnar: „Ha, ég? Ég ætlaði mér aldrei í pólitík. Mig langaði helst til að verða garð- yrkjumaður eða skáld.“ „Skáld! Það kemur sér nú bara vel þegar maður er bæjarstjóri,“ segir Grýla og skellihlær. Guðmundur Rúnar: „Við Grýla bjóðum alla landsmenn hjartan- lega velkomna til okkar í Hafnar- fjörð, í Jólaþorpið, þar sem hægt er að kaupa fallegt handverk og jólalegt góðgæti.“ Grýla: „Ég má ekki vera að þessu kjaftæði lengur, verð að drífa mig í þorpið – sjáumst í Jóla- þorpinu!“ Velkomin í Jólaþorpið Það fer vel á með þeim Grýlu og Guðmundi bæjarstjóra en þau ætla bæði að skemmta sér vel í Jólaþorpinu fram að jólum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Árið 2003 var ákveðið að fara af stað með jólamarkað á aðvent- unni í miðbæ Hafnarfjarðar. Megin tilgangurinn var að efla líf í miðbænum, auka verslun í Hafnarfirði og skapa jákvæða ímynd. Ákveðið var að gefa jólamarkaðinum heitið Jóla- þorp þar sem tuttugu lítil sölu- hús áttu að mynda lítið þorp í hjarta bæjarins. Jólaþorpið í miðbæ Hafnar- fjarðar hefur það hlutverk helst að hlúa að verslun og fjölga heimsóknum ferðamanna, inn- lendra sem erlendra, til bæjar- ins. Jólaþorpið gegnir þó ekki minna hlutverki sem skemmti- legur og jákvæður viðburður í hugum Hafnfirðinga þar sem leikskólabörn skreyta þorpið, nemendur grunnskóla koma að skemmtidagskrá og þannig mætti lengi telja. Verkefnið hefur þannig orðið æ stærri þáttur á aðventunni fyrir Hafn- firðinga og gesti þeirra. Á afmælisári Hafnarfjarðar- bæjar árið 2008, þegar hundr- að ára afmæli sveitarfélagsins var fagnað, var ákveðið að gera þorpið veglegra. Skemmtidag- skrá var gerð þéttari og henni dreift betur yfir daginn og eins var þorpið lýst og skreytt meira en verið hafði. Þá var settur á fót starfshópur sem lagði línur að þróun Jólaþorpsins í Hafnar- firði fram til ársins 2013. Jólaþorpið samanstendur af tuttugu jólahúsum frá Þýska- landi. Jafnan er búinn til lítill ævintýraheimur með fallegum skreytingum leikskólabarna og ljósum, stígum og samkomu- torgi með jólatré í miðjunni. Boðið er upp á skemmtidagskrá með fjölmörgum skemmtiatrið- um og hefur jólaball með jóla- sveinum og Grýlu verið sérstak- lega vinsælt. Jólaþorpið hefur uppfyllt markmiðin, þ.e. aukið líf og verslun í miðbænum á aðvent- unni og skemmt bæjarbúum og gestum. Á árinu 2010 eru langir biðlistar söluaðila eftir húsum og því má með sanni segja að þorpið hafi aukið vinsældir sínar á síðustu árum. Það hefur þó ekki gerst af sjálfu sér held- ur með mikilli vinnu og þróun í gegnum árin en ekki síst vegna samvinnu við stofnanir bæj- arins, bæjarbúa, kaupmenn og ferðaþjónustuaðila. Saga Jólaþorpsins Margt verður um að vera fyrir börnin. Jólaþorp Hafnarfjarðar mun iða af lífi í ár líkt og síðastliðin sjö ár. Útgefandi: Hafnarfjarðarbær Ábyrgðarmaður: Marín Hrafnsdóttir Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson s. 512 5411 Við erum með Jólaskrall, sem er dagskrá fyrir alla fjölskylduna,“ segir Björk Jakobsdóttir, sem er einn af þeim skemmtikröftum sem koma fram á jólaskemmtun í Gaflara leikhúsinu. „Við erum ný búin að taka við leikhúsinu og viljum bjóða upp á heimilislega samverustund. Það er tilvalið að koma í Jólaþorpið í Hafnarfirði og enda svo heimsóknina hjá okkur með því að spila jólabingó í miklu keppnisskapi og láta skemmta sér.“ Bingóið er ekki það eina sem boðið verður upp á í Gaflaraleik- húsinu alla laugardaga til jóla. „Selma Björns er með okkur og tveir Ljótir hálfvitar, þeir Eddi og Toggi, og þau flytja skemmtilega tónlist,“ segir Björk. „Svo fáum við óvænta gesti. Gunni Helga og Björgvin Franz ætla til dæmis að lesa upp úr nýju bókinni sinni og Toggi Hálfviti sér um leikhljóð með lestrinum. Sjálf ætla ég að frum- flytja frumsamið lag um íslenskar mæður í jólastressi, þannig að við verðum bara á léttum nótum. Rauði þráðurinn í gegnum dagskrána verður jólabingóið og við ætlum að vera með piparkökur, mandarínur, jólaglögg og heitt kakó. Ég þekki það sjálf sem móðir að vera alltaf að leita að jólastemningu á þessum tíma og keyra kannski til Hvera- gerðis til að finna réttu stemning- una, en nú getur fólk bara keyrt í tíu mínútur og þá er það komið í miðbæinn í Hafnarfirði, sem hefur þessa réttu stemningu. Slakað svo á og skemmt sér á Jólaskralli.“ Hugguleg jólastemning Gaflaraleikhúsið býður upp á huggulega jólastemningu fyrir alla fjölskylduna milli 18 og 19.30 alla laugardaga til jóla. Björk Jakobsdóttir er annar dagskrárstjóranna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN M.Benz E200 CGi Avantgarde. Bluetec Árgerð 2010 Ekinn 24 þús. Km. Verð 7.990.000 Sjálfskiptur, Xenon, GPS Navi, Tölvustýrð miðstöð með loftkælingu, álfelgur, cruise- control, parktronic, beygjuljós, LED dagljós, I-pod tengi, bluetooth símabúnaður, plussmottur, hiti í sætum, Isofix, Benz hljómkerfi, leðurklætt stýri og skiptihnúður, svartbæsaður viður í mælaborði. Bíllinn er allur sem nýr. Upplýsingar í síma 841-8311 og á netfanginu: olafurmirra@hotmail.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.